Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Síða 37
DV Helgarblað
Jökulárnar eru
hættulegastar
Úlfar Eysteinsson matreiðslumaður
segir að það sama gildi um jeppa-
mennsku og eldamennsku, það sé
undirbúningurinn sem skilji milli
feigs og ófeigs. „Oft þarf ekki nema
sólskin og blíðu til þess að jökulárn-
ar belgist út og þá verður maður að
gera ráð fyrir því að vera innilokaður
fram á næsta morgun.
Oft er það þannig í dag að í jepp-
um á 35 tommu dekkjum er ekk-
ert varadekk til staðar. Þá þarf fólk
að hafa lært að nota sérstaka tappa
til þess að gera við dekkin ef að það
springur,“ segir Úlfar. Hann segir að
hættulegast sé þegar fólk anar óund-
irbúið af stað í hálendisferðalög.
„Það er þá sem hlutirnir geta farið
úrskeiðis,“ segir hann.
Lengi í rallinu
Úlfar keppti um árabil í ralli á
Cherokee-jeppa. Hann segir að rall-
ið hafi dugað sér og hann hafi ekki
stundað jeppasportið mikið í öðr-
um frístundum. „Þarna fékk maður
landið alveg beint í æð. Við vorum
að keyra Kaldadal og Ufsahryggi. Svo
fórum við Mælifellsdalinn í Skaga-
firði,“ segir Úlfar. Hann talar einnig
um leiðina um Þverárfjall. „Við erum
ennþá með tárin í augunum eftir að
þessi leið var malbikuð. Þaðan á ég
margar góðar minningar. Nú er þetta
orðið að hraðbraut.“
Hann vill ekki gangast við því að
vera hættur í rallinu. „Segir maður
einhvern tímann að maður sé hætt-
ur? Ég segi bara að ég sé að hvíla
mig því ég er bráðungur ennþá.
Undanfarin þrjú ár hef ég lítið kom-
ist í þetta. Það hefur verið of mikil
vinna hjá mér yfir sumartímann. Ég
hef þessvegna ekki getað hent mér í
þetta eins og ég hefði viljað.“
Fjölskyldan með
Rallbakterían í Úlfari hefur smit-
að fleiri í fjölskyldunni. „Dóttir mín
keppti í ralli yfir Kjöl, norður til Akur-
eyrar. Ég var að keppa í sama ralli, og
hún var á undan mér með rásnúm-
er. Ég kom svo að henni þar sem hún
hafði fest bílinn á steini og ég náði að
dúndra aftan á hana og náði henni
þannig niður af grjótinu,“ segir Úlfar.
„Sonur minn keppti líka og nú
er sonarsonurinn kominn af stað
í þessu. Hann er búinn að keppa í
þremur röllum. Það þarf nú ekkert
að ýta við krökkunum þegar þau um-
gangast þetta frá blautu barnsbeini.“
Heimavinnan er mikilvæg
Úlfari er undirbúningur fyrir
ferðirnar greinilega ofarlega í huga.
„Maður þarf að vita hvort það er fjar-
skiptasamband á þeim slóðum sem
farið er á, og gera þá einhverjar aðr-
ar ráðstafanir ef svo er ekki. Til dæm-
is að vera búinn að gera ferðaáætl-
un sem einhver veit um. Það getur
bjargað miklu.“ Hann segir að þegar
ferðast er á jeppa á fáförnum hálend-
isvegum þá sé mikill heimalærdóm-
ur sem fólk megi ekki svíkja sjálft sig
um að læra.
„Þegar ég var í rallinu þá fór ég
reyndar lítið sem ekkert á fjöll á milli
þess sem ég keppti. Ég reyndi að ein-
beita mér að einhverju allt öðru. Á
veturna spilaði ég bridds og í frítím-
anum á sumrin fór ég í sjóstanga-
veiðina.“
Margar gÓÐar
MInnIngar
Úlfar Eysteinsson
segir undirbúning
fyrir fjallaferðir
skipta öllu máli. Fólk
þurfi að ráða við
sprungin jeppadekk
og fleiri vandamál.
MatrEiðsLuMaðurinn Úlfar Eysteinsson segir að undirbúningurinn skipti
öllu máli fyrir fjallaferðirnar. Ef fólk sinni honum ekki þá geti hlutir farið úrskeiðis.
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
HREINIR OG
FÍNIR BÍLAR
Xtreme BÍLASÁPA
Framúrskarandi sápa fyrir
bílinn.
GLERÚÐI
Frábær glerú›i sem má
einnig nota á mælabor›.
Tilbo›i› gildir til 15. ágúst e›a
á me›an birg›ir endast.
20% afsláttur
af toppgræjum í bílaþ
vottinn
FELGUBURSTI
Sérstaklega hentugur til a› fjarlægja
erfi›u óhreinindin af álfelgunum.
MÆLABORÐSBURSTI
Mjúkur bursti til a› fjarlægja ryk og óhreinindi
af mælabor›um, tökkum, skífum og mi›stö›var-
opum. fiennan fjölhæfa bursta má einnig nota
á skrifstofunni e›a á heimilinu til fless a›
hreinsa lyklabor› og a›ra fleti sem erfitt er
a› fjarlægja ryk af.
BÍLAÞVARA
Til a› skafa bleytuna af bílnum
eftir flvott. Mjúkt gúmmíi› fer vel
me› málningu og glugga. fivöruna
má festa á Vikan skaft sem er
fáanlegt í ‡msum stær›um.
BÍLAKÚSTUR
Vikan bílakústur. Sveig› lögun
tryggir stö›uga snertingu vi› hvern
flöt á bílnum. Kústurinn er me› gúmmíbrún
og öflugu og endurbættu vatnsflæ›i.
Kústinn má festa á Vikan skaft sem er
fáanlegt í ‡msum stær›um.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
28
42
6