Læknablaðið - 15.01.1997, Side 59
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
55
Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði
Meðferð á algengum heilsuvanda
í Heilsustofnun verður frá áramótum í boði auk hefðbundinnar einstaklingsmeðferðar:
* Mat á áhættuþáttum sjúkdóma - ráðleggingar og fræðsla.
* Almenn Ifkamsþjálfun með áherslu á þrek- og þolaukandi æfingar.
* Sérhæfð líkamsþjálfun, sjúkraþjálfun og samhæfð endurhæfing.
* Megrun - einstaklingsmeðferð eða í hópi.
* Streitulosun með áherslu á hvíld, slökun, hugarþjálfun, sjúkranudd og böð.
* Verkjameðferð þar sem tekist er á við vandamál eins og vefjagigt, bakverki og
afleiðingar hálshnykks - einstaklingsmeðferð eða í hópi.
* Krabbameinsendurhæfing, áhersla á andlega og líkamlega uppbyggingu - hópur.
* Afreykinganámskeið hópur- vikudvöl.
* Námskeið til að breyta alvarlegum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma.
Virk teymisvinna er til staðar með þátttöku lækna, hjúkrunarfræðinga og sérhæfðs
starfsfólks við meðferðardeildir.
Læknum eru kynntar niðurstöður við útskrift dvalargests og lagt er á ráðin um fram-
haldsmeðferð og eftirlit. í Heilsustofnun eru starfandi sérfræðingar í endurhæfingu,
lyflækningum, hjartasjúkdómum og meltingarsjúkdómum.
Kostnaður dvalargesta er kr. 1200 til 2200 kr. á sólarhring.
Guðmundur Björnsson yfirlæknir
Meginástæðan er líklega sú
að fagaðilum sem skilja þessa
þróun hefur ekki tekist að koma
réttum skilaboðum til stjórn-
valda eða að ráðandi aðilar hafa
ekki tekið frásagnir fagaðila
trúanlegar. Samverkandi orsök
og ef tii viil meginorsök þessa er
að áhrif fagaðila hafa að mestu
verið þurrkuð út úr aðalstjórn-
um sérgreinasjúkrahúsanna. f
aðalstjórn Sjúkrahúss Reykja-
víkur hafa fagaðilar eitt atkvæði
af sjö og svipaða sögu má segja
um vægi fagaðila í stjórnum
annarra sérgreinasjúkrahúsa.
Það er of löng leið frá fram-
kvæmdastjórn til ráðandi aðila.
Ólafur Ólafsson landlæknir
Orðabókarsjóður
læknafélaganna
Um áramótin tekur gildi hér á landi Classification of
Surgical Procedures. Þetta verk kemur samtímis út í
íslenskri þýðingu: Norræn flokkun aðferða og að-
gerða í skurðlækningum. Bókinni fylgir diskur með
íslenska textanum til notkunar í tölvu.
Sé bókin pöntuð fyrir 15. janúar er verðið 3500 krónur.
Þeir sem áhuga hafa á að gerast áskrifendur á þessu
verði, sendi pantanir sínar í bréfsíma Orðabókarsjóðs
lækna 564 4106.