Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Síða 31
DV Sport föstudagur 6. júlí 2007 31
ALLIR Í KÓPAVOG
F
yrirmyndin að KF
Nörd á rætur að rekja
til Danmerkur þar
sem sams konar þátt-
ur „FC Zulu“ sló ræki-
lega í gegn og kom
af stað sannkölluðu nördaæði á
Norðurlöndum. Í kjölfarið fylgdu
sambærilegir þættir í Noregi og
Svíþjóð en „Sænsku nördarnir“
hafa einmitt verið sýndir á Sýn
við miklar vinsældir. KF Nörd
sló strax í gegn enda var vand-
að til verka og sjálfur Logi Ólafs-
son fékk það verðuga verkefni
að breyta 16 strákum sem aldrei
höfðu komið nálægt fótbolta í al-
vöru lið á þremur mánuðum. Nú
bíður hans annað erfitt verkefni.
„Á þessu plani þykja Svíar mjög
sterkir. Ég hef það fyrir satt að
þeir unnu Dani 6-1 og mér skilst
að þeir búi yfir töluverðri keppn-
isreynslu. Eftir að þáttaröðinni
lauk hafa þeir farið víða og spilað
þannig að þeir eru til alls líklegir,“
segir Logi. Hann bætir við að leik-
urinn gæti verið góður vettvangur
til að hefna ófaranna á Råsunda
vellinum þar sem íslenska lands-
liðið tapaði 5-0.
„Við höfum haft það meira í
flimtingum að sænsk gríla hefur
hvílt á íslensku íþróttamönnum
um langa hríð, bæði í handbolta
og fótbolta og öðrum greinum.
Þannig það gæti vel verið gott fyr-
ir okkur að handboltinn rétti ör-
lítið úr kútnum á móti þeim síð-
ast. En við höfum mikinn hug á
því að hefna fyrir þær ófarir.“
Skörð eru höggvin í KF Nörd
frá því áhorfendur Sýnar sáu lið-
ið síðast. Fjórir leikmenn komast
ekki í þennan Evrópuleik en mað-
ur kemur í mann stað.
„Öllum sem voru með í fyrra
var boðin þátttaka en það eru
fjórir sem gátu ekki þekkst boð-
ið. Það eru Kári sem er meidd-
ur, Ívan og Einar eru erlendis og
Guðni gat ekki komist. Það verða
því fjórir eða fimm nýjir.“
Leikurinn fer fram á Kópavogs-
velli og eins og Logi segir, verður
hann stærsti viðburður á Lands-
mótinu sem hófst í gær.
„Þetta verður að mörgu leyti
vígsluleikur fyrir nýju stúkuna í
Kópavogi. Um leið og þetta verð-
ur aðal giggið á Landsmóti UMFÍ.
Við vonumst til að allir þátttak-
endur á því móti, sem eru um
sex þúsund talsins, mæti, og allir
áhugamenn um nörda almennt.
Það voru nær átta þúsund á FH
leiknum síðast þegar við lékum
og við ætlum ekki að vera minni
menn núna,“ sagði þjálfarinn
Logi Ólafsson.
benni@dv.is
❶ Upptaka í gangi sýn verður með
sérstakan þátt um leikinn gegn
svíunum á mánudag.
❷ Hlustað af athygli Þegar logi
talar þá leggja menn við hlustir.
❸ Hópurinn samankominn Nokkur
ný andlit eru í hópnum. fjórir gáfu ekki
kost á sér að nýju.
❹ Við erum svooona frægir! Kf
Nörd náði miklum vinsældum í fyrra.
❺ Koma svo lið Kf Nörd leit vel út á
æfingu og er til alls líklegt.
❻ Áttu borvél? Ásmundur
Haraldsson aðstoðarþjálfari fylgist
grannt með framvindu mála.
❼ Hefnd fyrir Råsunda logi
Ólafsson þjálfari Kf Nörd segir leikinn
góðan vettvang til að hefna ófaranna á
råsunda.
❶
❷
❸
❹
❺
❻
❼
Knattspyrnufélagið Nörd kom saman til æfinga í
vikunni til að undirbúa fyrsta Evrópuleik liðsins.
Liðið mun mæta sænskum kollegum sínum sem
slegið hafa í gegn á Sýn undanfarin ár: