Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 59
xxxxVill Madonnu
í Simpsons
Höfundur Simpsons-þáttanna Matt
Groening lét það út úr sér í viðtali á
dögunum að söngkonan Madonna
væri efst á óskalista yfir gestaleikara í
þáttunum. Fjölmargir frægir hafa
komið fram í Simpsons-þáttunum í
gegnum tíðina, til dæmis Britney
Spears, Mel Gibson, Stephen
Hawking, Sir Elton John og Dolly
Parton. „Það væri frábært að fá
Madonnu, hún er ein af þeim sem
við höfum ekki náð að landa fram að
þessu,“ segir Groening. Í sama viðtali
greindi hann einnig frá því að á
teikniborðinu væri sérstakur
Simpsons - Prison Break þáttur, þar
sem þekktar persónur úr Prison
Break koma fram.
Ekki eru allir Þjóðverjar mótfallnir nýjustu mynd Tom Cruise:
Cruise gagnlegri en tíu HM
Tom Cruise og aðrir aðstand-
endur myndarinnar Valkyrie hafa
að undanförnu fengið stuðning frá
fólki innan kvikmyndabransans í
Þýskalandi. Eins og greint hefur ver-
ið frá hefur ekki gengið þrautalaust
að hefja tökur á myndinni, sem eiga
að mestu leyti að fara fram í Þýska-
landi, en Valkyrie fjallar um mis-
heppnaða tilraun til að ráða Adolf
Hitler af dögum og afleiðingar þess.
Ástæðan ku vera sú staðreynd að
Cruise, sem leikur aðalskipuleggj-
anda tilræðisins, ofurstann Claus
von Stauffenberg, er meðlimur Vís-
indakirkjunnar en þýsk yfirvöld eru
mjög mótfallin trúarbrögðunum.
Florian Henckel von Donners-
marck, leikstjóri hinnar rómuðu,
þýsku óskarsverðlaunamyndar, Líf
annarra, er á meðal þeirra sem tek-
ið hafa upp hanskann fyrir mynd-
ina. Hann skrifaði grein sem birt-
ist í þýskum fjölmiðlum í vikunni
þar sem hann segir að frægð Cruise
myndi gera það að verkum að hin
vanmetna hetjudáð yrði kunn allri
heimsbyggðinni. Hann bætti við
að Hollywood-stjarnan „myndi
gera meira gagn í því að auka hróð-
ur Þýskalands en tíu heimsmeist-
arakeppnir í fótbolta gætu nokk-
urn tímann gert.“ Yfirmenn þýska
fyrirtækisins Studio Babelsberg,
sem kemur að framleiðslu Valkyrie,
segja einnig að myndin muni gera
frábæra hluti fyrir Þýskaland. Sonur
Stauffenbergs er hins vegar algjör-
lega á öndverðum meiði og segir
að Cruise eigi að láta föður sinn og
minningu hans í friði.
Beðmál í
borginni í bíó
Sú saga gengur nú í Hollywood að
samningur um framleiðslu á
kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum
Beðmál í borginni sé í höfn. Það var
blaðð Tv Guide sem greindi frá
þessu. Þær Sarah Jessica Parker,
Cynthia Nixon, Kristin Davis og Kim
Cattrall munu snúa aftur í hlutverk-
um sínum og eiga tökur kvikmyndar-
innar að hefjast í haust. Upplýsingar
um söguþráð myndarinnar liggja
enn ekki fyrir.
Eiturlyfin
voru dýrkeypt
Leikarinn Dennis Hopper segir að á
sínum tíma hafi eiturlyf næstum
kostað hann lífið. Leikarinn hefur
verið edrú í 24 ár, en segir hann að ef
hann hefði ekki hætt að drekka, þá
hefði hann átt lítið eftir. „Við vorum
að gera einhverja mynd í Mexíkó. Ég
var búinn að hella í mig tequila og
kókaíni í langan tíma og komst ekki
einu sinni í upptökuverið. Svo fannst
ég nakinn, hlaupandi um í
frumskóginum stuttu seinna,“ segir
leikarinn um ófarir sínar.
föstudagur 6. júlí 2007DV Bíó 59
ENDURVINNSLAN Í HOLLYWOOD
frumgerðin hjá gagnrýnendum og al-
menningi. Þær sem nefndar eru að
framan hafa flestar fengið fína dóma
en dæmi um hið gagnstæða eru The
Omen (2006, fyrri myndin með sama
heiti frá 1976), Planet of the Apes
(2001; fyrri myndin með sama heiti frá
1968) og Halloween H20: 20 Years Lat-
er (1998; fyrri myndin, Halloween, frá
1978).
Aðdáendur endurgerða geta svo
hlakkað til því væntanlegar eru með-
al annarra endurgerð The Birds, Con-
an the Barbarian og költmyndarinnar
Hairspray. kristjanh@dv.is
The Departed Mynd scorsese er endurgerð Hong Kong myndarinnar Infernal affairs.
Hin nýja Hairspray Endurgerð költmyndar john Waters er væntanleg í kvikmyndahús.
Alfie jude law lék titilhlutverkið
í endurgerðinni árið 2004,
tæpum fjórum áratugum eftir
að Michael Caine lék alfie.
Vanilla Sky Byggð á spænsku
myndinni abre los ojos frá 1997.