Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Qupperneq 10
Starfsmannaleigan 2B hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og auglýst hefur verið eftir vangoldnum kröfum í þrotabúið. Beiðni um gjaldþrota- skipti var lögð fram af erlendum starfsmanni á vegum fyrirtækisins vegna vangoldinna launa. Áður hafði fyrirtækið verið dæmt í Héraðsdómi Austurlands til að greiða 12 pólsk- um fyrrverandi starfsmönnum sín- um launakröfur upp á tæpar 4 millj- ónir króna ásamt vöxtum. Starfsemi leigunnar hafði þá ítrekað komið inn á borð verkalýðshreyfingarinnar vegna gruns um að brotið hefði verið á réttindum erlendra starfsmanna á hennar vegum. Afl, Starfsgreinafélag Austur- lands, höfðaði mál gegn fyrirtæk- inu eftir að pólskir starfsmenn á þess vegum leituðu til verkalýðs- hreyfingarinnar með launaseðla sína. Eftir að seðlarnir höfðu ver- ið skoðaðir þótti rík ástæða til að höfða mál. Þeirri málssókn lauk með fullnaðarsigri verkalýðshreyf- ingarinnar. Í miðri deilu verkalýðsfélaga við starfsmannaleiguna 2B var Guð- mundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, stefnt af forsvarsmönnum leigunnar fyrir meiðyrði. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Guðmund til að greiða sam- tals 1,5 milljón króna í málskostnað og miskabætur. Málinu hefur ver- ið áfrýjað til Hæstaréttar og verka- lýðsforkólfar hafa áhyggjur af því að sömu rekstraraðilar séu farnir af stað með rekstur undir annarri kenni- tölu. Ekki hissa Guðmundur telur gjaldþrota- skipti fyrirtækisins ákveðna sönnun þess að gagnrýni á starfsemina hafi verið réttmæt. Hann óttast að for- svarsmenn þess haldi áfram í sama farinu. „Þetta kemur mér alls ekki á óvart. Því fer fjarri að hlutirnir hafi verið í lagi hjá fyrirtækinu og gjaldþrota- skiptin eru einfaldlega sönnun þess. Vandinn er sá að hlutirnir eru í sjálfu sér ennþá í ólagi því sami eigandi er kominn með annað fyrirtæki og aðra kennitölu. Það fyrirtæki er í sömu starfsemi og eftir þeim upplýsingum sem ég hef heyrt virðist viðkomandi haga sér á nákvæmlega sama hátt og áður,“ segir Guðmundur. „Því miður er viðkomandi rekstraraðili búinn að leika þennan ljóta leik aftur og aftur. Í mörgum tilfellum sendi hann er- lendu starfsmennina þráðbeint úr landi um leið og upp komu einhver vandræði. Eftir að dómur féll á fyrir- tækið sá maður að eigandi fyrirtæk- isins kippti snarlega að sér höndum og ætlaði greinilega ekki að láta Pól- verjana fá eitt eða neitt. Nú heyri ég af því að viðkomandi vaði í pening- um og sé ennþá í sama farinu með nýtt fyrirtæki.“ Ný löggjöf Oddur Friðriksson, yfirtrúnað- armaður verkalýðshreyfingarinnar við Kárahnjúkavirkjun, tekur í sama streng. Aðspurður hefur hann einn- ig heyrt af því að sömu rekstraraðil- ar starfi nú undir annarri kennitölu. „Um þetta get ég lítið fullyrt því þetta er eitthvað sem ég hef bara heyrt af. Mér skilst að viðkomandi sé kominn með fólk í vinnu hjá sér hjá nýju fyr- irtæki. Ef rétt reynist, þá finnst mér það þvílík svívirðing því rekstrar- aðilinn hefur verið dæmdur vegna milljóna skulda í tengslum við laun starfsmanna,“ segir Oddur. „Það er ótrúlegt að menn geti svo farið að starfa undir nýrri kennitölu því allur peningurinn sem þessir að- ilar skulda í laun fellur á ábyrgðasjóð launa. Er eðlilegt að halda áfram svona svikamyllum? Það er svo mik- ið svínarí ef þetta líðist að ég á varla til orð, því allt fellur þetta á ríkið á endanum. Ég kalla einfaldlega á nýja löggjöf í þessum efnum.“ Ánægðir verkalýðsforkólfar Samkvæmt upplýsingum frá fyr- irtækjaskrá Ríkisskattstjóra er annað fyrirtæki skráð á sama heimilisfang og 2B. Munurinn er hins vegar sá að starfsmannaleigan er skráð á Eið E. Baldvinsson, framkvæmdastjóra 2B, en hitt, fyrirtækið S 7, er skráð á Olenu Shchavynska, sambýliskonu Eiðs. Að- spurður þvertekur Eiður alfarið að tengjast síðarnefnda fyrirtækinu með nokkrum hætti. Hann staðfestir að félagið sé á leið í gjaldþrot. „Það er ekki búið að lýsa fyrirtækið gjaldþrota ennþá en ég kannast við að það ferli er í gangi. Gjaldþrotið er sú niður- staða sem verkalýðsforystan hót- aði okkur, hvernig sem farið yrði að því, og hefur unnið að síðustu tvö ár. Forkólfarnir hljóta að vera ákaflega hamingjusamir núna,“ segir Eiður. „Gjaldþrotið er einungis tilkomið fyrir tilstuðlan verkalýðshreyfing- arinnar og dómurinn sem við hlut- um var alveg eftir pöntun. Til dæm- is steingleymdist að dæma í stórum hluta málsins. Ég hafna því algjörlega að fyrirtækið hafi nokkurn tímann gert eitthvað rangt í sinni starfsemi. Að mínu mati unnum við fullnaðar- sigur í málinu þegar Guðmundur var dæmdur fyrir meiðyrði. Það eru eng- in bein tengsl milli mín og nýja fyrir- tækisins á nokkurn hátt. Sjálfur starfa ég ekki að neinu leyti hjá þar og þó að svo væri, sé ég ekki að það skipti nokkru máli.“ Stofnaður sannleikssjóður Guðmundur segist bíða spenntur eftir niðurstöðu Hæstaréttar eftir að meiðyrða- málinu var áfrýjað þangað. Hann ítrekar þá skoðun sína að í raun hafi hann gert lít- ið annað en að endursegja orð annarra. „Ég gerði ekki nokkuð annað en að lesa upp úr fundargerðum trúnaðar- manns starfsmanna við Kárahnjúka og túlks, þau orð voru síðan staðfest fyrir dómi af verkstjórunum. Það er hins vegar með ólíkindum að dóm- arinn hafi ekki tekið tillit til þeirr- ar staðfestingar og dómurinn er al- veg óskiljanlegur. Ég lít nú svo á og úr því fæst vonandi skorið að mað- ur sem er í forsvari fyrir stéttarfélag megi benda á það sem er ekki í lagi án þess að vera dreginn fyrir dóm- stóla, það væri dálítið einkennilegt þjóðfélag,“ segir Guðmundur. „Eftir að dómurinn féll í meiðyrðarmálinu rigndi yfir mig beiðnum frá þekktum einstaklingum sem vildu greiða sektina fyrir mig. Með því yrði stofnaður sérstak- ur sannleikssjóður enda tel ég mig ekki hafa gert nokkuð annað en að lesa upp fundargerð- ir þar sem túlkun starfsmannanna kemur fram.“ föstudagur 6. JÚLÍ 200710 Fréttir DV TrauSTi hafSTEiNSSoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Nú heyri ég af því að viðkomandi vaði í pen- ingum og sé ennþá í sama farinu með nýtt fyrirtæki.“ Starfsmannaleigan 2B hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og búið er að auglýsa eftir kröfum í þrotabú- ið. Málefni fyrirtækisins höfðu ítrekað komið inn á borð verkalýðshreyfingarinnar og Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, var dæmdur fyrir ummæli sem Héraðsdómur Reykja- víkur taldi skerða æru eigenda fyrirtækisins. Verkalýðsforkólfar óttast að sömu eigendur haldi áfram rekstri undir nýrri kennitölu. RÁKU 2B Í GJALDÞROT OG STOFNUÐU S 7 Svik við Kárahnjúka Pólskir verkamenn við Kárahnjúkavirkjun leituðu til verkalýðs-hreyfingarinnar með launaseðla sína og eftir það var starfsmannaleigan lögsótt. fyrirtækið var dæmt til að greiða nærri 4 milljónir vegna vangoldinna launa. Guðmundur Gunnarsson formaður rafiðnaðar- sambandsins var dæmdur fyrir meiðyrði gagnvart forsvarsmönnum starfsmannaleig- unnar 2B. Málinu hefur verið áfrýjar til Hæstaréttar. GAY STYRKTARBALL 07.07.’07 DJ PÁLL ÓSKAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.