Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1997, Page 9

Læknablaðið - 15.01.1997, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 9 urs- og kynjadreifing, orsakir slysa, ástand sjúklings við komu á sjúkrahúsið, tíðni og teg- und annarra áverka, aðgerðartími, blóðgjafir í aðgerð, legutími, forsendur aðgerðar, tegund lifraraðgerðar, fylgikvillar og dánartíðni. Lifr- aráverkar voru flokkaðir samkvæmt ákvarðanakvarða-90 (AIS-90) og heildar- áverkastig (injury severity score, ISS) var reiknað út fyrir hvern sjúkling. Niðurstöður: Á árunum 1968-1993 gekkst 41 sjúklingur undir aðgerð við lifraráverka á Borgarspítalanum, 28 karlar og 13 konur. Sjúklingarnir voru á aldrinum fimm til 78 ára, miðtala aldurs 20 ár og var fjórðungurinn börn undir 10 ára aldri. Lokaðir áverkar voru 84% og voru umferðarslys algengasta orsökin. Sautján sjúklingar (42,5%) voru í blæðingar- losti við komu á sjúkrahúsið (efri blóðþrýst- ingsmörk undir 90) og 12 (29%) voru enn í losti við upphaf aðgerðar. Flestir sjúklinganna höfðu aðra áverka í kviðarholi eða annars stað- ar. Að meðaltali hafði hver sjúklingur 2,2 ann- ars konar áverka. Blóðgjafir í aðgerð, aðgerð- artími og legudagafjöldi voru afar breytileg en miðtölur þeirra voru 1,4 lítrar, 100 mínútur og 15 dagar. Algengustu ábendingar fyrir aðgerð voru lost, vökvi í kviði sem sást við ómskoðun og merki um lífhimnuertingu. I 51,3% tilfella var lifrin blæðandi þegar aðgerð hófst en hjá tæplega helmingi sjúklinganna var hætt að blæða. Blæðingu tókst oftast að stilla með saumum en þrír sjúklingar gengust undir meiri- háttar lifrarhögg (resection) og lifðu þeir allir. Einn þessara þriggja hafði, auk sprunginnar lifrar, rifu í holæðina (v. cavae). Meiriháttar áföll (complications) voru 20 og var sýking í kviðarholi og nýrnabilun algengust þeirra. Sjö sjúklingar létust (17%) en aðeins einn úr lifrar- blæðingu á skurðarborðinu. Aðrir létust af völdum heilaáverka, brjóstholsáverka eða fjöl- líffærabilunar vegna mikils heildaráverka. Sjötíu og einn af hundraði reyndist hafa lítinn eða miðlungsáverka á lifrinni (I. eða II. gráðu) en aðrir höfðu meiriháttar áverka af gráðu III eða IV. Tuttugu og þrír sjúklingar (56%) voru með heildaráverkastig undir 16, einn þeirra lést en þar var um að ræða eldri sjúkling með skorpulifur og illkynja æxli í henni sem rifnaði. Aðrir sjúklingar sem létust voru allir með heildaráverkastig 41 eða hærra. I þessa rann- sókn voru aðeins teknir með þeir sjúklingar sem gengust undir aðgerð en vaxandi tilhneig- ing hefur verið til þess á seinni árum að með- höndla lifraráverka án aðgerðar. Á árunum 1988-1993 voru sjö sjúklingar af 15 meðhöndl- aðir án aðgerðar. Ályktun: Flestir þættir sem kannaðir voru í þessari rannsókn reyndust svipaðir og í öðrum rannsóknum sem birtar hafa verið. Dánartíðni er lág ef borið er saman við erlendar greinar sem fjalla um samsvarandi sjúklingahóp og okkar þar sem flestir hafa lokaðan áverka. Enginn sjúklingur með eðlilega lifur fyrir slysið dó, nema að hann hefði heildaráverkastig upp á 41 eða hærra. Það ásamt lágri dánartíðni, bendir til þess að meðferðin hafi verið í háum gæðaflokki. Inngangur Næst á eftir milta er lifrin það líffæri í kviðar- holi, sem algengast er að skaddist við lokaðan áverka (1). Við opinn áverka er hins vegar algengast að lifrin skaddist (2). Þegar um síð- ustu aldamót var áverki á lifur talinn eitt hið vandasamasta sem skurðlæknir gæti staðið frammi fyrir (3). Svo getur enn verið og vegna fjölgunar umferðarslysa hefur þessum áverk- um fjölgað mikið. Árangur meðferðar við lifraáverkum hefur þó stórbatnað á síðustu áratugum (2,4). Tilgangur þessarar rannsókn- ar var að kanna árangur af aðgerðum við lifr- aráverka á Borgarspítalanum 1968-1993, sér- staklega með tilliti til dánartíðni og bera saman við niðurstöður rannsókna frá öðrum löndum. Efniviður og aðferðir Sjúkraskrár allra sjúklinga sem gengust und- ir skurðaðgerð vegna lífraáverka á tímabilinu 1968-1993 voru kannaðar með afturskyggnum hætti. Alls var um að ræða 41 sjúkling. Athug- uð var aldurs- og kynjadreifing, orsakir slysa, ástand sjúklings við komu á sjúkrahús, ábend- ingar aðgerðar, tegund lifraraðgerðar, aðrir áverkar og meðferð við þeim, aðgerðartími, blóðgjafir í aðgerð, legutími, fylgikvillar og dánartíðni. Jafnframt var reiknað út heildar- áverkastig (injury severity score, ISS) fyrir hvern sjúkling, byggt á áverkakvarða-90 (abbreviated injury severity scale, AIS-90 (5,6)). Heildaráverkastigið er reiknað þannig út að líkamanum er skipt í eftirtalin fimm svæði: höfuð og háls, andlit, brjóstkassa og brjósthol, kvið og kviðarhol og útlimi. Alvar- legasta áverkanum á hverju svæði eru gefin stig frá einu og upp í fimm og er ákverkakvarði-90 til leiðbeiningar um hvernig það skuli gert.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.