Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 47
DV Helgarblað fÖStudagur 6. JÚLÍ 2007 47
Sakamál
Miðaldra, karlkyns lýtalæknir í Malmö
í Svíþjóð er ákærður fyrir að hafa nauðg-
að sjúklingi sínum á meðan hún var und-
ir áhrifum deyfilyfja. Sjúklingurinn sem er
ung kona átti að leggjast undir hnífinn hjá
lækninum í byrjun maí. Þegar hún mætti í
undirbúningstíma daginn fyrir aðgerðina
gaf læknirinn henni hins vegar svefnlyf og
nauðgaði henni svo. Nauðgunin mun hafa
farið fram í aðgerðaherbergi þar sem eng-
ar myndavélar eru og ekkert starfsfólk varð
vart við athæfið. Haft er eftir lögmanni kon-
unnar í frétt Sænska dagblaðsins að skjól-
stæðingur hennar hafi verið með með-
vitund á meðan nauðguninni stóð yfir en
vegna mikils magns af deyfilyfjum gat hún
enga vörn sér veitt. Samkvæmt frétt blaðs-
ins bendir margt til sektar læknsins en
hann var handtekinn á föstudag. Lög-
maður hans hefur neitað að tjá sig um
málið við sænska fjölmiðla.
Átti að laga bikinilínuna
Samkvæmt frétt staðarblaðs í
Malmö ætlaði konan að láta laga bik-
inilínu í nára sem er minniháttar að-
gerð og ekki er vaninn að deyfa sjúk-
linga fyrir þess háttar fegrunaraðgerð
líkt og læknirinn gerði. Reyndar eru
það svæfingalæknar sem sjá um allar
deyfingar á læknastofunni sem mað-
urinn vinnur á. Hann hefur því einn-
ig verið ákærður fyrir vanrækslu í starfi
af vinnuveitenda sínum. Dóms er að
vænta í nauðgunarmálinu um miðjan
mánuðinn.
Sænskur lýtalæknir misnotaði sér aðstæður:
Svæfði sjúkling og nauðgaði
Það tók dómara innan við tvo tíma
að ákveða refsingu Frank Hammeleff
þegar hann var dæmdur fyrir morð á
eiginkonum sínum. Lífstíðarfangelsi
var talið viðunandi refsing þrátt fyrir
fá sönnunargögn og enga játningu.
Hinn þrjátíu og þriggja ára Ham-
meleff var furðu lostinn þegar lög-
regla í Haderslev í Danmörku hand-
tók hann í byrjun maí árið 1978
grunaðan um morðið á seinni eig-
inkonu sinni. Frank reyndi að spila
sjálfan sig sem fórnarlamb í málinu
enda hafði hann misst eiginkonu
sína hálfum mánuði áður. Lögreglan
trúði hins vegar ekki frásögnum hans
af málsatvikum. Barn Frank og konu
hans var tveggja ára þegar móðir þess
dó.
Kom að konunni hangandi
Frank hélt því fram að hann
hefði farið einn að sofa nóttina sem
kona hans dó. Um ellefuleytið sagð-
ist hann hafa ákveðið að fara upp
í rúm en kona hans ætlaði að sitja
lengur í stofunni. Stuttu síðar vakn-
aði hann við kröftugan grát sonar
síns. Honum fannst ekki óeðlilegt
að móðir barnsins væri hvergi ná-
lægt enda hafi hann verið viss um
að hún væri ennþá á neðri hæð-
inni. Hann sagðist hafa tekið dreng-
inn upp og þá séð að það var ennþá
kveikt ljós í eldhúsinu. Hann gekk
því niður með barnið grátandi til
að slökkva ljósið. Rétt áður en hann
kom að ljósrofanum segist hann
hafa séð konu sína hangandi í reipi
í geymslu inn af eldhúsinu. Honum
brá mjög og varð ringlaður að eig-
in sögn og vissi ekki hvað hann ætti
að gera. Hljóp hann því upp með
drenginn, sem þá var sofnaður og
því næst niður aftur til að huga að
konu sinni. Hún var þá dáin. Þessa
frásögn hélt Frank sig við fyrstu tvo
mánuðina sem lögregla yfirheyrði
hann. Skyndilega breytti hann vitn-
isburði sínum og hélt því nú fram að
konan hefði setið ofan á frystikistu
með snöruna um hálsinn en ekki
hangið í reipi sem bundið var í loft-
bita í geymslunni. Þetta varð til þess
að lögreglan fann sig knúna til að
haga rannsókn sinni á annan veg og
með það í huga að hugsanlega hefði
konan verið myrt.
Mörgum spurningum ósvarað
Lögreglu hafði áður en Frank
breytti frásögn sinni fundist ýmis-
legt dularfullt við málsatvik. Til að
mynda fundust marblettir á kon-
unni og sár sem alla jafna finn-
ast ekki á líkum þeirra sem framið
hafa sjálfsmorð. Einnig fannst þeim
furðu sæta á Frank hafði getað skor-
ið á snærið og tekið konu sína nið-
ur á þann hátt sem hann sagðist
hafa gert. Til þess hefði hann nefni-
lega þurft að vera mjög sterkur sem
hann leit ekki út fyrir að vera.
Dómari spurði Frank afhverju
það hefði tekið hann heila tvo mán-
uði að muna hvernig hann kom
að líki konu sinnar. Skýringin sem
hann gaf var slæmt samstarf við
yfirlögregluþjóninn sem fór með
rannsóknina.
Annað morð
Þegar fjölskylda eiginkonunnar
heyrði frásögnina um frystikistuna
leitaði hún til lögreglu þar sem þau
vissu að fyrri eiginkona Frank átti að
hafa dáið við svipaðar aðstæður. Sú
var nítján ára gömul þegar hún lést
tólf árum fyrr. Reyndar upp á sama
dag og þau höfðu ætlað að slíta sam-
vistum og ný kærasta Frank ætlaði
að flytja inn í hús þeirra.
Í kjölfar vitnisburðar fjölskyld-
unnar var sérstakri rannsóknar-
deild lögreglunnar falið að fara yfir
sönnunargögn í máli fyrri eigin-
konunnar og bera saman við mál
þeirrar seinni. Eftir að hafa skoðað
myndir af atvikunum var rannsókn-
arfólkið sannfært um að konurn-
ar tvær hefðu ekki framið sjálfs-
morð. Ástæðan var meðal annars
sú að báðar höfðu þær blóðhleypt
augu, andlit, munn og tungu en
þess háttar sár finnast ekki hjá fólki
sem fremur sjálfsmorð. Frank var
því dæmdur í lífstíðarfangelsi og
er einn af fáum Dönum sem fengið
hafa svo harðan dóm. Frank neitaði
alltaf sök en hann er nú látinn.
Á hjólastól
á hraðbraut
Bílstjórum á hraðbraut-
inni við Rogaland í Noregi brá
heldur betur í brún þegar þeir
keyrðu framhjá gömlum manni
í rafknúnum hjólastól á sunnu-
dag. Bárust lögreglu því fjöldi
tilkynninga frá vegfarendum
um uppátæki mannsins. Þegar
lögreglan stöðvaði manninn
gat hann enga skýringu gefið
á því afhverju hann hefði val-
ið að keyra eftir hraðbraut á
hjólastólnum sínum. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem löggan í
Rogaland þarf að hafa afskipti
af gamalmennum í hjólastól á
hraðbrautinni.
Falsaðir íslenskir peningaseðlar
Íslenskur gjaldmiðill er orðinn fastur hluti af dönsku viðskiptalífi. Á
þriðjudaginn var kenísk kona handtekin þegar hún gerði tilraun til
að skipta íslenskum þúsundkalli á aðaljárnbrautarstöðinni í
Kaupmannahöfn. Við athugun kom í ljós að hann var falskur. Konan
neitaði sök. Í fórum hennar fundust einnig þrír farsímar. Lögregluna
grunar að hún sé meðlimur í skipulögðum glæpasamtökum.
Ætlaði að
drepa ná-
grannann
Lögreglan í Esjberg í Dan-
mörku notaði sprei úr slökkvi-
tæki til að yfirbuga
fjörtíu og fimm ára
mann sem braust
inn til sextugs ná-
granna síns með
byssu. Lögreglan
hafði betur og var
maðurinn færður
í fangelsi. Við leit
heima hjá honum fundust hníf-
ar og fjöldi ólöglegra skotvopna.
Ekki er vitað hver ástæðan var
fyrir því að hann braust inn til
nágrannans samkvæmt frétt
Ekstrablaðsins. Sá vopnaði hef-
ur verið ákærður fyrir innbrot
og ólöglega vopnaeign.
Hús sprakk
í Árósum
Á aðfaranótt sunnudags
sprakk hús í loft upp í nágrenni
við dönsku borgina Árósa. Leit-
arhundar lögreglu voru sendir
inn í rústirnar til að kanna hvort
nokkra manneskjur væri þar
að finna en enginn bjó í hús-
inu. Skömmu áður hafði hins
vegar dæmdur morðingi búið
þar samkvæmt frétt blaðsins
BT. Ekki er vitað hvernig húsið
sprakk en lögregla hefur úti-
lokað að um gasleka hafi verið
að ræða. Önnur hús í nágrenn-
inu urðu ekki fyrir skemmdum
í sprengingunni en húsið sjálft
er ónýtt.
Frank Hammeleff hélt því alltaf fram að báðar eiginkonur sínar hefðu framið sjálfs-
morð. Misvísandi frásagnir hans af atburðunum og ummerki á líkunum komu lög-
reglunni á sporið. Hammeleff var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðin. Hann hélt
fram sakleysi sínu til dauðadags:
Hengdi eiginkonunar
Frank Hammeleff Var
dæmdur fyrir að drepa
eiginkonur sínar tvær en
hann hélt fram sakleysi
sínu til dauðadags.
Danski bærinn Haderslev á Suður-
Jótlandi Hér bjó frank ásamt konu
sinni og barni þeirra þegar hann drap
hana og bjó þannig um að í fyrstu leit út
fyrir að hún hefði framið sjálfsmorð.
Danska lögreglan Misvísandi frásagnir
frank af málsatvikum komu lögreglunni
á rétta sporið.