Læknablaðið - 15.09.1996, Qupperneq 62
666
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Mikil sölulækkun á vítamínum
sem skráð eru sem lyf (1)
Dagskammtar á 1000 íbúa/dag
1989 1992 1995 2. árs- fjórðungur Heildar- summa
Hrein fjölvítamín 10,06 7,04 3,87 61,5%
Vítamín A og D 7,77 7,04 4,87 37,3%
Vítamín Bl, B6 og B12 0,61 0,47 0,24 60,7%
Vítamín B komplex 28,26 21,13 13,35 52,8%
Vítamín C 48,44 41,83 23,51 51,4%
Önnur óblönduð vítamín 0,38 0,34 0,16 57,9%
Öll vítamín 95,87 77,51 46,0 52,0%
Kalsíum 10,59 3,46 1,92 81,9%
Mest lækkun varð á tímabilinu 1992-1995, en sérstaklega á árinu 1995. Annaðhvort kaupir fólk minna
af vítamínum eða salan hefur færst í aðrar verslanir.
(l)Einungis sala í apótekum.
Landlæknir
Fréttatilkynning
Meðferð algengs heilsuvanda í Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði 1996-7
Hvíldar- og hressingardvöl
með áherslu á grænmetisfæði og
leirböð hafa verið aðalsmerki
Heilsustofnunar.
Auk hefðbundinnar einstak-
lingsmeðferðar í Heilsustofnun
er í boði margvísleg fræðsla og
meðferð sem miðar að því að
endurhæfa og koma í veg fyrir
sjúkdóma.
í Heilsustofnun er í boði
möguleiki á:
1. Mat á áhættuþáttum sjúk-
dónia - ráðleggingar,
fræðsla.
2. Almenn líkamsþjálfun með
áherslu á þrek- og þolauk-
andi æfingar.
3. Sérhæfð líkamsþjálfun,
sjúkraþjálfun og endurhæf-
ing.
4. Megrun með samhæfðum
stuðningi fagfólks - einstak-
lingsmeðferð eða í hóp.
5. Streitulosun með áherslu á
hvíld, slökun, hugarþjálfun
og sjúkranudd.
6. Verkjameðferð þar sem
hægt er að takast á við
vandamál eins og vefjagigt,
bakverki og afleiðingar háls-
hnykks - einstaklingsmeð-
ferð eða í hóp.
7. Krabbameinsendurhæfing
með áherslu á andlega og
líkamlega uppbyggingu.
8. Afreykinganámskeið - viku-
dvöl.
Fræðsla og meðferð byggir á
stjórnun og skipulagi meðferð-
arteymis auk sérhæfðrar ráð-
gjafar. Mikil áhersla er lögð á
stuðning og forvarnir gegn sjúk-
dómum.
Kostnaður dvalargesta er á
bilinu 8.400 til 15.400 á viku eft-
ir stærð og búnaði herbergja.
Sjúkrasjóðir verkalýðsfélaga,
félagsmálastofnanir, trygginga-
félög og fyrirtæki styrkja skjól-
stæðinga sína í sumum tilvikum
til þessarar dvalar.
Markmið dvalar er að hjálpa
einstaklingum að takast á við
heilsufarsvandamál sitt þannig
að þeir geti sjálfir unnið að því
að bæta líðan sína enn frekar
þegar dvöl er lokið.
Læknum eru kynntar niður-
stöður við útskrift og lagt er á
ráðin um framhaldið.
Guðmundur Björnsson
yfirlæknir