Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 60

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 60
580 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 ræður um erfðavísa og erfða- tækni. Þetta á alls ekkert skylt við hræðsluáróður heldur er merki um heilbrigt vísindalíf. Þótt það geti verið mjög þægi- legt í vísindum, tækni og læknisfræði, eins og á öðrum sviðum tilverunnar að gerast jábróðir aðlaðandi skoðana og svífa um himingeiminn á vængjum hugsunarleysis og óskhyggju, er það aðalsmerki góðra og dugmikilla vísinda- manna að þora að gagnrýna jafnt nýjar sem viðteknar skoðanir vægðarlaust. Einfalt dæmi um það hve auðveldlega mönnum verður fótaskortur á DNA-planinu er vaxandi notkun erfðatækni við rannsókn sakamála (DNA fingerprinting). Niðurstöðurn- ar eru háðar ýmsum óvissu- þáttum og sjaldnast 100% ör- uggar enda væru þær þá guð- legar. Umræða um þessi mál á íslandi og erlendis ætti að vekja menn til umhugsunar um nauðsyn þess að flýta sér hægt við lagagerð sem er lítill en mikilvægur hluti af nýju fræða- og tæknisviði þar sem nauðsyn er skilnings á tak- mörkunum tækninnar og því að almenningur skilji hvað er á ferðum (10). Uppbygging vísindasamfélaga f athugasemdum við frum- varpið segir: „Fyrirtœkið íslensk erfða- greining ehf. hefur lýst áhuga á að takast á við gerð gagna- grunns á heilbrigðissviði og telur slíkt viðfangsefni rökrétt framhald þeirra verkefna sem fyrirtcekið fæst nú við. Aœtlar fyrirtœkið að eftil kœmi gœti fjöldi hámenntaðs fólks feng- ið störf við gerð og rekstur slíks gagnagrunns. “ (Letur- breyting höfundar.) Fyrirtækið áætlar að fjöldi hámenntaðs fólks geti fengið störf. Til þess að prófa sann- leiksgildi þessarar fullyrðing- ar þarf fyrirtækið að leggja fram nákvæma áætlun. Hvern- ig á annars að vera unnt að sannreyna hvort fullyrðingin eigi við einhver rök að styðj- ast? Hvað er hámenntað fólk? Hefur það B.S., M.S., dokt- orsgráðu eða hefur það lokið Habilitations-prófi eða starfað sjálfstætt við vísindarann- sóknir? Þótt einhverjir geti fengið störf við eitthvert verkefni, er varhugavert að nota þá rök- semd sem svar við því hvort skynsamlegt sé að gera eitt- hvað, í þessu tilviki að sam- þykkja frumvarpið. Enn var- hugaverðara er ef röksemdin um fjölda starfa kemur í veg fyrir að svara sé leitað við því sem er aðalatriði þessa máls: spurningum I og II. Fjöldaröksemdin er dæmi um það hve slæmt er að láta tilganginn helga meðalið. Hún er fullkomlega tóm siðferði- lega, því með loforði um nýjar stöður má réttlæta allt milli himins og jarðar, allt frá smíði eitur- og gerlavopna, vítisvéla og morðtóla til þess sem best og fegurst getur talist. Hvað tryggir að ekki geti illa farið? Hvernig á að meta og dreifa áhættunni? Á að taka hana? Svarið við þessum spumingum er flókið og verður að meta í hverju tilviki fyrir sig án þess að láta draumsýn um störf slæva dómgreindina. Það er háleitt markmið að fjöldi hámenntaðs fólks geti fengið störf. Væri samt ekki viturlegt að grennslast fyrir um hvað þetta hámenntaða fólk kjósi að gera og - án þess að verða forsjárhyggju að bráð - spyrja hvort velferð þess sé vel borgið með því að vinna að gagnagrunnsgerð? Ef þetta hámenntaða fólk hefur lagt land undir fót og komið til íslands og hafið störf að gerð svona gagnagrunns en svo rennur allt út í sandinn, er þá öruggt að þetta sama fólk geti fótað sig aftur í harðri samkeppni erlendis? Væri þá ef til vill búið að leggja starfs- feril þess í rúst? Það er gífurlega flókið - vísindalega, pólitískt, sagn- fræðilega, félagsfræðilega, mannlega, og svo framvegis - að meta hvemig byggja beri upp vísindastarf. Færi ekki vel á því, þó ekki væri nema vegna fólksins sjálfs að hug- leiða hvernig hag þessa há- menntaða fólks sé best borgið - ekki bara hag íslensku þjóð- arinnar eða Islenskrar erfða- greiningar ehf.? Á hámenntað og efnilegt fólk ekki rétt á bestu ráðgjöf og umfjöllun, það er nýju frumvarpi? Hver ber ábyrgðina ef líf þeirra verður lagt í rúst í sókn eftir stundargróða? Eru þau ekki íslendingar? Það er auk þess athyglisvert að í opinberri umræðu um frumvarpið nú á vordögum hefur það hámenntaða fólk sem þegar vinnur hjá íslenskri erfðagreiningu ehf. varla tjáð sig í fjölmiðlum. Megi setja jafnaðarmerki milli vísinda- starfs, lýðræðis og opinskárrar umræðu, hvemig stendur þá á þögninni? 10. Sjá Richard C. Lewontin. DNA er hin helga kýr nútímans, Morgun- blaðið 23. janúar 1994, s. 4B-5B; DNA-Based Identification Systems, Privacy, and Civil Liberties, hjá Hubbard og Wald 1992, s. 145-57; Lander 1992; The Dream of the Human Genome, hjá Lewontin [1991] 1993, s. 59-83.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.