Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 32
554 LÆKNABLAÐIÐ 1998: 84 Það er glórulaus stórhríð á öllu Norður- landi og allar samgöngur tepptar. A heilsu- gæslustöðinni á Raufarhöfn sitja ljósmóðirin og læknirinn við ómsjána og skoða konu sem gengin er með fjóra eða fimm mánuði. Þau hafa bæði nokkra reynslu í að ómskoða ófrískar konur, en það sem þau nú sjá er utan við þá reynslu sem þau hafa getað aflað sér. Þau sjá sérkennilegt form á brjóstholi og þeim sýnist hjartsláttur fóstursins vera mjög afbrigðilegur og óreglulegur. Hvað skal gera? Einfalt mál, við skulum setja okkur í samband við sérfræðingana á kvennadeild- inni og láta þá sjá þetta fóstur og hjálpa okk- ur við greiningu og frekari ávörðun. Kveikt er á tölvu stöðvarinnar, sem er með fjar- fundabúnað og tengd inn á heilsunetið, og samband hai’l við vakthafandi sérfræðing á kvennadeildinni. Þegar samband fæst, er ómhausnum beint að kviði konunnar og ómsjáin tengd inn á tölvuna þannig að sérfræðingurinn sér óm- myndina. Sérfræðingurinn leiðbeinir þeim og óskar eftir snúningi og beiningu ómhauss- ins „Fyrst upp, svo til hægri, já nú alveg kyrr um stund“. Hann fylgist með fóstrinu á skjánum hjá sér, þekkir afbrigðið og getur fullvissað þau um, að þetta sé sennilega mis- sýn og truflun í fyrri skoðun og alveg óhætl að bíða af sér öll veður þess vegna. ýmsum sviðum sem fjarlækningar gætu spann- að og komið að verulegu gagni hérlendis og minnst á þá þætti margmiðlunar og samskipta sem augljósastir eru og tengja saman hinar ýmsu sérgreinar. Þennan lista má svo auka með tilvísunum í heilsugæsluáætlanir, fyrirbyggj- andi heilsuvernd af ýmsu tagi, þannig að af hálfu þeirra ábyrgu aðila, sem myndu hrinda úr vör mætti nota marklýsinguna telemedicine- telehealth; fjarlækningar-fjarheilsugæsla. Okkur er ljóst að hér á landi eru ýmsar þær sérstöku kringumstæður, bæði gerðar af manna og náttúru höndum, sem gera beina yfirfærslu á sumum áformum og hagnýtingu nágranna okk- ar ómögulega, eða að minnsta kosti óæskilega. Þar kemur meðal annars til greina samsetning mannafla í heilsugæslunni, mismunandi væg byggðasjónarmið og ákveðnir landfræðilegir þættir, svo eitthvað sé talið. Einmitt þess vegna er að okkar mati ákaflega brýnt að hefjast handa um kynningu jafnhliða framkvæmda- áætlun. Það er ljóst að stjórnvöld þurfa að verja umtalsverðum fjármunum á næstu árum til upplýsingatækninnar, í Noregi munu heilbrigð- isyfirvöld verja einum milljarði norskra króna fram til ársins 2000, og er Ijóst að heilbrigðis- geirinn verður að vera talsvert frekur til fjárins. Skilgreiningar Engin tæmandi eða einhlít skilgreining er til á hugtakinu telemedicine, þó er íslenska þýð- ingin fjarlœkningar líklega síst verri en margar aðrar og samræmist að öllu leyti upprunalegu skilgreiningunni frá áttunda áratugnum sem var medicine at a distance (3). Fjarlækningar gera menn óháðari tíma og staðsetningu en áð- ur hefur verið hugsanlegt. Norsk heilbrigðisyfirvöld, sem sennilega hafa lagt hlutfallslega mest fram hvað snertir skipulega þróun og hagnýtingu á þessu sviði, hafa skilgreint fjarlækningar þannig (2): „Rannsóknir, eftirlit, meðferð og stjórnun á og vegna sjúklinga og starfsmanna, með hjálp fjarskiptakerfa sem veita tafarlausan aðgang að sérþekkingu, sjúkra- og sjúkiingaupplýsing- um, óháð landfrœðilegri staðsetningu“. Þörfum fyrir fjarlækningar má lýsa á ýmsan hátt, annars vegar með hliðsjón af mismunandi notkunarsviðum og hins vegar með því að beina sjónum að þeim árangri, sem leitað er eftir. Dæmi hins síðarnefnda er skilvirkari nýt- ing sérfræðiþekkingar og jöfnun aðgengis að allri heilbrigðisþjónustu. Varðandi notkunarsvið og væntingar er eftir- farandi skrá hvergi tæmandi, en gefur þó hug- mynd um þarfir og æskilegan árangur: 1. Ráðaleitun/ráðgjöf, milli sérfræðinga (peer- to-peer consultation). 2. Ráðaleitun/ráðgjöf milli heilsugæslu- og sérfræðilækna sjúkrahúsa. 3. Þróun og samhæfing vaktþjónustu. 4. Dreifing/flutningur hverskonar upplýsinga: beiðna, rannsóknasvara, línurita, myndgrein- inga og svo framvegis. 5. Aukin gæði heilbrigðisþjónustunnar: viður- kennd, aukin þjónusta og upplýsingar til sjúklinga og aðstandenda þeirra. 6. Aukin skilvirkni samskipta og upplýsinga. 7. Notkun fjarlækninga í þjónustu við fatlaða, endurhæfingu, öldrunarlækningar og heima- hjúkrun. Miklar vonir standa til þess, að fjarlækningar megi stuðla að auknum gæðum og skilvirkni,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.