Læknablaðið - 15.01.1997, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
41
Hugleiðingar um starfskjör heimilislækna
Opið bréf til stjórnar FÍH
Fyrir um ári ritaði ég bréf til
stjórnar FÍH. Flestar hugleið-
ingar mínar þar eru enn í fullu
gildi enda menn í vissum skiln-
ingi á byrjunarreit þar sem
kjaranefnd hefur ekki lokið
störfum, reyndar hefur ekki til
hennar spurst og því ekki víst að
staðið verði við samninga af
hálfu ríkisvaldsins. Ef til þess
kemur, vil ég gera það að tillögu
minni að menn samhæfðu við-
brögð sín með því að framlengja
tímabundinni ráðningu um þrjá
mánuði. Ég veit að sumir vilja
rjúka á dyr, aðrir vilja ekkert
hafast að, en með tillögu minni
geta menn náð áttum. Enda er
ég ekki svartsýnn á að þetta mál
leysist. Ráðuneytið er fullt af
hjúkrunarfræðingum, sem flýtir
ekki fyrir okkar málum og þeir
hefðu ef til vill ekkert á móti því
að við misstum þolinmæðina,
en þeir hafa það varla af að
stoppa okkur eins og sjúkralið-
ana á sínum tíma.
Hófleg svartsýni er af hinu
góða. Fyrir ári var ég eini lækn-
irinn í okkar hópi hér fyrir aust-
an, sem átti frekar von á því að
til langrar vinnudeilu kæmi. Ég
studdi þó aðgerðina eftir að
menn höfðu dregið úr árásum á
sérfræðinga. Þessi mikla bjart-
sýni held ég að hafi verið mönn-
um til mikils skaða þegar alvara
lífsins kom í ljós. Fæstir höfðu
gert viðeigandi ráðstafanir í
fjármálum. Prýstingur á samn-
inganefnd var því mikill og nið-
urstaðan ekki verri en ég átti
von á við þær aðstæður. Kjara-
nefndarvinna gæti einnig leitt af
sér möguleika á uppstokkun í
skipulagi sjúkrahúsmála. Hér á
Austurlandi væri hægt að leggja
niður litlu sjúkrahúsin og breyta
þeim í hjúkrunarheimili og
koma upp alvöru sjúkrahúsi
sem útibúi frá FSA. Einnig
mætti taka til hendinni víðar á
landinu einkum á Norð-Vestur-
landi. Hægt væri einnig að losa
lækna úr lyfsölu og losa þá við
að þjarka við heimamenn um
launauppbót, eins og víða tíðk-
ast í einmenningshéruðum.
Reyndar held ég að þessi upp-
stokkun sé þegar hafin án þess
að vera í tengslum við vinnu
kjaranefndar. Veruleg tekju-
skerðing hefur átt sér stað á Fá-
skrúðsfirði og Eskifirði og þá í
tengsluni við breytingar á lyf-
sölu. Á þessum stöðum hafa
losnað stöður og vil ég hvetja
menn til að hafa samráð við FÍH
áður en þeir sækja um þær stöð-
ur og semja um launauppbót
þar til kjaranefnd hefur lokið
störfum. Ef launin lækka er
hætt við að viðmið kjaranefndar
verði annað og laun sem hún
úrskurðar einnig lægri.
Sigurður Gunnarsson
heilsugæslulæknar
Hrauni 2, 765 Djúpivogur
3. Ráðstefna í Osló 13.-15. maí
1997: Norðmenn ætla að halda
ráðstefnu undir titlinum; The
physician role in transition: Is
Hippocrates sick? Ég hef verið
beðinn að taka þátt í undirbún-
ingi ráðstefnunnar og að sitja í
vísindaráð hennar. Petta er til-
komið vegna þess að ég hef iðu-
lega hitt þá lækna sem hafa haft
mestan áhuga á vinnuverndar-
málum lækna á öðrum fundum
og ráðstefnum. Ég tel þessa ráð-
stefnu athyglisverða. Hún er al-
þjóðleg og á háu fræðilegu stigi.
Hún fjallar um athuganir á sér-
stöðu lækna sem hóps og í
vinnu. Hún mun fjalla um að-
stæður yngri lækna. Ráðstefnu-
stjóri í Noregi er Olaf Aasland
mun hann á næstunni snúa sér
til LÍ og fara fram á fjárstuðning
vegna ráðstefnunnar.
Reykjavík 11. desember 1996,
Vilhjálmur Rafnsson