Læknablaðið - 15.09.1996, Qupperneq 54
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
660
íðorðasafn lækna 81
Heilkenni Tourettes
(framh.)
Glöggur lesandi hringdi og
spurði hvort ekki væri réttara að
nota samsetninguna heilkenni
Tourettes heldur en Tourette
heilkenni, sem undirritaður
hefur notað í tveimur síðustu
pistlum. Því er til að svara að í
72. pistli var skýrt frá þeirri
reglu Orðanefndar að nafnheiti
(eponym) verði framvegis skráð
í íðorðasafnið til jafns við önnur
samheiti, en þá þannig að fyrst
komi nafn þess, sem fyrirbærið
er kennt við, með réttum er-
lendum rithætti, þá eignar-
falls-,s“ og loks kerfisheitið, svo
sem heilkenni eða sjúkdómur.
Þó yrði eignarfalls-,s“-i sleppt
■þegar rík hefð væri fyrir slíku. I
samræmi við þessa meginreglu
og undantekninguna hefur und-
irritaður því skrifað Tourette
hcilkenni, þar sem honum
fannst heitið oftast koma þann-
ig fyrir í tiltækum erlendum
gögnum. Með skráningarregl-
unni er hins vegar ekki verið að
taka afstöðu til þess hvað er rétt
og hvað er rangt, heldur er verið
að gæta þess að hin erlendu
nöfn finnist auðveldlega á sín-
um stað í stafrófsröð íðorða-
safnsins. Líklegt er að rétt sé,
samkvæmt íslenskri málvenju,
að fyrst komi mannsnafnið, þá
eignarfalls-,s“ og loks kerfis-
heitið, og að heitið sé eitt sam-
sett orð en ekki tvö. Ritað verði
þá Tourettesheilkenni alveg eins
og Ásgrímssafn og Jónshús.
Baldur Jónsson, forstöðumaður
Islenskrar málstöðvar, var
spurður álits og taldi hann enga
fasta reglu gilda um meðferð er-
lendra heita. Sjálfur sagðist
hann heldur amast við eignar-
falls-,s“-inu og fremur kjósa
tengistrik, og myndi því rita
Tourette-heilkenni. Hvað sem
þessu líður er það sjálfsagt gott
stílbragð að nota einnig öðru
hvoru samsetninguna heilkenni
Tourettcs.
Kækir, kippir, taktar
Umræðan unt Tourette heil-
kenni hófst með beiðni for-
manns íslensku Tourette sam-
takanna urn að tekin yrðu til
umræðu nokkur heiti sem tengj-
ast heilkenninu. Brýnasta verk-
efnið sagði formaðurinn vera að
finna íslenskt heiti á þær sér-
stöku hreyfitruflanir sem á
frönsku nefnast tic. Þær hafa
verið nefndar kækir, en þar sem
kækir eru bæði taldir ávana-
fyrirbæri og viðráðanlegir (en
tic hvorugt) finnst meðlimum
samtakanna það heiti, kækir,
ekki gefa rétta mynd af fyrir-
bærinu. Gísli Jónsson, fyrrver-
andi menntaskólakennari á Ak-
ureyri, hafði aðspurður komið
með þá hugmynd að hreyfing-
arnar mætti nefna takta. Undir-
ritaður Ieggst gegn því með
þeirri röksemd að taktur sé
samheiti við kæk og sé fyrst og
fremst notað um sérviskulega
tilburði í fasi eða framgöngu. I
síðasta pistli kom fram að starfs-
hópur Orðanefndar hefði þegar
tekið upp íslenska heitið kippur
fyrir franska orðið tic. Heitið
kippur er hlutlaust og hefur
ekki fengið neina dýpri merk-
ingu eins og heitið kækur virðist
hafa gert. Þannig má tala um
hreyfíkippi, svo sem andlits-
kippi, axlakippi og útlimakippi,
eða hijóðkippi, svo sem ræsk-
ingar, nefhljóð og stunur. Von-
andi geta þessi heiti komið að
tilætluðum notum og náð að
festast í málinu.
Að lokum vill undirritaður
leggja til að íslenska heitið sora-
kjaftur verði ekki notað um það
sem á alþjóðlegu læknamáli
nefnist coprolalia. Sorakjaftur
er gróft orð og verður án efa
fljótt niðrandi. Völ er á mörgu
öðru, svo sem gróft orðbragð,
ljótt orðbragð, grófmæli, dóna-
tal eða munnsöfnuður.
Hátækni
Nýyrðið hátækni hefur verið
áberandi í fjölmiðlunum á ný-
liðnum vikum og mánuðum,
oftast í samsetningunni há-
tæknisjúkrahús. Það finnst
hvorki í íðorðasafni lækna, Is-
lensku alfræðiorðabókinni né í
íslenskri orðabók. Undirritað-
ur veit ekki hver á heiðurinn af
samsetningunni, né hver er skil-
greining hugtaksins hátækni.
Hugmyndin er í sjálfu sér ágæt.
I hugann koma orð eins og há-
fermi, háhiti. hámark, háskóli
og hátign, og lesandinn fær þá
hugmynd að hátæknin gnæfi yfir
aðra tækni. Án aðstoðar gæti
honum í sakleysi sínu dottið í
hug að hátæknisjúkrahús
gnæfði yfir önnur hvað varðar
fjölbreytni og gæði rannsókna
og lækninga og að hátækni-
sjúkrahús væri þess vegna gott
sjúkrahús. Það má þó víst ekki
verða. Áróðursmeistararnir
ætlast til þess að áheyrandinn
skynji aðra merkingu, þá að
Landspítali og Borgarspítali séu
vondir staðir af því báðir séu
hátæknisjúkrahús. Á síðasta ári
var þess einnig getið að fæð-
ingadeild Landspítala væri orð-
in hátæknideild og urn leið gefið
í skyn að slíkt væri ekki gott.
Mikið gera orð verið varasöm.
Jóhann Heiðar Jóhannsson