Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 16
föstudagur 6. júlí 200716 Fréttir DV
Leikar í móðu mengunar
Loftið í Peking er oft á tíðum þungt
vegna mengunar. Í borginni búa ell-
efu milljónir og ekki er óalgengt að
þeir þurfi að anda að sér lofti sem
er jafnvel tvisvar eða þrisvar sinnum
mengaðra en Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin telur æskilegt. Mengunin
kemur að mestu leyti frá kolaorku-
verum og verksmiðjum og útblástur
bifreiða bætir svo um betur. Sífelldir
umferðahnútar verða þess valdandi
að meðalumferðahraðinn er tólf
kílómetrar á klukkustund.
Til að auka vandann enn frek-
ar bætast við eittþúsund nýskráðar
bifreiðar á hverjum degi. Það er því
óhætt að segja að mengunin í Pek-
ing nærist á sjálfri sér, því reglulega
hverfur borgin í gulbrúnt mistur og
umferðarhraðinn minnkar og meng-
unin eykst. Kína er einn stærsti reið-
hjólaframleiðandi í heimi og reiðhjól
voru á árum áður eitt helsta farar-
tækið sem landsmenn þar notuðu.
Nú um stundir myndi engum
heilvita manni detta í hug að ferðast
um á reiðhjóli í Peking. Þeir sem eru
svo lánsamir að eiga bifreið, skilja
hjólið eftir heima og kjósa þægindin
og loftræstinguna fram yfir blöndu af
kolareyk, rykögnum og útblæstri bif-
reiða.
Grænir leikar
Árið 2001, þegar Kína sótti um að
halda Ólympíuleikana árið 2008, lof-
uðu kínversk yfirvöld því að dregið
yrði úr loftmengun. Í viðleitni sinni
til að standa við skuldbindingar sín-
ar hafa þau unnið að því að stór stál-
verksmiðja yrði færð á annan stað,
gert ráðstafanir til að draga úr út-
blæstri og tekið upp jarðgaskyndingu
í stað kolakyndingar. En sérfræðing-
ar eru efins um að það dugi til því
mengunin muni halda áfram að ber-
ast frá nálægum héruðum. Meira en
tíuþúsund íþróttamenn munu flykkj-
ast til Peking í ágúst á næsta ári.
Kínversk yfirvöld hafa lofað græn-
um leikum, en allt útlit er fyrir að
keppendur komi til með að keppa í
gráma mengunar í einni menguðust
borg í heimi. Marco Cardinale hjá
Breska Ólympíusambandinu segir
að vegna loftmengunar í bland við
hita og raka sé ólíklegt að ný heims-
met verði sett. Einnig benda nið-
urstöður veðurfræðinga til þess að
helmingslíkur séu á rigningu á opn-
unar- og lokahátíð leikanna. Þessar
niðurstöður byggjast á úrkomutöl-
um síðust þrjátíu ára.
Til að auka líkur á úrkomu rétt
fyrir setningu leikanna, áforma yfir-
völd að skjóta regnsprengjum upp í
skýin nokkrum dögum áður en leik-
arnir hefjast, með það fyrir augum
að hreinsa andrúmsloftið. Kínversk
yfirvöld segja að „blár himinn sé ekki
eingöngu nauðsynlegur fyrir Peking,
heldur líka fyrir nærliggjandi staði“.
Stærsti áhættuhópurinn
Í fjórtán stærstu borgum Kína
deyja um fimmtíu þúsund nýburar
á hverju ári vegna mengunar. Börn,
sjúkt fólk og aldrað og íþróttafólk í
úthaldsgreinum eru í mestri hættu
vegna mengunar. Jafnvel stálslegnir
ferðamenn kvarta oft og tíðum vegna
særinda í hálsi, ofnæmisviðbragða
og astma. Því er kannski ekki að
furða að áhyggjur hafi vaknað vegna
þeirra tíuþúsunda íþróttamanna
sem taka þátt í Ólympíuleikunum að
ári. Forseti Alþjóða Ólympíunefnd-
arinnar, Jacques Rogge, hefur þó gert
sitt besta til að draga úr þeim áhyggj-
um. Hann bendir á að Peking sé ekki
fyrsta borgin sem heldur Ólympíu-
leikana sem stríðir við umhverfis-
vandamál. Máli sínu til stuðnings
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Nú er rétt ár þar til Ólympíuleikarnir hefjast í Peking. Þar hafa staðið yfir
yfirgripsmiklar aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að stemma stigu við þeirri
gífurlegu loftmengun sem lengi hefur einkennt borgina. Mengun er víða
orðin vandamál í stórborgum og Kína er eitt mengaðasta land í heimi.
Borgaryfirvöld eru bjartsýn á að þeim takist að draga úr mengun fyrir
leikana, en umhverfissinnar og heilsusérfræðingar eru áhyggjufullir.
Það er því óhætt að segja að mengunin í Pekíng
nærist á sjálfri sér, því reglulega hverfur borgin í
gulbrúnt mistur og umferðarhraðinn minnkar og
mengunin eykst.
Fyrir oG eFtir
til vinstri - eftir tveggja daga rigningu. til hægri - tiltölulega
bjartur dagur. Báðar myndir teknar milli sjö og átta að morgni.