Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
561
bandi einnig mikilsvert að huga að leiðum
annarra fjarlækningasamskipta á heilbrigðis-
netinu og hversu fýsileg þau eru, svo sem upp-
lýsinga- og gagnaskipti um einstaka sjúklinga
og sjúkdómstilvik milli heilsugæslustöðva og/
eða lækna.
Lokaorð
Upplýsingatæknin hefur nú þegar gjörbreytt
viðhorfum okkar til samskipta, fjarlægða,
fræðslu og afþreyingar. Ný viðhorf og sam-
skiptaleiðir skapa nýjar þarfir og úrlausnir á
flestum ef ekki öllum sviðum daglegs lífs okk-
ar. Þess hefur ef til vill ekki gætt svo mjög enn-
þá í samskiptum innan íslenska heilbrigðisgeir-
ans og í heilsukerfinu, en engu að síður hefur
þar þegar orðið mjög veruleg þróun í átt að því
umhverfi og veruleika fjarlækninga og fjar-
skipta, sem reynt hefur verið að kynna í þessu
yfirliti. Má þar nefna gjörbyltingu í skurðlækn-
ingum, sem þegar hefur haft áhrif á rekstur,
viðhorf og upplýsingatækni bæði innan og utan
sjúkrahúsa og mun enn frekar valda verulegri
breytingu á uppbyggingu og öllu samskipta-
kerfi heilbrigðisþjónustunnar. Annað og ef til
vill víðfeðmara dæmi er það raunverulega sam-
starf sem komið er á í fjarskipta- og fjarlækn-
ingamálum innan heilsugæslunnar og kerfisins
í heild með nýjum og samtengdum tölvukerf-
um heilsugæslustöðva (og sjúkrahúsa).
Fræðslu-, greiningar- og samráðsfundir um
breiðbandsflutningskerfi með gagnvirkri
myndrænni samveru um sjónvarps- og tölvunet
eru á góðri leið með að verða að daglegum við-
burðum, bæði innan stofnana, innanlands og
milli landa. Engu að síður eigum við íslend-
ingar talsvert stranga vegferð fyrir höndum,
þar til öll þau atriði sem fýsileg og nýtanleg eru
í fjarlækningum hafa verið samþætt í heilbrigð-
isnetinu, auk þeirra ómældu möguleika sem
bíða á veraldarvefnum.
Eins og fyrr segir, vitum við ekkert um
hvernig þessi samskiptaheimur mun líta út að
10 árum liðnum. Við erum hins vegar skyldug
til að halda vöku okkar og þetta yfirlit er svo-
lítil ábending um hvað okkur stendur til boða
nú þegar og á hvaða grunni verður að byggja.
HEIMILDIR
1. Stefnumótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskerf-
isins. Reykjavík: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
1997-1998.
2. Mer helse for hver blT. Oslo: Sosial- og helsedeparte-
mentet 1997.
3. Wright D, ed. Telemedicine and developing countries. A
report of Study group 2 of the ITU Development Sector. J
Telemed Telecare 1997; 4/Suppl. 2.
4. Olsson S. Telemedicin, en metod med stor potential. Nord
Med 1995; 110: 206-8.
5. Pedersen S, Hartviksen G. Telemedisin, en oversikt. Tids-
skr Nor Lægeforen 1994; 114: 1212-4.
6. Elford DR. Telemedicine in Northern Norway. J Telemed
Telecare 1997; 3: 1-22.
7. McGee R, Tangalos EG. Delivery of health care to the
underserved: potential contributions of telecommunica-
tions technology. Concensus confernce entitled Telemedi-
cine and Access to Care (see comments). Mayo Clinic
Proceedings 1994; 69: 1131-6.
8. Robb N. Tclemedicine may help change the face of medi-
cal care in Eastern Canada. Can Med Assoc J 1997; 156:
1009-13.
9. Quoted in Olsson S (4).
10. Rosengren D, Blackwell N, Kelly G, Lenton L, Glaston-
bury J. The use of telemedicine to treat opthalmologic
emergencies in rural Australia. In: Wootton R, ed.
Telehealth 1997, Proceedings. London: R Soc Med 1997:
165-9.
11. Palsson T, Brekkan A, Eiriksson A. Establishing a Natio-
nal Teleradiology and International Consultation Network.
In: Lemke HU, Inamura K, Jaffe CC, Vannier MW, eds.
‘95 CAR, Proceedings. Berlin: Springer Verlag 1995: 717-
22.
12. Reponen J, Palsson T, Kjartansson O, Ilkko E, Stprmer J,
Paivansalo M. Nordic Telemedicine Consultation Network
Using Internet. Lemke HU. Inamura K, Jaffe CC, Vannier
MW, eds. ‘95 CAR, Proceedings. Berlin: Springer Verlag:
723-8.
13. Rodriguez MJ, Arredando MT. del Pozo F, Gomez EJ,
Martinez A, Dopico A. A home telecare management sys-
tem. J Telemed Telecare 1995; 1: 86-94
14. Crowe BL. Cost-effectiveness analysis of telemedicine.
Wootton R, ed. Telehealth 1997, proceedings. London:
Royal Society of Medicine 1997: 20-5.
15. Flowers CV, Baker RS, Khanna S, Ali B, March GA, Scott
C, Murrillo S. Teleopthalmology, rationale, current issues,
future directions. Telemed J 1997; 3: 43-52.
16. Vinnuhópur Heilbrigðismálaráðuneytis um sjúkrahúsmál.
Tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um
skipan sjúkrahúsmála. Reykjavík: Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið 1993 [fjölrit].
17. Oddsson ÓH. Sérfræðiþjónusta utan sjúkrahúsa [óbirt
rannsókn 1995].