Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Qupperneq 36
föstudagur 6. júlí 200736 Sport DV
PÓKERSAMBAND
ÍSLANDS STOFNAÐ
P
ókerspilun er í mik-
illi sókn í landinu.
Nú hafa nokkrir
áhugamenn um
póker komið sam-
an og stofnað Pó-
kersamband Ís-
lands. Markmið
félagsskaparins er að stuðla að út-
breiðslu spilsins á Íslandi og auka
þekkingu fólks á spilinu.
Á fundinum voru samþykktar
reglur sem ákvarða það hvernig pó-
ker skuli vera spilaður. Þar verður
valinn mótanefnd og keppnisnefnd
og til sambandsins er meðal ann-
ars hægt að beina deilumálum sem
kunna að koma upp á milli félags-
manna.
Mótapóker er ekki
fjárhættuspil
Georg Haraldsson er með-
al stofnenda sambandsins „Við
erum ekki að stuðla að útbreiðslu
pókers sem fjárhættuspils. Þetta
er mótapóker sem er ólíkur hefð-
bundnum póker að því leyti að í
venjulegum póker er spilað með
spilapeninga sem allir hafa gildi
einhverra peningaupphæðar. Ef þú
tapar getur þú tekið áhættu og ráðið
því hve miklum upphæðum þú ert
tilbúinn spila með. Í mótapóker er
það hins vegar þannig að þú borg-
ar ákveðna upphæð í aðgöngugjald.
Spilapeningarnir þjóna engum öðr-
um tilgangi en að telja stigin sem
þú ert með. Í upphafi hvers móts
eru ákveðin verðlaunasæti sem
geta verið í formi peninga eða með
öðrum verðlaunum. Yfirleitt hefur
það verið þannig á Íslandi að að-
gangseyrin rennur óskiptur í verð-
launafé. Til sambanburðar heldur
Bridgesambandið alltaf stórt mót
árlega Á síðasta ári tók fullt af fólki
þátt og borgaði aðgangseyrir. Þar
nam aðgangseyrin 1,9 milljónum
en einungis 800 þúsund voru not-
uð til þess að veita verðlaun. Þá er
einhver að taka hluta fésins í eigin
vasa. Við gætum gert þetta líka, en
til þess að efla leikinn þá höfum við
látið allt óskipt renna til sigurvegar-
anna“, segir Georg.
Pókersprengja
Vinsældir póker eru miklar hér á
landi og hægt að tala um sprengju í
iðkendatölu þeirra sem hann spila.
„Ástæðan fyrir þessum skyndilegu
vinsældum er sú að nýlega kom fram
nýtt afbriðgði af póker sem heitir
Texas hold‘em. Það er skemmtilegra
afbrigði heldur en eldri útgáfurnar
enda er auðvelt að keppa í þeim. Eins
hefur það haft mikil áhrif að hann er
gott sjónvarpsefni þar sem hægt er
að sjá hver er með hvaða hönd og
áhorfendur vita alltaf hvaða spil leik-
menn við borðið eru með.
Einnig hafði myndin Rounders
með Matt Damon talinn hafa mik-
il áhrif á vinsældir pókersins eft-
ir að hún kom út árið 1998,“ segir
Georg.
Stór hluti af útbreiðslu pókers
má rekja til spilunar á netinu. „Ef
hinn almenni borgari ætlar að læra
póker þá mæli ég ekki með því að
menn læri af netinu. Það getur haft
slæmar afleiðingar fyrir fjárhaginn.
Best er náttúrlega að spila með fé-
lögunum og þar sem litlar fjárhæð-
ir eru undir,“ segir Georg.
Pókermót stöðvað ólöglega
Í upphafi júnímánaðar var hald-
ið stórt pókermót hér á landi þar
sem hægt var að borga aðgangseyri
til þess að fá að spila. Fjöldi manns
mætti til leiks, en lögreglan stöðvaði
mótið með valdi áður en yfir lauk.
„Ég er búinn að tala við fjöldann all-
an af lögfræðingum og ég hef ekki
heyrt í neinum sem segir að þetta
hafi verið ólöglegt mót. Þeir stöðv-
uðu þetta vegna þess að þeir töldu
að um ólöglega spilastarfsemi væri
að ræða en það er eiginlega vegna
þess að enginn veit hvort að þetta
er ólöglegt eða ekki. Málið er það
að mótapóker er ólíkur venjulegum
póker. Það vita hins vegar ekki allir,“
segir Georg að lokum.
Íslendingar að spila erlendis
Á sjónvarpsstöðinni Sýn var ný-
lega sýnt frá móti sem ber nafnið
World cup of poker. Á því var keppt
á milli landa og pókerspilarar með
hæstu stigin frá hverju landi á vefn-
um pokerstars tók þátt.
Íslendingar hafa einnig verið að
taka þátt í European poker tour með
ágætum árangri. Halldór Már Sverr-
ison náði til að mynda fertugasta
og fimmta sæti af þúsundum kepp-
enda.
Póker nýtur sívaxandi vinsælda
hér á landi. Áhöld eru um hvort
hann sé leyfilegur hér landi.
Forsvarsmenn hins nýstofnaða
Pókersambands Íslands segja
póker ekki vera öðruvísi en
önnur spil þar sem verðlaun eru
í boði.
Ha ha ha! Ég er ríkur.
Georg Haraldsson
Einn stofnenda
Pókersambands íslands.