Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Side 27
DV Helgarblað Föstudagur 6. JÚLÍ 2007 27
„Ég þarf að ferðast mikið um land-
ið vegna vinnu minnar, jafnvel
þótt ferðalögin hafi minnkað með
árunum,“ segir Sigríður Beinteins-
dóttir söngkona. Hún ekur núna
á Range Rover Sport jeppa. Hún
segist fyrst og fremst aka á jepp-
anum vegna þess að hann veiti
henni öryggistilfinningu á þjóð-
vegunum.
„Svo er miklu meira pláss í
jeppanum en í venjulegum fólks-
bíl. Það þýðir að ég get einfaldlega
kippt hljóðfærunum með þegar
ég kem fram á smærri viðburðum
eins og veislum og öðrum uppá-
komum. Þá tek ég bara græjurnar
með mér í bílnum,“ segir Sigríður.
Hefði þurft stiga
Sigríður hefur átt nokkra jeppa
í gegn um tíðina. Fæstir þeirra hafa
verið mikið breyttir og Range Rov-
erinn er óbreyttur. „Bæði hef ég átt
Toyota Landcruiser og Mitsubishi
Pajero. Þetta eru mjög fínir bílar
og ég get ekkert sett út á þá. Range
Roverinn er einfaldlega í hærri
klassa. Hann heldur einhvern veg-
inn betur utan um mann, hann er
kraftmikill og það er æðislegt að
keyra hann,“ segir hún.
Hún segir að stærsti jeppinn
sem hún hafi átt hafi verið breytt-
ur fyrir 33 tommu dekk. „Það er
frekar lítil breyting. Ég hefði líka
þurft stiga ef ég hefði fengið mér
meira breyttan bíl,“ segir Sigríður
og hlær.
Öryggistilfinningin mikilvæg
Hún leggur áherslu á að það sé
öryggistilfinningin sem fylgir því
að aka stærri bíl sem hún leitar eft-
ir. „Ég er svo mikil gunga að keyra í
snjó og hálku að ég þori ekki öðru
en að setja bílinn á naglana, jafn-
vel þótt að í honum séu alls kyns
tölvustýringar sem hjálpa mikið í
erfiðum aðstæðum.“
Hún segir að Roverinn ætti því
ekki að þurfa að vera á negldum
dekkjum yfir vetrartímann. „Ég
hef prófað að aka honum í bull-
andi hálku á ónegldum dekkj-
um og hann hreyfðist ekki. Ég vil
samt frekar hafa meira öryggi en
minna. Það er líka öðruvísi, þeg-
ar maður keyrir mikið á þjóðveg-
unum að vetri, en þegar maður
er fyrst og fremst að keyra innan
borgarmarkanna.“
Golfsett og græjur í bílinn
„Annars er ég engin fjallakona,
og ég er ekki heldur í veiðinni eins
og margir, en ég spila golf og kann
því mjög vel að geta hent golfsetti
og kerru aftur í jeppann og ekið
af stað.“ Hún er því ekki á leiðinni
um Gæsavatnaleið inn að Öskju í
sumar.
Hún segir að það geti ver-
ið erfitt að koma svona græjum í
smærri bíla, bæði golfsettinu og
hljóðfærunum. „Ég er til dæmis
á leiðinni norður til Akureyrar að
spila núna um helgina. Ég sting
bara græjunum í bílinn og legg af
stað,“ segir Sigga Beinteins.
sigtryggur@dv.is
„Ég hef prófað að aka
honum í bullandi
hálku á ónegldum
dekkjum og hann
hreyfðist ekki. Ég vil
samt frekar hafa meira
öryggi en minna.“
ÉG ER GUNGA Í HÁLKUNNI
Sigga Beinteins hefur átt nokkra jeppa
í gegn um tíðina. Hún er engin fjalla-
kona, en sækist eftir örygginu og pláss-
inu í stærri bílum.
Framhald
á næstu síðu
Á RanGe RoveR
sigga Beinteins ferðast mikið um landið í
vinnunni. Hún sækist eftir örygginu og
plássinu sem hún fær í jeppanum.
dv mynd Gúndi