Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Page 23
Messa á Gásum
Minjasafnið á Akureyri í samstarfi við Möðruvallaklaustur-
skirkju stendur fyrir messu í kirkjutóftinni á Gásum á morgun,
íslenska safnadaginn, kl. 11. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir,
sóknarprestur í Möðruvallaklausturskirkju, messar og félagar
úr kirkjukórnum leiða fjöldasöng við undirleik.
DV Menning föstudagur 6. júlí 2007 23
snýst ekki um viðlagið - heldur aðal-
lega um versið, sem segja má að sé
burðarásinn í lagi Løvlands.
Svipuð áhrif
Söknuður hefur verið mikið flutt-
ur í jarðarförum í gegnum tíðina og
You raise me up virðist á góðri leið
með að feta sömu braut. Lagið var
flutt við minningarathöfnina eft-
ir hryðjuverkin í New York 2001, til
minningar um áhöfn geimskutl-
unnar Columbiu 2004, við athöfn á
Ground Zero í New York nýlega og
við jarðarför knattspyrnukappans
George Best, svo dæmi séu tekin.
Lögin virðast því hafa svipuð áhrif á
fólk - hvort sem er á Íslandi, í Bret-
landi eða Bandaríkjunum.
Nauðsynlegt framtak
„Þetta er nauðsynlegt framtak og
óumflýjanlegt í ljósi þess að þarna
hefur verið fetuð nótu fyrir nótu
sama slóð og Jóhann fetar aldar-
fjórðungi áður,“ segir Jakob Frímann
Magnússon formaður Félags tón-
skálda og textahöfunda. „Við stönd-
um heilshugar að baki Jóhanni í
þessu máli - enda eru einu rökin
sem haldið hefur verið á lofti á móti
þessu þau að umrætt lag Løvlands sé
nauðalíkt Danny Boy. Það á þó ein-
ungis við um viðlagið, mál Jóhanns
snýst hinsvegar um versið, sem er
notað sem inngangur og millispil og
það er nánast óhugsandi að þarna sé
um tilviljun að ræða.“
Réttlætið er Jóhanns megin
Løvland hefur, sem fyrr segir,
áður verið sakaður um brot gegn
höfundarrétti. Jakob segir það vissu-
lega geta hent menn að þeir sofni á
verðinum og það sem þeir telja sak-
lausan innblástur geti reynst hrein
tilvitnun í annarra manna verk. „Það
má vel vera að Løvland hafi heyrt
Söknuð í útvarpinu milli svefns og
vöku og vaknað síðan himinlifandi
yfir að hafa fengið slíkan innblást-
ur. Vegir tónpúkans eru illrannsak-
anlegir,“ segir Jakob. Hann segir að
mál af þessu tagi geti verið tvísýn og
vandasöm. „Á endanum snýst þetta
um klókindi og lagalega málafylgju,
en ég er vongóður Jóhanns vegna og
vona að hann fari enga erindisleysu
í þessu - enda er réttlætið hans meg-
in og það sigrar að lokum, eins og
segir einhversstaðar.“
Sammála Jóhanni
Jakob tekur undir þá skoðun Jó-
hanns Helgasonar að um prinsipp-
mál fyrir íslenska tónlist sé að ræða.
„Það hefði kannski einhverjum dott-
ið það í hug fyrir 20 árum síðan að
það væri allt í lagi að sækja eina og
eina laglínu hingað til þessarar eyju
sem liggur á mörkum hins byggi-
lega heims. En í dag, á dögum upp-
lýsingar og alþjóðlegrar netvæðing-
ar á slíkt ekki að vera hægt. Þetta
er svosem heldur ekki í fyrsta sinn
sem Norðmenn reyna að eigna sér
það sem íslenskt er, þeir halda til
að mynda enn fast við að Leifur Ei-
ríksson sé norskur en ekki íslensk-
ur. Minnugur orða Einars Þveræings
vil ég bæta um betur og segja: Við
skulum gefa Norðmönnum góðar
gjafir en hvorki Grímsey né Sökn-
uð Jóhanns Helgasonar,“ segir Jakob
Frímann Magnússon.
gudmundurp@dv.is
Álfar í Eden
Myndlistarsýningin Álfa-
varp verður opnuð í gróður-
húsi og veitingaskála Eden í
Hveragerði á morgun kl. 16. Að
sýningunni standa listamenn-
irnir Anna Hallin, Margrét Hlín
Sveinsdóttir, Olga Bergmann
og Steinunn Guðríður Helga-
dóttir. Eden á sér djúpar rætur
í þjóðarsálinni og tengist góð-
um minningum um framandi
náttúru og ís með dýfu, að því
er segir í tilkynningu, auk þess
sem erlendir ferðamenn koma
oft þar við. Álfavarp er svo
tímabundin heimsókn ókunnra
afla í þennan aldingarð þjóð-
arinnar. Þessi öfl rannsaka og
gera tilraunir með mannlíf og
náttúru staðarins.
9700 manns
keyptu bók
Rúmlega 9700 manns nýttu
ávísunina Þjóðargjöfina 2007
til bókakaupa í Viku bókarinn-
ar í apríl síðastliðnum. Það er
rúmlega 20 prósenta aukning
frá því í fyrra. Þjóðargjöfin 2007
er samstarfsverkefni Glitn-
is, Félags íslenskra bókaút-
gefenda og bóksala í tilefni af
Viku bókarinnar en þetta var í
annað sinn sem verkefnið fór
fram. Hvert heimili á landinu
fékk senda 1000 kr. ávísun sem
hægt var að nýta til kaupa á
bókum útgefnum af íslensk-
um útgefendum. Á dögunum
voru svo tíu heppnir bókakaup-
endur dregnir úr lukkupotti og
hljóta 10 þúsund kr. innistæðu
á sparibók hjá Glitni.
50 íslenskar
lífsreynslu-
sögur
Út er komin bókin 50 sannar
íslenskar lífsreynslusögur. Eins
og titillinn ber með sér eru hér
á ferðinni 50 lífsreynslusög-
ur. Sögurnar, sem eru allar úr
íslenskum veruleika, birtust
í tímaritinu Vikunni á árun-
um 1999 til 2005. Guðríður
Haraldsdóttir, aðstoðarritstjóri
Vikunnar, skrifaði meginþorra
sagnanna og bjó sögurnar til
prentunar.
Fyrst og fremst
prinsippmál
tónlist
Rolf Løvland Hefur áður
verið sakaður um
höfundarréttarbrot.
Samanburður sérfræð-
ingar telja mikil tónfræði-
leg líkindi með lögunum.
Jakob Frímann Magnússon „Óhugsandi að þarna sé um tilviljun að ræða“
Alþjóðlegi safnadagurinn
Listasafn Reykjavíkur býður gestum og gangandi ókeypis aðgang að
fjölbreyttum og áhugaverðum sýningum í tilefni af Alþjóðlega
safnadeginum á morgun. Söfnin sem um ræðir eru Ásmundarsafn,
Hafnarhús og Kjarvalsstaðir. Verk listamanna eins og Kjarvals, Erró og
Roni Horn eru á meðal þeirra sem hægt er að berja þar augum.