Læknablaðið - 15.09.1996, Page 63
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
667
Niðurstaða starfshóps á vegum landlæknisembættisins
Tímabært að hefja undirbúning
að rekstri sjúklingahótels
Niðurstaða könnunar á veg-
um landlæknisembættisins um
þörf á sjúkrahóteli eða sjúk-
lingahóteli hérlendis sýnir að
um 20% sjúklinga gæti hugsan-
lega nýtt sér vist á sjúklingahót-
eli í stað sjúkrahúss. í framhaldi
af þeirri könnun kynnti starfs-
hópur á vegum landlæknisem-
bættisins sér rekstur sjúklinga-
hótela í Lundi og Kaupmanna-
höfn og telur starfshópurinn að
tímabært sé að hefja undirbún-
ing að rekstri slíks sjúklingahót-
els hérlendis.
A sjúklingahóteli eru vistaðir
þeir sem eru á batavegi eftir
meðferð á sjúkrahúsi, geta ekki
enn búið heima fyrir en þurfa
ekki daglega á sérhæfðri þjón-
ustu sjúkrahússins að halda.
Læknar ákveða hvaða sjúkling-
um henti dvöl á sjúklingahóteli
eftir meðferð á spítala og hversu
lengi. Meðal starfsliðs eru
hjúkrunarfræðingar sem fylgj-
ast með líðan sjúklinga og gera
læknum spítalans viðvart komi
upp vandamál í kjölfar með-
ferðar. Því er nauðsynlegt að
slíkt hótel sé á sömu lóð og
sjúkrahús til að hægt sé að nýta
þjónustu spítalans, ekki síst
göngudeildar- og bráðaþjón-
ustu.
Víða erlendis hafa sjúklinga-
hótel sannað gildi sitt og með
aukinni leit að nýjum og ódýrari
leiðum í heilbrigðisþjónustunni
hefur umræða um sjúklingahót-
el einnig farið vaxandi hérlend-
is. Landlæknisembættið átti
frumkvæði því að sjö manna
hópur frá fjórum sjúkrahúsum
ásamt fulltrúa embættisins
kynnti sér rekstur sjúklingahót-
ela í Lundi og Kaupmannahöfn
og kynnti starfshópurinn
skýrslu sína nýverið. Halldór
Jónsson framkvæmdastjóri
FSA, einn nefndarmanna, sagði
að reynsla erlendis væri góð,
kostnaður af dvöl sjúklinga á
slíku hóteli væri aðeins fjórð-
ungur til helmingur af því sem
dvöl á bráðadeild kostaði. Ljóst
væri að hluti sjúklinga gæti nýtt
sér þjónustu sjúklingahótels
enda væri tryggt að þeir hefðu
aðgang að göngudeildar- eða
bráðaþjónustu sjúkrahússins ef
nauðsyn krefði. Þannig mætti
segja að verið væri að færa hluta
þjónustunnar og draga úr kostn-
aði án þess að það kæmi niður á
meðferð sjúklinga. í kynnis-
ferðinni fengust meðal annars
þær upplýsingar að ekki væri
góð reynsla af því að blanda
saman sjúklingum og almenn-
um hótelgestum og að ekki væri
heldur talið ákjósanlegt að hafa
sjúklingahótel innan veggja
spítalanna.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðismálaráðherra sagði
þennan kost án efa verða í boði
hérlendis, spurning væri bara
hvenær og hvernig. Hún varp-
aði því fram að til dæmis mætti
kanna hjá Reykjavíkurborg
hvort hægt væri að nýta húsnæði
Fæðingarheimilisins á þennan
hátt fyrir sjúklinga af Landspít-
alanum.
Leiðrétting
Merkingar snerust við á súlurit-
um á myndum 1 og 2 í grein
Sveins Magnússonar á bls. 595 í
síðasta tölublaði. Súlurmerktar
karlar áttu við konur og öfugt
og leiðréttist þetta hér með.
Glætan!
Frestun
Vegna uppsagna heilsugæslulækna hefur veriö
ákveðið að fresta þemadegi um unglinga, sem
halda átti laugardaginn 14. september næstkom-
andi, um óákveðinn tíma.
Thorarensen Lyf ehf