Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Síða 58
Það hefur færst í vöxt á undanförnum árum og áratugum að end-
urgera gamlar kvikmyndir eða gera mynd upp á enska tungu sem
byggð er á vinsælli mynd á öðru tungumáli. Oft eru afar skiptar
skoðanir um hvernig til tekst. Frá árinu 2002 hafa hátt í 200 mynd-
ir með ensku tali, byggðar á annari mynd, verið framleiddar.
Endurgerð eldri mynda er feiki-
lega vinsæl íþrótt og er Hollywood
þar vitanlega í fararbroddi. Það virð-
ist hafa færst mjög í aukana undan-
farin ár og áratugi að gera kvikmynd
úr efniviði sem áður hefur sést á hvíta
tjaldinu, og á það bæði við um mynd-
ir sem upprunalega voru á ensku og
öðru tungumáli. Samkvæmt lista Wi-
kipedia hafa verið gerðar 186 myndir
á ensku, sem flokkast sem endurgerð
eldri mynda, á einungis síðustu fimm
árum. Til samanburðar má nefna að
samkvæmt sömu heimild voru fram-
leiddar 93 endurgerðir allan níunda
áratuginn og enn færri ef skoðaðir
eru áratugirnir þar áður. Þess ber að
geta að listinn er að öllum líkindum
ekki tæmandi.
Endurgerð færði Scorsese
óskarinn
Á meðal þekktustu endurgerð-
anna á allra síðustu árum er mynd
Martin Scorsese, The Departed
(2006), sem færði leikstjóranum vin-
sæla loksins óskarsverðlaunin eins
og frægt er. Myndin er byggð á Hong
Kong myndinni Infernal Affairs sem
frumsýnd var árið 2002. Mynd Ste-
vens Spielbergs, War of the Worlds
(2005), er endurgerð samnefndr-
ar myndar frá 1953 í leikstjórn Byr-
on Haskins. Báðar myndirnar eru
byggðar á skáldsögu H.G. Wells. Kalli
og sælgætisgerðin (2005), sem hinn
litríki Tim Burton leikstýrði, er byggð
á sama efnivið og leikstjórinn Mel
Stuart notaði í myndina Willy Wonka
og sælgætisgerðin rúmum þrjátíu
árum áður. Einnig má nefna til sög-
unnar myndir eins og Night of the
Living Dead (2006; tvær myndir með
sama heiti höfðu verið gerðar áður,
1968 og 1990), Munchen (2005; fyrri
myndin, Sword of Gideon, frá 1986),
Alfie (2004; fyrri myndin með sama
heiti frá 1960), The Texas Chainsaw
Massacre (2003; fyrri myndin með
sama heiti frá 1974) og Bourne Id-
entity (2002; fyrri myndin með sama
heiti frá 1988).
Flestar gerðar eftir frönskum
myndum
Sjötíu og fimm kvikmyndir eru á
lista Wikipedia yfir myndir á ensku
sem byggðar eru á mynd á öðru tungu-
máli. Langflestar hinna upprunalegu
mynda eru franskar, eða þrjátíu og
níu talsins. Þekktastar endurgerðanna
eru óneitanlega 12 Monkeys (1995;
fyrri myndin, La Jetée, frá 1962), Rox-
anne (1987; fjórar myndir til á frönsku
sem allar heita Cyrano de Bergerac,
sú þekktasta frá 1990) og Taxi (2004;
fyrri myndin með sama heiti frá 1998).
Af öðrum kunnum myndum á enska
tungu sem eiga rætur að rekja til ann-
arra málsvæða má nefna The Ring
(2002; fyrri myndin japönsk, Ring, frá
1998), Insomnia (2002; fyrri myndin
norsk með sama heiti frá 1997), Vanilla
Sky (2001; fyrri myndin spænsk, Abre
los ojos, frá 1997), Nightwatch (1997;
fyrri myndin dönsk, Nattevagten, frá
1994), að ógleymdri The Departed.
Allur gangur virðist á því hvort end-
urgerðir fái betri eða verri viðtökur en
föstudagur 6. júlí 200758 Bíó DV
Framleiðsla á kvikmyndinni The Night Watchman er hafin:
Stjörnum hlaðin spennumynd
Fox Searchlight Pictures tilkynntu
í vikunni að framleiðsla væri hafin á
kvikmyndinni The Night Watchman
sem skartar Keanu Reaves í aðalhlut-
verki. Kvikmyndin fjallar um Tom
Ludlow, lögregluþjón sem á í erfið-
leikum með sjálfan sig eftir andlát
eiginkonu sinnar. Þegar svo Ludlow
er bendlaður við morð á öðrum lög-
reglumanni, fara hjólin að snúast.
Allt í einu er hann kominn í and-
stöðu við fyrrum vini sína hjá lög-
reglunni og erfitt er að sjá hverjum
er treystandi. Í kvikmyndinni má
finna einvala lið leikara. Meðal ann-
ars óskarsverðlaunahafann Forrest
Whitaker, Hugh Laurie, Chris Ev-
ans, Jay Mohr, Cedric The Entertain-
er ásamt röppurunum Common og
The Game. Handrit myndarinnar er
eftir James Ellroy, en leikstjóri henn-
ar er David Ayer sem á meðal ann-
ars kvikmyndirnar Training Day og
Harsh Times að baki og hefur einn-
ig sett sinn svip á handritið. Myndin
verður frumsýnd á næsta ári.
Keanu Reeves fer með
aðalhlutverkið.
ENDURVINNSLAN Í HOLLYWOOD
Kalli og sælgætisgerðin Bæði tim Burton
og Mel stuart hafa leikstýrt mynd sem
byggð er á hinni vinsælu sögu roald dahl.
atriðið hér að ofan er úr mynd Burtons.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SHREK, Fíóna, Stígvélaði kötturinn og
Asninn eru mætt aftur í skemmtilegasta
ævintýri allra tíma
álfabakka
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4 - 6 L
PIRATES 3 kl. 5:30 10
ZODIAC kl. 9 16
EVANT ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
EVANT ALMIGHTY VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
BLIND DATING kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 10
OCEAN´S 13 kl. 8 - 10:30 7
DIGITal
DIGITal
kRINGlUNNI
DIGITal
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4:15 - 6:15 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8:15 - 10:20 L
CODE NAME CLEANER kl. 4 - 6 - 8 10
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
PIRATES 3 kl. 5:30 - 8:40 10
kEflaVÍk
akUREYRI
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 - 10:10 L
BLIND DATING kl. 8 - 10:10 10
ástin er blind
EVAN ALMIGHTY kl. 6 - 8 - 10 L
DIE HARD 4 kl. 8 - 10:30 14
SHREK 3 kl. 6 L
www.SAMbio.is 575 8900
Evan
hjálpi
okkur
EVAN ALMIGHTY kl. 4, 6, 8 og 10 L
DIE HARD 4.0 kl. 7.30 og 10-POWER 14
SHREK 3 enskt tal kl. 4, 6 og 10 L
SHREK 3 íslenskt tal kl. 4, 5.45 og 8 L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
STÆRSTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
Evan hjálpi okkur!
NÝTT Í BÍÓ!
FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
EVAN ALMIGHTY kl. 4 -6 - 8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45
DIE HARD 4.0 LÚXUS kl. 5 - 8 - 10.45
FANTASTIC FOUR 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HOSTEL 2 kl. 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 5
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
THE LOOKOUT kl. 5.50 - 8 - 10.10
DIE HARD 4.0 kl. 5.40 - 8.20 - 11
PREMONITION kl. 5.45 - 8 -10.15
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8.20 -10.30
14
18
10
14
12
14
12
EVAN ALMIGHTY kl. 6 - 8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 8 - 10.20
PREMONITION kl. 6
14
12
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EVAN ALMIGHTY kl. 6 -8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45
PREMONITION kl. 5.45 - 8 -10
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8 - 10