Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1996, Page 47

Læknablaðið - 15.09.1996, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 653 Fig 8. The younger wooden leg was made in 1935 and without tliefaults ofthe olderone. Jón used it until his death in 1962. a. drawing b. viewed from the front c. viewed from the side. tréfótinn varð skakkt og hann hallaði inn á við undan þunganum. Skýr merki um þetta sjást á tréleggnum. Hann slitnaði nær eingöngu utan- vert við göngu (j') og lagðist í hverju skrefi þvert á innri spelkuendann, sem smám saman svarf holu í hliðina (t T )• Vegna þvingunar- átaksins brast tréleggurinn að endilöngu. Spennan olli því að innri spelkan brotnaði vegna málmþreytu. Gert hefur verið við hana (t t t)< en fremur ólánlega þar sem innri brotendinn skagar inn að stúfnum og gæti hafa rekist í hann og sært enn frekar. Tréfóturinn virðist gjörónýtur enda fór svo að Jón hætti að nota hann og kaus heldur að ganga við staf og slá tún á hnjánum meðan hann beið eftir nýjum fæti. Til viðgerða á eldri fætinum var gengið í srniðju til Árna Einarssonar (15) vélstjóra og sjálfmenntaðs járnsmiðs í Flatey. Hann var óvenju náttúruhagur maður, enda var leitað til hans af öllu Breiðafjarðarsvæðinu um báta- smíðar og vélaviðgerðir. Ætla má að kynni Árna af gervilimnum hafi verið kveikjan að því að hann smíðaði á árunum 1935-1938 (16) nýj- an og endurbættan fót fyrir Jón (mynd 8). Ekki er fullljóst hvort Árni hafði aðra fyrirmynd en gamla fótinn, en þó segja munnmæli að um svipað leyti hafi kona á eyjunni notað gervifót. Árni gerði nokkrar veigamiklar umbætur frá fyrri fæti. Hann gætti þess að líkamsþunginn Fig. 9. A view inside the socket of the younger wooden leg. kærni á tréfótinn miðjan, en við það jókst stöð- ugleiki hjálpartækisins verulega. Þá veitti hann stúfnum aukið aðhald með traustri, 18 cm hárri, leðurhulsu, sent lá frá hringgjörðinni niður á tréfótinn. Aðalfesting spelkunnar var, eins og á eldri fætinum, við lærið en í stað segldúks setti Árni leðurborða. Hann hækkaði trélegginn urn þrjá cm í 22 cm og hækkaði gervifótinn samsvarandi í 73 crn. Loks notaði Árni betri við í trélegginn, birki í stað furu og klæddi slitföt hans með leðri í stað járns og síðar bíldekkjagúmmíi. Þessar umbætur urðu til þess að líkantsþung- inn dreifðist jafnar um gervifótinn og stúfurinn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.