Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.1997, Qupperneq 33

Læknablaðið - 15.01.1997, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 33 umluktir dauðum húðfrumum en sníkjudýrin grafa sig sjaldan niður í hornhimnuna. Með reglulegu millibili stinga maurarnir oddhvöss- um munnlimunum og sogrananum (mynd lb) niður í húðina og sjúga þar vessa sem síðan er meltur áður en næstu máltíðar er neytt (3). Sjúkdómseinkenni hjá köttum eru mismikil. Oft eru kettirnir alveg einkennalausir og getur reynst erfitt að staðfesta litla sýkingu (3). Sum- ir kettir fá þó mikinn kláða og greinilegar bólg- ur eða þroti myndast í húðinni þar sem maur- arnir halda til. Fyrst eftir smitun verður flasa áberandi í feldinum (3). Snögghærðir kettir halda sníkjudýrinu iðu- lega í skefjum með því að sleikja feldinn og fjarlægja með því móti maura og egg. A þeim getur maurasýking því dulist lengur en á loðn- um köttum þar sem sýkingin getur magnast hraðar upp. Auknum maurafjölda fylgir aukin hreisturmyndun á húð, kláði eykst og hárlausir blettir geta myndast. Einkenni Cheyletiella maura hjá mönnum Útbrotum eftir C. parasitovorax var fyrst lýst af Lomholt í Kaupmannahöfn árið 1918 (5). Útbrotin sem maurarnir valda á mönnum koma oftast á þann stað sem sýkt dýr hefur snert sjúklinginn. Þegar haldið er á köttum snerta þeir oft kvið og læri sem skýrir algengi útbrota á þessum stöðum. Ekki er nauðsynlegt fyrir köttinn að snerta bera húð til að maurinn geti borist á milli. Oftast sjást margar, rauðar kláðabólur en stundum þinur sem líkjast mýbiti. Sumar þeirra hafa litlar blöðrur efst. Þegar útbrotin hafa verið á húðinni í nokkurn tíma sjást stundum merki vefjaskemmda efst á útbrotunum. Nokkur munur getur verið á útbrotum eftir því hvort bitið orsakast af Cheyletiella maur eða til dæmis fló. Flóarbit koma oft á ökkla, undir teygju sokka eða undir belti. Sjáist bitin dreifð um allan líkamann er orsökin stundum fugla- eða spendýrafló. Dýr sýkt af Cheyletiella maurum, er hægt að meðhöndla og ráða þannig niðurlögum óvær- unnar. Bit á mönnum eru hins vegar með- höndluð með sterasmyrslum sem borin eru á útbrotin og andhistamín lyfjum. Umræða Ekki er vitað til að áttfætlumaurar sem til- heyra ættkvíslinni Cheyletiella hafi áður fundist á mönnum, hundum eða köttum hér á landi. Cheyletiella maurar fundust þó haustið 1986 í ull af angórakanínum í spunaverksmiðju Ala- foss (Matthías Eydal, munnlegar upplýsingar). Ekki er vitað hvort ullin var af íslenskum kan- ínum eða hvort maurarnir bárust hingað til lands með innfluttri ull. Árið 1990 var innflutn- ingur hunda og katta til landsins heimilaður að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem meðal annars kveða á um að dýrin skuli höfð í sóttkví fyrst eftir komuna til landsins í Einangrunar- stöð ríkisins í Hrísey. Þar fylgist dýralæknir með heilbrigði dýranna og framkvæmir eða lætur framkvæma ýmsar rannsóknir sem miða að því að hindra að sníkjudýr eða smitsjúk- dómar berist til landins. Undanfarin sex ár hafa ríflega 100 kettir og um 300 hundar verið fluttir til Islands frá 15 löndum í Evrópu, N- Ameríku og Afríku. Þótt margar tegundir sníkjudýra sem ekki eru hér landlægar hafi verið staðfestar í eða á innfluttum hundum og köttum í Einangrunarstöð ríkisins í Hrísey (6), hefur eftir því sem best er vitað til þessa ein- ungis ein þeirra, hársekkjamaurinn Demodex canis, borist út úr einangrunarstöðinni með hundi sem þegar hafði verið afhentur eiganda þegar sníkjudýrið fannst (7). Líkur benda til að áttfætlumaurinn C. parasitovorax hafi borist til landsins með inn- fluttum gæludýrum. Þótt spjótin beinist eink- um að hundum og köttum gætu kanínur og jafnvel menn hafa borið maurinn hingað til lands. Engar athuganir hafa verið gerðar á því hvort C. parasitovorax finnist á kanínum hér á landi. Líklegt er þó að óværan hafi borist ný- lega til landsins því sjaldnast líður langur tími frá því að maurinn fer að fjölga sér verulega á köttum eða hundum, þar til einkenni koma fram á dýrunum eða eigendum þeirra. Hér á landi hafa bit á fólki, önnur en mýbit og stungur eftir vespur og hunangsflugur, oft- ast verið orsökuð af fuglaflóm Ctenocephalides spp. I sumum tilvikum hafa rottuflær Nosop- syllus fasciatus, rottumaurar Ornynthonyssus bacoti eða veggjalýs Cimex lectularius verið á ferðinni (8,9). Cheyletiella maurar hafa nú bæst í þennan hóp en bit af þeirra völdum eru algeng á fólki í nágrannalöndunum. Þakkir Matthías Eydal, Sigurður H. Richter og ónafngreindur ritdómari lásu handrit og bentu á ýmislegt sem betur mátti fara.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.