Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 593 Gæðaþróun hjá Félagi íslenskra heimilislækna Eins og kunnugt er hefur um langt skeið verið unnið öflugt gæðastarf á vegum FÍH. Þessi þáttur í starfsemi félagsins er vel þekktur meðal heimilislækna en síður meðal annarra lækna. Ég tel því rétt að gera grein fyrir þessari starfsemi í Læknablað- inu. FÍH var stofnað 1978 og er því 20 ára á komandi hausti. Segja má að allt frá stofnun félagsins hafi gæðaþróun verið mjög ofar- lega á baugi í starfsemi þess. Síðustu 16 ár hefur verið unnið markvisst að gæðaþróun í heim- ilislækningum innan FÍH. Það sem einkennt hefur þessa vinnu hjá félaginu er öflugt grasrótar- starf félagsmanna, sem unnið hefur verið af einstökum áhuga og óeigingirni. Egilsstaðaverkefnið Fyrsta gæðaþróunarverkefnið meðal íslenskra heimilislækna varð til á Egilsstöðum 1975 með því að Guðmundur Sigurðsson, heilsugæslulæknir kom á fót vandaliðaðri (problem oriented) sjúkraskrá og hafði frumkvæði að tölvuvæðingu sjúkraskrárinn- ar með skipulögðum hætti. A Egilsstöðum tel ég að hafi byrjað sú grasrótarvinna sem hefur ein- kennt gæðaþróun heimilislækna á síðustu 20 árum. Brekkuskógarfundir Lykillinn að ýmsum verkefn- um á vegum félagsins hafa verið svonefndir Brekkuskógarfundir sem við heimilislæknar höldum að öllu jöfnu einu sinni á ári. Þá fer 15-20 manna hópur heimilis- lækna eina helgi í orlofshús í Brekkuskógi (eða annars staðar), þar sem krufin eru til mergjar ýmis fagleg málefni sem tengjast starfinu og hagnýtum úrlausnar- efnum. Þessir fundir hafa síðan verið grundvöllurinn að þrótt- miklu nefndastarfi á ýmsum sviðum og hafa þjappað félags- mönnum saman. Þar hefur orðið til sú hvatning og brýning sem er nauðsynleg til að koma málefn- um áleiðis. Tvívegis hefur gæða- þróun verið sérstakt efni á Brekkuskógarfundum. Staðlar FÍH Arið 1982 vann nefnd á veg- um FÍH skýrslu um sjúkraskrár og hvaða skilyrði þær ættu að uppfylla, en hún var gefin út á vegum landlæknisembættisins. Þessar leiðbeiningar urðu síðar hluti af handbók heilsugæslu- stöðva og mörg af þeim atriðum sem þar komu fram var hægt að nota við gerð hugbúnaðar fyrir tölvusjúkraskrá sem sagt verður frá síðar í þessari grein. Árið 1985 var haldið fyrsta málþing heimilislækna um gæðaþróun. Þetta málþing mark- aði viss tímamót meðal íslenskra lækna því þetta mun vera í fyrsta sinn sem ráðstefna um þetta efni var haldin fyrir lækna hér á landi. Við fengum hingað fyrir- lesara frá Kanada, prófessor Ian McWhinney. Þetta málþing þótti takast mjög vel og varð hvati að stóru verkefni FÍH, en það var að semja staðal um starfsemi og starfshætti heimilislækna. Mark- miðið var að setja félagsmönn- um FÍH lágmarksstaðal um hvað teldust góðar heimilislækningar. Staðlinum er skipt í fjóra kafla, sem fjalla um starfshætti heimil- islækna, starfsfólk á heilsu- gæslustöð, húsnæði fyrir heilsu- gæslu og búnað á heilsugæslu- stöð. Þessi staðall var síðan end- urskoðaður og endurútgefinn 1992. Hann hefur verið kynntur á ýmsum ráðstefnum heima og erlendis og einnig verið þýddur á ensku. Heilbrigðisyfirvöld hafa haft hliðsjón af staðlinum við ýmsar ákvarðanir, til dæmis við byggingu heilsugæslustöðva. Nefnd á vegum FÍH hefur einnig samið svokallaðan tölvu- staðal. Hér er um að ræða þær kröfur, sem gera þarf til hugbún- aðar fyrir pappírslausa sjúkra- skrá. Þetta plagg er mjög ítarlegt og er þar í smáatriðum lýst þeim kröfum, sem við teljum að þurfi að gera til slíks hugbúnaðar. Tölvustaðallinn var hafður til hliðsjónar við gerð hins nýja for- rits Gagnalindar sem ber heitið Saga og er ætlað heilsugæslunni í landinu eins og kunnugt er. Er það nú þegar í notkun á allmörg- um heilsugæslustöðvum og markmiðið er að það verði tekið í notkun innan tíðar á öllum heilsugæslustöðvum landsins. Tölvustaðall FÍH hefur einnig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.