Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1997, Side 37

Læknablaðið - 15.01.1997, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 35 Tölfræði til hvers? Nokkrar ábendingar Örn Ólafsson Ólafsson Ö What is statistics for? Few comments Læknablaðið 1997; 83: 35-8 Með auknum fjölda rannsóknarverkefna innan læknisfræðinnar hafa viðfangsefnin orð- ið æ flóknari og kallað á enn frekari notkun tölfræði. Þó að forsendur fyrir beitingu töl- fræði séu óbreyttar þá eru aðrar áherslur en áður í notkun á henni, þar sem auðveldara er nú með tölfræðiforritum að gera flókna út- reikninga og prófa fleiri tilgátur. í undirbún- ingi rannsókna er því hætta á að minna sé lagt upp úr vali á tilgátum. Verði tilgáturnar marg- ar sem prófaðar eru tölfræðilega í sömu rann- sókn, aukast líkur á að „samband" finnist milli þátta sem ekki tekst að staðfesta síðar. Veik- leikar sem kunna að vera í undirbúningi og framkvæmd rannsóknar og síðan meðhöndlun gagna verða sjaldnast bættir upp með útreikn- ingum. Því er í þessari grein vakin athygli á og skýrð nokkur tölfræðiatriði þessu tengd, og sem að fenginni reynslu höfundar eru oft van- metin eða misskilin. Gert er ráð fyrir að les- andinn kunni einhver skil á tölfræði. Vanti frekari skýringar, er bent á heimildaskrá (1-6). Tölfræðileg ályktun, notuð til dæmis við samanburð, byggir á líkindum. Ef breyting verður á tíðni ákveðinna sjúkdómstilfella frá Frá Bókasafni Landspitalans, Eirbergi. Fyrirspurnir, bréfa- skipfi: Örn Ólafsson, Bókasafn Landspítalans, Eirbergi, 101 Reykjavík. einu tímabili til annars og leita á orsaka fyrir því, þá verður fyrst að athuga hvort breytingin sé marktæk! Áður en það er gert þarf meðal annars að huga að eftirfarandi. Hvaða spurningum á að reyna að svara með rannsókn? Grundvallaratriði er, að þær spurningar sem svara á með rannsókn séu ljósar svo rannsókn- in verði markviss. Óljósar spurningar verða ekki bættar upp með nákvæmum mælingum. Áður en rannsókn er gerð þarf einnig að skoða hvernig vinna á úr niðurstöðum svo þær nýtist sem best. Oft er til dæmis áhugavert að athuga hvort tíma- eða aldursleitni (trend) er í mæl- ingum. Skipulagning eða hönnun rannsóknar Þegar tölfræði er notuð þarf að skipuleggja og framkvæma rannsókn með tilliti til þess. í rannsókn er venjulega best að nota handa- hófsúrtak sjúklinga (slembiúrtak, random sampling) sé þess kostur. Algengt er þó að notað sé kerfisbundið úrtak (systematic sampl- ing) og verður þá að lýsa hvernig sjúklingar eru valdir og hverjir útilokaðir. Dæmi um kerfis- bundið val rannsóknarhóps væri hópur allra með ákveðinn sjúkdóm sem hafa verið lagðir inn á tiltekin sjúkrahús á tilteknum tíma. Áður en hægt er að yfirfæra niðurstöðu rannsóknar, á kerfisbundnu úrtaki, á alla með sama sjúk- dóm (þýðið), þarf að athuga hvort hópurinn sem rannsakaður er endurspegli þýðið. Við athugun á því er stuðst við lýsingu og flokkun gagna.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.