Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 84

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 84
602 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 heilsugæslustöðvar þannig að samfella fáist í þjónustuna. Hér er um að ræða byltingar- kenndar nýjungar sem gætu vakið verulega athygli á heimsvísu. Pyrlusveit lækna Þyrlusveit lækna var stofn- uð fyrir rúmum áratug og var hún í upphafi mönnuð áhuga- sömum unglæknum sem unnu starf sitt í sjálfboðavinnu. Fljótt breyttist þetta þó í skipulagða starfsemi sem hef- ur eflst með hverju árinu. Með tilkomu nýju Puma-þyrlunnar Tf. Líf tók þessi þjónusta stakkaskiptum og má segja að óvíða í heiminum sé nú full- komnari björgunarþyrla að störfum. Sumir þeirra lækna sem störfuðu í sveitinni í ár- daga hennar hafa nú snúið aft- ur eftir sérnám erlendis og síðustu tvö ár hefur myndast fastur kjarni rnjög sérhæfðra lækna sem sinna þessari þjón- ustu. Sveitin er í dag skipuð sex læknum sem vinna undir stjórn Sjúkrahúss Reykjavík- ur. í sveitinni eru sérfræðingur í lungna- og gjörgæslulækn- ingum fullorðinna, sérfræð- ingur í gjörgæslulækningum barna, bæklunarlæknir, háls-, nef- og eyrnalæknir, heilsu- gæslulæknir og einn reyndur deildarlæknir sem einnig er ábyrgur fyrir starfsemi neyð- arbílsins. Læknar þyrlusveitarinnar hafa komið víða við í heil- brigðisþjónustu við sjómenn fyrir utan starf sitt á þyrlunni. Þeir hafa sinnt kennslu fyrir skipstjórnarmenn, þróað skráningu sjóslysa, stundað fjarlækningar, hannað lyfja- kisturnar og stundað ýmsar rannsóknir er við koma heil- brigðismálum sjómanna. Það eru fá ef nokkur önnur lönd sem geta státað af eins reynd- um hópi manna sem sinna slíkri þjónustu en lega lands- ins og aðstæður bjóða ekki upp á annað. Reynsla þessa hóps svo og sú staðreynd að flestallir þræðir heilbrigðis- þjónustu við sjófarendur liggja í höndum þeirra gerir það að verkum að hópurinn er mjög vel til þess fallinn að þróa framtíðarþjónustu sem einnig gæti nýst öðrum þjóðum. Lokaorð Hér að ofan hefur verið stiklað á stóru um það helsta sem er að gerast í heilbrigðis- þjónustu við sjófarendur. Eg vil að lokum benda fólki á þrjár mjög svo áhugaverðar norrænar ráðstefnur sem haldnar verða í Reykjavík 22.- 26. ágúst næstkomandi en þetta eru ráðstefnur um fjar- lækningar á norðurhveli, heil- brigðismál sjófarenda og nor- rænt umferðarslysaþing. Ráð- stefnurnar eru ekki eingöngu bundnar við Norðurlönd held- ur verða þar einnig ýmsir vel metnir fyrirlesarar frá ensku- mælandi löndum við N-Atl- antshafið. Meginefnisflokkar ráðstefnunnar um heilbrigðis- mál sjófarenda verða um skráningu slysa og sjúkdóma, fjarlækningar við sjófarendur og menntunarmál skipstjórn- armanna en einnig verða aðrir áhugaverðir fyrirlestrar svo sem um björgunaraðgerðir í N-Atlantshafi, sjóveiki og sál- ræn áföll í kjölfar sjóslysa. Ég vil hvetja sem flesta starfs- menn í heilbrigðiskerfinu til að gefa þessum ráðstefnum gaum því að af nógu er að taka þegar þessa málaflokka ber á góma og hver hjálpsöm hönd og hvert verðugt innlegg er vel þegið. Sigurður Ásgeir Kristinsson Fræðslustofnun lækna Námskeið í stjórnun og rekstri Fræðslustofnun lækna gengst fyrir tveimur grunnnámskeiðum í stjórnun og rekstri. Fyrra námskeiðið verður haldið dagana 8., 9., 15. og 16 október næstkomandi. Seinna námskeiðið verður haldið 30. október, 6., 13. og 20. nóvember næstkomandi. Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Fræðslustofnunar lækna í Hlíðasmára 8 og eru eingöngu ætluð læknum. Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.