Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Side 30
föstudagur 6. júlí 200730 Sport DV
Margir á heiMavelli
Níunda Formúlu 1 keppni tímabils-
ins fer fram um helgina þegar keppt
verður á Silverstone-brautinni í
Bretlandi. Ferrari-ökumennirn-
ir Kimi Räikkönen og Felipe Massa
minntu hressilega á sig um síðustu
helgi og eru farnir að narta í hælana
á helstu keppinautum sínum hjá
McLaren.
Fyrst var keppt á Bretlandseyjum í
Formúlu 1 árið 1950. Á árunum 1955
til 1986 var skipst á að keppa á Silver-
stone, Aintree og Brands Hatch en
frá árinu 1987 hefur eingöngu verið
keppt á Silverstone.
Flest lið í Formúlu 1 líta á sig á
heimavelli í breska-kappakstrinum.
Þetta kemur til vegna þess að flest
lið eru með höfuðstöðvar í Bret-
landi. Fyrir vikið hefur Silverstone-
kappaksturinn sérstaka þýðingu fyrir
marga ökumenn. „Silverstone er frá-
bær vettvangur fyrir kappakstur. Ég
hef alltaf haft gaman af því að keppa
hérna. Við tókum mjög góða æf-
ingu hér fyrir tveimur vikum síðan.
Ef við náum að nýta alla okkar kosti
á brautinni, þá held ég að Ferrari
verði jafnvel enn líklegra til sigurs en
á Magny-Cours (í síðustu keppni),“
sagði Finninn Kimi Räikkönen, sig-
urvegari síðustu helgar.
McLaren-Mercedes er breskt
bílafyrirtæki og því hefur kappakst-
ur helgarinnar sérstaka þýðingu fyr-
ir liðið. Lewis Hamilton, ökumaður
McLaren, sagði að Silverstone-kapp-
aksturinn sé stærsta keppni tíma-
bilsins fyrir sig persónulega.
„Án nokkurs vafa er breski-kapp-
aksturinn sá stærsti á þessu ári fyr-
ir mig, því þetta er jómfrúar-keppni
mín á heimavelli. Þetta verður enn
ein ný upplifun fyrir mig. Ég býst við
að andrúmsloftið muni verða ótrú-
legt og ég get ekki beðið eftir því að
keppa fyrir framan mína heima-
stuðningsmenn.
Að vinna þessa keppni væri stór-
kostlegt en við verðum að vera raun-
sæir í okkar væntingum. Þetta er
bara ein af sautján keppnum og líkt
og í öðrum keppnum þá mun ég
gera mitt besta til að vinna fyrir mína
stuðningsmenn. Það mikilvægasta
fyrir þá er að hafa gaman af helg-
inni, sama hver úrslitin verða,“ sagði
Hamilton.
Fernando Alonso er aðeins einn
af þremur núverandi keppendum í
Formúlu 1 sem hefur unnið kapp-
akstur á Silverstone. Hinir tveir eru
Rubens Barrichello og David Coult-
hard.
„Sigur minn á síðasta ári var mjög
sérstakur. Það var mikil barátta og
erfiði en sú er alltaf raunin á Silver-
stone. Það er alltaf gaman að keppa
hérna því það eru nokkrar athyglis-
verðar beygjur,“ sagði Alonso. © GRAPHIC NEWS
Breski-kappaksturinn Silverstone
Mikilvægar beygjur
Gír / km/hraði
Tímatökusvæði
Rásmark
Becketts
Stowe
Club
Vale
Abbey
Maggots
Copse
1. beygja
10. beygja
17. beygja
Chapel
Priory
Bridge
Lueld
Farm
6 285
4 185
4 210
6 305
2 80
4 180
5 276
4 200
6 285
2 117
3 155
5 245
3 160
6 290
5 265
0 100
0
1
2
3
9. umferð: 8. júlí
Lengd brautar: 5,141 km
Fyrirkomulag: 60 hringir – 308,355 km
Viðmiðunartími á hring: 1:18,2
© GRAPHIC NEWS
Staðan í heimsmeistarakeppni Formúlu 1
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
=
14
=
16
17
Keppni bílasmiða
Lewis Hamilton
Fernando Alonso
Felipe Massa
Kimi Raikkonen
Nick Heidfeld
Robert Kubica
Giancarlo Fisichella
Heikki Kovalainen
Alexander Wurz
Jarno Trulli
Nico Rosberg
David Coulthard
Takuma Sato
Mark Webber
Ralf Schumacher
Jenson Button
Sebastian Vettel
McLaren
McLaren
Ferrari
Ferrari
BMW Sauber
BMW Sauber
Renault
Renault
Williams
Toyota
Williams
Red Bull
Super Aguri
Red Bull
Toyota
Honda
BMW Sauber
64
50
47
42
30
17
16
12
8
7
5
4
4
2
2
1
1
Stig
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
McLaren-Mercedes
Ferrari
BMW Sauber
Renault
Williams-Toyota
Toyota
Red Bull-Renault
Super Aguri-Honda
Honda
Toro Rosso-Ferrari
Spyker-Ferrari
114
89
48
28
13
9
6
4
1
0
0
Straðan fyrir breska-kappasksturinn - allir aðrir ökumenn eru með núll stig.
Silverstone-kappaksturinn í Formúlu 1 fer
fram um helgina. Um er að ræða níundu
keppni tímabilsins af sautján og baráttan
um heimsmeistaratitilinn er farin að
harðna allverulega.
dagur sveinn dagbjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
tíu ástæður fyrir
árangri Hamilton
david Coulthard, ökumaður red Bull, lét
nýlega hafa eftir sér leyndarmálið á bak
við velgengi lewis Hamilton, sem er
efstur í keppni ökumanna þrátt fyrir að
vera á sínu fyrsta tímabili í formúlu 1.
1. sjálfstraust
„stór hluti góðs árangurs íþróttamanns
kemur til út af sjálfstrausti. Ef þú nærð
ekki saman með þínu liði eða
framkvæmdastjóra þínum, þá getur þú
glatað sjálfstraustinu. lewis er fullur af
sjálfstrausti, hefur hæfileika í massavís
og er að standa sig vel.“
2. Hann er nýliði
„reynsla hans, eða réttara sagt skortur á
reynslu, gerir árangur hans hingað til
merkilegan. En ég minni á að þrátt fyrir
að lewis sé góður ökumaður þá býr
hann ekki yfir ofur-kröftum. Hann er
mennskur rétt eins og við hin.“
3. engin pressa
„Á mínu fyrsta ári í formúlu 1 náði ég
fimm sinnum á ráspól í röð og fannst
ekki mikið til þess koma. Ég var að keyra
hratt og vinna mína vinnu. Þegar ég lít
til baka þá var þetta frábær árangur en á
þeim tíma fannst mér þetta eðlilegt. Það
sama er að gerast hjá lewis, hann er
ekki að spá í hversu frábært það er að
hann er á verðlaunapalli eftir hverja
keppni. Hann er að hugsa: „Ég á skilið að
vera hér.“ Það er engin pressa þegar þú
ert nýliði af því að væntingarnar eru
ekki miklar. fernando alonso er sá sem
er undir pressu. Eftir nokkur ár, þegar
lewis er ekki stærsta nafnið, verða
hlutirnir kannski öðruvísi.“
4. stíllinn
„Hvað varðar stílinn, þá er hann blanda
af senna og alain Prost. Hann er með
áræðnina hans senna og stöðugleika
Prosts, þannig að framtíðin er björt hjá
honum.“
5. að Höndla frægðina
„Munurinn á að geta labbað eftir götu
án þess að nokkur þekki mann og að
vera maður augnabliksins og vera á milli
tannanna á fólki er mikill. Það er
eitthvað sem allir þekktir íþróttamenn
hafa gengið í gegnum og eitthvað sem
lewis á eftir að takast á við. En eins og
útlitið er núna þá ætti hann að geta
höndlað frægðina mjög vel.“
6. enn að læra
„Hann verður klárlega betri ökumaður á
næsta ári. Og á næstu árum mun hann
þroskast sem manneskja utan brautar
og fyrir vikið verða betri ökumaður.“
7. frábær byrjun
„Ég segi að hann þarf aðeins að halda
áfram að gera það sem hann hefur verið
að gera hingað til, af því að það virkar.
Og með tíu stiga forskot er hann á góðri
leið með að vinna heimsmeistaratitilinn.
Á góðri leið.“
8. samkeppnin við alonso
„í öllum íþróttum gerir góð samkeppni
hlutina betri. að vinna auðvelt er ekki
mjög krefjandi og ekki mjög
fullnægjandi. Ég ímynda mér að
samkeppni lewis og alonso sé
krefjandi, fullnægjandi og því góð fyrir
lewis.“
9. mclaren
„Það sem gerir árangur lewis svona
frábæran er að hann hefur enga fyrri
reynslu í formúlu 1. Það eru ekki
eingöngu frábærir hæfileikar hans sem
hafa skilað þessum árangri, heldur
einnig sú staðreynd að hann hefur verið
hjá Mclaren í níu ár. Það er langur tími
hjá einu liði og að vera hjá liði svona
lengi styrkir böndin og vináttan verður
meiri.“
10. ekki of ungur
„jenson Button byrjaði þegar hann var
19 ára gamall. alonso byrjaði þegar
hann var 19. lewis er 22. Þannig að
hann er ekki yngsta ungstirnið sem
kemur inn í formúlu 1. saga hans með
Mclaren mun hjálpa honum á þessu
tímabili og mun koma honum vel í
framtíðinni.“
á heimavelli lewis Hamilton keppir í
fyrsta sinn í Bretlandi í formúlu 1 um
helgina þegar keppt verður á silver-
stone-brautinni.