Læknablaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 48
568
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Fra opnun skola sem rekinn er i tengslum við heilbrigðisatakið i litlu þorpi i Vestur-
Bengal. Börnin fengu bœkur og skólabúninga.
fer á í raun að borga fyrir þann
sem kemur, það er tryggja
uppihaldið, en ferðir borgar
hver fyrir sig. Og það er sá
kostnaður sem reynist mörg-
um læknanemanum í þróunar-
löndum mjög erfiður. Okkur
gengur mun betur að afla fjár
til ferðanna bæði með eigin
framlögum og annarra. Hér á
íslandi erum við nú að skoða
möguleikan á fjáröflun til að
bjóða hingað læknanemum frá
bágstaddari löndum og hefur
Bosnía einkum verið nefnd í
því samhengi.“
Próunaraðstoð
- Hvernig starfa lækna-
nemasamtökin í þróunarlönd-
unum?
„Samtökin reka þróunar-
verkefni víða í þriðja heimin-
um þar sem læknanemar í við-
komandi löndum eru í for-
svari. I samvinnu við Alþjóða-
heilbrigðisstofnunina hafa
samtökin þróað svokallað
Village concept þar sem meg-
ináhersla er lögð á að kenna
fólkinu að hjálpa sér sjálft.
Þannig læra verðandi læknar
að takast á við vandamál í ná-
inni samvinnu við heimamenn
Á stöðinni sem Einar Hjaltested vann á
voru 13 rúm til að meðhöndla vannœrð
börn, þau voru alltaf fullskipuð. Hvert
barn dvaldi um mdnuð ú stöðinni og
braggaðist ótrúlega á þeim tíma.
og reyna um leið að láta gott
af sér leiða.
Reynt er að afla styrkja til
einstakra verkefna og hefur
það gengið nokkuð vel.
Skipulagið er þannig að Al-
þjóðsamtökin senda fólk beint
og milliliðalaust til starfa og
eru flestir í um það bil sex
mánuði. Verkefnavalið miðar
einkum að uppbyggingu
grunnheilsugæslu en einnig
höfum við tekið þátt í stuðn-
ingsstarfi við flóttamenn. í
flóttamannabúðum eru aðrar
áherslur en sams konar nálgun
og mikið lagt upp úr því að
vinna með unga fólkinu að
forvörnum og félagsmálum.
Reynt er að vinna öll verkefn-
in í samvinnu við fagaðila á
hverjum stað og styðja við
það sem fyrir er, sé um slíkt
að ræða. Þróunarstarfið sem
við tökum þátt í hefur staðið í
um það bil 10 ár og vegur
mjög þungt í starfi okkar og
fer í raun vaxandi."
- Hafa íslenskir læknanem-
ar tekið þátt í þessu starfi?
„Héðan hafa farið tveir
læknanemar og starfað í
nokkra mánuði. Guðbjörg
Ludvigsdóttir dvaldi fimm
mánuði í Súdan á árinu 1995.
Hún var þá á fimmta ári í
læknisfræði en er nú útskrifuð
úr læknadeild. Hún tók þátt í
sameiginlegu þróunarverkefni
sænskra og súdanskra aðila
sem stóð yfir í þrjú ár. Um var
að ræða uppbyggingu grunn-
heilsugæslu í sex sveitaþorp-
um. Það beindist bæði að for-
varnarstarfi svo sem trygg-
ingu á hreinu vatni og frá-
rennsli, ungbarnabólusetningu
og einnig að almennri fræðslu.
Einar Hjaltested vann í tvo
og hálfan mánuð á Indlandi
árið 1996, þá nýútskrifaður
kandídat. Stöðin sem hann
vann á er í úthverfi Kalkútta
og er þar einkum lögð áhersla
á ungbarnaeftirlit og mæðra-
vernd en einnig tekið á van-
næringu bama. Þetta verkefni
er unnið að frumkvæði barna-
læknis frá Bangla Desh sem
lærði í Belgíu. Verkefnið hef-
ur notið fjárhagsstuðnings
óháðra aðila í Japan og Belgíu
og ítölsku læknanemasamtak-
anna, sem eru innan vébanda
heimssamtakanna og hefur
staðið allt frá 1990. Þegar