Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 65

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 583 Umsögn landlæknis um frumvarp til laga um gagnagrunna á heilbrigðissviði sem lagt var fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997-1998 Meginniðurstaða Tilgangur og markmið frum- varps til laga um gagnagrunna á heilbrigðissviði er óljós. Núgild- andi lög, sbr. einkum lög nr. 121/1989 um skráningu og með- ferð persónuupplýsinga, II.-IV. kafla, og reglur eru fullnægjandi fyrir gerð og vinnslu með slíka gagnagrunna á heilbrigðissviði. Ohæfa er, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, að skerða mannréttindaákvæði í nýsett- um lögum um réttindi sjúk- linga, sbr. 10., 15. og 17. gr., en þar er vísað til þess að heimild sjúklings þurfi að liggja fyrir til að nota megi upplýsingar um hann í vísindarannsókn, að upplýsingarnar séu trúnaðar- mál og að upplýsingarnar séu ekki aðgengilegar öðrum en viðkomandi heilbrigðisstarfs- mönnum. I samræmi við stefnu Heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins varðveitist gögn þar sem þau verða til og forðast verði að smíða einn miðlægan allsherjargagnagrunn með heilsufars-, ættfræði- og erfða- uppiýsingum um íslenska þegna enda vandséð hvernig tryggja megi persónuvernd í slíkum gagnagrunni. Landlæknir telur því frum- varpið óþarft. Telji löggjafin engu að síður að ástæða sé til að setja sérstök lög um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði telur landlæknir brýnt að tekið verði tillit til eftir- farandi sjónarmiða: 1. í ljósi ríkjandi laga um heil- brigðisþjónustu er eðlilegt að slíkur gagnagrunnur verði í vörslu landlæknis. Kjósi lög- gjafínn að veita einkaaðila á markaði heimild til reksturs slíks gagnagrunns skal sjálf- stæður aðili óháður pólitísku valdi veita leyfi til reksturs hans eins og gert er ráð fyrir með lögum um skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Sömuleiðis hafi slíkur óháður aðili eftirlit með starfseminni og afturkalli leyfið ef ekki er farið að fyrirmælum starfs- leyfis. Landlækni ber að hafa eftirlit með heilbrigðisstarfs- mönnum, sbr. lög um heil- brigðisþjónustu, I. mgr. 3. gr., en kveðið er á um í lagafrum- varpinu að vinna við slíkan gagnagrunn sé framkvæmd eða henni stjórnað af fólki með sérmenntun á sviði heil- brigðisþjónustu. 2. Tryggt verði að stjórnvöld hafi nauðsynlegan og óheftan að- gang að þeim heilsufarsgögn- um sem þeim eru nauðsynleg og með þeim hætti sem þeim hentar til að rækja lögbundið hlutverk sitt. Stjórnvöld mega ekki verða háð einkaaðila á markaði með sérleyfi um heilsufarsupplýsingar. Vakin skal athygli á því að samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, 2. mgr. 3. gr., skal landlæknir skipuleggja skýrslugerð heil- brigðisstarfsfólks og heil- brigðisstofnana og innheimta þær. Tryggt verði að landlækni verði auðveldað að sinna sínu lögbundna hlutverki. 3. Einkaréttur að upplýsingum hlýtur að skerða rétt ann- arra. Tryggt verði að heilsu- farsgögn nýtist, hér eftir sem hingað til, til vísindarannsókna í samræmi við lög um réttindi sjúklinga og að réttur sjúlkings til að hafna þátttöku í vísinda- rannsókn verði tryggður. 4. Ekki verði gengið á rétt þeirra sem safnað hafa og byggt upp heilsufarsgagnagrunna í sam- ræmi við gildandi lög og regl- ur. Réttur þeirra er stjórnar- skrárvarinn. 5. Verði gerður samningur við sérleyfishafa um gagnagrunn á heilbrigðissviði skal bera samninginn undir Alþingi. Nauðsynlegt er að aðgreina lögin og væntanlegan sérleyf- issamning en í frumvarpinu eru ráðherra færðar afar rúmar heimildir til samningsgerðar. Athugasemdir við frumvarpið Almennar athugasemdir Tilgangurinn með þessu frum- varpi er óljós enda vantar mark- miðslýsingu. Almennar bolla- leggingar um gagnsemi heilsu- farsupplýsinga í athugasemdum eru vel kunnar. Þess vegna hafa fjölmargir aðilar unnið að upp- byggingu gagnagrunna á heil- brigðissviði á Islandi. Jafnframt hefur landlæknisembættið unnið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.