Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
553
kerfis. Notuð var fleirtala að ofan um stefnur
og áform, vegna þess að landfræðilegar, félags-
legar og pólítískar kringumstæður geta verið
svo mismunandi milli landa og héraða.
I því félagslega og menningarlega umhverfi,
sem við hrærumst í, eru þróunarleiðir og -þarfir
hins vegar mjög líkar og í því sambandi teljum
við nauðsynlegt fyrir íslenskar heilbrigðis-
stéttir og stjórnvöld að fylgjast grannt með því
hvað er að gerast í sambærilegu félags- og
menningarumhverfi og má þar vísa til Norður-
landanna, Bandaríkjanna, Kanada og Ástralíu.
Á Norðurlöndum, einkanlega í Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi, eru fjarlækningar fagsvið í
mjög örri þróun. Hvað varðar gæði og kostnað
sjá heilbrigðisyfirvöld í þessum löndum mjög
mikla möguleika, faglega og skipulagslega, í
notkun upplýsingatækni. Sem dæmi má nefna
stefnumótun norskra heilbrigðisyfirvalda um
notkun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
sem þau nefna Mer helse for hver blT, Informa-
tionsteknologi for en bedre helsetjeneste, hand-
lingsplan 1997-2000 (2).
Yfirvöld margra landa gera sér jafnframt
grein fyrir því, að þessu fylgir mikil skipulags-
vinna og ákveðinn byrjunarkostnaður, en hvat-
inn hjá stjórnvöldum, einkanlega á Norður-
löndum en einnig víða í Vesturheimi, hefur ver-
ið að hér væri leið til að ná einhverjum böndum
utan um kostnaðarsprenginguna, en jafnframt
auka gæði og aðgengi.
Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir
Á Djúpavogi situr ungur heilsugæslulækn-
ir á stofunni með fimm ára snáða sér við hlið.
Sá er heldur illa haldinn í hægri handlegg eft-
ir að hafa dottið niður af tunnustafla. Fram-
handleggurinn er allur skældur og
röntgenmyndin sem tekin var sýndi skábrot
bæði í sveif (radius) og öln. Ungi læknirinn
hefur reynt að repónera, en tekst ekki að fá
fullnægjandi grip milli beinenda, eða sann-
færandi rétta legu. Vandræði; hvar á að leita
ráða? Jú, kveikja á tölvunni, tengjast netinu.
Stinga filmunni í filmuskannan og senda til
röntgendeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur,
ásamt ósk um að fá umsögn og leiðbeiningu
slysa- og bæklunarsérfræðings. Myndin er
send af skannanum ásamt þessum skilaboð-
um. Læknirinn bíður og nokkrum mínútum
síðar fær hann upphringingu eða ákall í tölv-
una, með leiðbeiningum og ábendingum,
ásamt boðum um að senda endurtekna mynd
eftir að hafa farið að leiðbeiningunum. Hann
gæti hugsanlega líka hafa fengið skilaboð um
að þetta væri það erfitt brot, að best væri að
senda peyja.