Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
545
Mynd 2 sýnir hlutfall mismunandi þvagtæm-
ingarmáta. Þeir sem nota bank slösuðust allir
1985 eða fyrr. Þeir sem nota einnota þvagleggi
hafa annað hvort slasast eftir 1985 og notað
einnota þvagleggi frá upphafi (11 einstakling-
ar) eða slasast fyrr, upphaflega notað bank en
þurft að söðla um vegna fylgikvilla þeirrar
þvagtæmingaraðferðar (sjö einstaklingar).
Tíu (29%) einstaklingar sögðust fá þvag-
færasýkingu án hita annað hvert ár, sjaldnar
eða aldrei. Sextán (46%) sögðust fá að meðal-
tali eina til fjórar þvagfærasýkingar á ári og níu
(26%) sögðust fá þvagfærasýkingu oftar en
fimm sinnum á ári eða vera með langvinna sýk-
ingu (tafla II).
Þegar spurt var sérstaklega um þvagfærasýk-
ingar með hita sögðust 29 (83%) sjaldan eða
aldrei fá þvagfærasýkingu með hita. Fimm
(14%) sögðust fá slíka sýkingu allt að fjórum
sinnum á ári og einn fimm sinnum eða oftar.
Tólf (44%) þeirra sem komu til starfrænna
rannsókna á neðri hluta þvagfæra voru með
þvagfærasýkingu á þeim tfma sem þeir komu í
rannsóknina.
Þrettán (38%) sögðu þvag leka oft í viku, sex
(18%) að þvag læki sjaldan og 15 (44%) aldrei.
Fimmtán (43%) hafa fengið blöðrusteina og
þrír (9%) nýrnaskjóðu- eða þvagleiðarastein.
Einn hefur haft bakflæði og misst annað nýrað
vegna þess.
Fig. 2. The number of paíients using dijferent methods of
bladder emptying among wheelchair-bound traumatic spinal
cord injured patients in Iceland 1973-1996.
Starfrænar rannsóknir á neðri hluta
þvagfæra: Alls tóku 27 einstaklingar þátt í
starfrænni rannsókn á neðri hluta þvagfæra, sjö
konur (26%) og 20 karlar (74%). Af þeim losa
12 (44%) þvag með einnota þvaglegg, níu
(33%) með banki, tveir (7%) með eðlilegum
hætti, tveir hafa inniliggjandi þvaglegg í þvag-
rás og tveir inniliggjandi þvaglegg á kvið.
Meðalaldur þátttakenda var 44 ár (23-66 ár)
þegar rannsóknin var gerð. Meðaltími frá slysi
var 14 ár (1-23 ár).
Alls voru 12 (44%) með blöðruþrýsting yfir
60 cmH^O, þar af átta sem losa þvag með banki
og tveir sem nota einnota þvagleggi
(p=0,0045). Sjö (26%) voru með blöðrurýmd
undir 200 ml og þrír (11%) til viðbótar með
rýmd á bilinu 200-300 ml. Af þeim sem losa
þvag með banki voru fimm (56%) með 200 ml
eða meira afgangsþvag eftir bank. Með við-
bragðsblöðru voru 25 (93%) og tveir (7%) voru
með lamaða blöðru. Ósamræmi milli ytri þvag-
blöðruhringvöðva og blöðruvöðva sást hjá 19
(69%). Samanburður niðurstaðna hjá þeim sem
losa þvag með banki annars vegar og einnota
þvagleggjum hins vegar er sýndur í töflu IV.
Röntgenrannsóknir: Alls komu 22 einstak-
lingar til einhvers konar röntgenrannsókna.
Nýrnaómanir voru gerðar hjá 17, 21 fór í
nýrnarit og samsætunýrnamyndatöku með
nýrnagaukulsmælingu, níu fóru í þvagfærayfir-
lit og sjö í hefðbundna nýrnamyndatöku með
skuggaefni.
Hjá 14 (64%) fannst ekkert óeðlilegt. Tvær
ómskoðanir á nýrum voru óeðlilegar, gamlar
nýmasýkingarbreytingar sáust í öðru tilvikinu
og vatnsnýra í hinu. Tveir voru með blöðru-
steina á þvagfærayfirliti. Sex (27%) voru með
víkkuð safnkerfi og einn greindist með bakflæði.
Aðrir fylgikvillar eftir útskrift (tafla II):
Nítján (54%) hafa fengið þrýstingssár, af þeim
hafa 12 (34%) lagst inn á sjúkrahús og þurft
sérhæfða skurðlæknismeðferð. Ef hópnum er
skipt með tilliti til tíma frá slysi sést að aðeins
einn þeirra sem slasaðist 1986 eða seinna (af
12) hefur fengið þrýstingssár en 18 af þeim 23
sem slösuðust fyrir 1986 (p=0,0003).
Table IV. Comparison of urodynamic parameters and frequency of bladder calculi accordinn to method of bladder emptying.
Maximal detrusor Functional capacity Residual volume History bladder
pressure over 60cmHrO under 200ml over 200ml calculus
N (%)N (%)N (%) N (%)
Intermittent catheterisation 2(17)* 2(17)*
Reflex voiding 8 (89) 4 (44)
p-value ________ 0.0045 0.36__________
‘Both were advised the use of anticholinergic medication " I he method ensures complete bladder drainage
5 (56)
None
6 (65)