Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 27. júlí 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Ungur ökufantur
Ungur ökumaður, sem var
búinn að hafa ökuréttindi í þrjá
mánuði, var gripinn við hraða-
kastur á Garðvegi á Suðurnesj-
um á miðvikudagskvöldið. Hann
mældist á 130 kílómetra hraða og
fór þar með fimmtíu kílómetrum
yfir leyfilegan hámarkshraða.
Þetta var þó ekki það eina
sem hann gerði af sér því áður
en pilturinn gaf í ók hann á móti
akstursstefnu í hringtorginu við
Mánagrund. Hann má eiga von
á sjötíu þúsund króna sekt fyrir
hraðaksturinn auk 5.000 króna
sektar fyrir aksturinn í hring-
torginu.
Foreldrum býðst fæðingarþjálfun frá meðgöngu og fram yfir fæðingu:
Fæðing með aðferðum Navajo-indjána
Verðandi foreldrum er nú boð-
ið upp á svokallaða fæðingarþjálf-
un og mæðrablessun. „Með fæð-
ingarþjálfun er fjölskyldunni veitt
samfelld þjónusta í öllu barneign-
arferlinu, frá meðgöngu, í gegnum
fæðinguna og fyrstu vikurnar eft-
ir fæðingu,“ útskýrir Eydís Hentze
fæðingarþjálfari.
Eydís segir þjónustuna vera
skipulagða í samráði við hvern og
einn og markmiðið sé að mæta til-
finningalegum þörfum móður, barns
og aðstandenda. „Ég bý svo vel að
þegar kemur að fæðingunni þekki
ég fjöskylduna nægilega vel til þess
að geta metið hvar þarf að sýna meiri
alúð og hvernig best er að hjálpa við-
komandi fjölskyldu út frá hennar eig-
in þörfum. Ég rek ekki áróður með
eða gegn ákveðnum hlutum heldur
styð ég foreldrana í þeirri ákvarðana-
töku sem þeir standa frammi fyrir,“
útskýrir Eydís.
Mæðrablessunin sem Eydís
stundar byggist á fornri athöfn Na-
vajo-indjána í Norður-Ameríku. Ey-
dís segir að í mæðrablessuninni sé
smalað saman vinum og ættingjum,
kvenfólki einvörðungu, og móður-
inni gefnar gjafir og hún heiðruð með
ýmsu móti. Hún segir gjafir þess-
ar vera táknrænar fyrir þann stuðn-
ing sem móðirin eigi hjá konum sem
standa henni nærri. „Mæðrabless-
un hefur átt vaxandi vinsældum að
fagna á undanförnum árum, bæði
í Bretlandi og í Bandaríkjunum, en
þetta er í fyrsta skipti, að ég tel, sem
boðið er upp á mæðrablessun á Ís-
landi,“ segir Eydís.
Sjálf er Eydís 28 ára gömul þriggja
barna móðir. Hún segist lengi hafa
verið heilluð af móðurhlutverkinu
og því að vera kona. Hún er einnig
heilluð af andlegum málum. Fæð-
ingarþjálfun lærði hún hjá Mia
Jiya Gilling Borgman í Danmörku.
„Þetta á skylt við Doula-aðferðina,
sem eitthvað hefur verið stunduð
hérna á Íslandi, en er engu að síður
umfangsmeira, ekki síst vegna þess
að námið er lengra og ítarlegra,“
segir Eydís. sigtryggur@dv.is
Mæðrablessun á Íslandi
Mæðrablessun byggist á athöfn
Navajo-indjána. í athöfninni gefa
vinkonur móðurinni gjafir.
Sigurður Helgi Guðjónsson, for-
maður Húseigendafélagsins, segir
bæjarfélög bera siðferðislega skyldu
gagnvart íbúunum. Húskaupandi í
Vogunum líkir ítökum Snorra Hjalta-
sonar, verktaka í bæjarfélaginu, við
áhrif ítölsku mafíunnar á byggingar-
starfsemi á Ítalíu. Hann undrast að
sveitarstjórnarmenn láti eins og þeir
viti ekki af göllum á afhentum íbúð-
um á svæðinu. Birgir Örn Ólafsson,
forseti bæjarstjórnar Voga, segist
ekki kannast við almenna óánægju
íbúa með viðskipti sín við Trésmiðju
Snorra Hjaltasonar. Hann segir að
mál sem þessi séu ekki á ábyrgð
sveitarfélagsins.
Sveitarstjórnir ábyrgar
Sigurður Helgi Guðjónsson seg-
ir að þótt bæjarfélög beri ekki nauð-
synlega lagalega skyldu til úrbóta
þegar kemur að málum verktaka og
húskaupenda sé siðferðisleg skylda
vissulega fyrir hendi. „Góður bóndi
hleypir ekki ref inn í fjárhúsið sitt.
Sveitarfélagi ber að hafa hag og heill
íbúa að leiðarljósi og gera ekkert
vísvitandi sem getur sett hagsmuni
þeirra í hættu.“ Hann bendir þó á að
í grófum tilfellum geti mál endað fyr-
ir dómstólum. „Ábyrgt sveitarfélag
myndi ekki selja Steingrími Njálssyni
íbúð við hliðina á barnahemili.“
Í DV á miðvikudag sagði Róbert
Ragnarsson, bæjarstjóri Voga, að það
kæmi sér ekki á óvart ef eitthvað væri
athugavert við frágang fasteigna við
skil til kaupenda. Hann telur eðlilegt
að eitthvað þurfi að klára eftir á þeg-
ar mikil uppbygging á sér stað.
Viðmælandi DV, sem keypti hús-
næði í Vogunum af Trésmiðjunni,
segist afar ósáttur við frágang húss-
ins og að dómskvaddur matsmaður
hafi staðfest stórkostlega bygging-
argalla. Hann bendir á að frágangur
á lögnum með neysluvatni sé með
öllu óviðunandi, lagnir fyrir heita og
kalda vatnið liggja saman og að alla
einangrun skorti.
Einnig segir hann að illa hafi ver-
ið skilið við frárennsliskerfið. Eft-
ir um árs notkun fór að flæða upp
úr niðurföllum og klósettum og þá
hafi þessi mál verið skoðuð. Nú sé til
myndbandsupptaka þar sem sést að
frárennslið hafi verið fullt af drullu
sem hafi verið óeðlilegt eftir um árs
notkun.
Viðmælandi blaðsins vill ekki láta
nafns síns getið af ótta við að eign
hans verði óseljanleg.
Hann telur að það hljóti að vera
ábyrgð sveitarfélagisins að fylgjast
með því að vandað sé til verks þegar
byggt er upp á svæðinu.
Orðrómur um óánægju íbúa
Birgir Örn Ólafsson segir aðeins
eitt formlegt erindi vegna athuga-
semda við frágang Trésmiðju Snorra
Hjaltasonar hafi komið inn á borð
sveitarstjórnarinnar frá því að hann
tók við í fyrra. „Til að bæjarfulltrúar
geti metið hversu alvarleg mál eru
þurfum við að hafa einhver gögn í
höndunum. Annars getum við ekki
tekið málin til skoðunar.“ Hann seg-
ir það leitt ef mistök hafi orðið við
byggingu íbúða í bænum en það
hljóti að vera verktakans að lagfæra
þau. „Þetta er fyrst og fremst á milli
kaupanda og seljanda.“
Í síðustu viku sagði DV frá sex
manna fjölskyldu Oddfríðar Helga-
dóttur sem er á hrakhólum eftir
viðskipti sín við Trésmiðju Snorra
Hjaltasonar. Í gær sagði húskaup-
andi þar frá því í DV að þegar hann
flutti inn í íbúð sína í Vogunum hafi
verið þar megn klóakfnykur sem
lagðist í fataskápa og rúmföt.
Birgir bendir á að þau mál sem
DV hefur fjallað um í tengslum við
vanefndir Trésmiðjunnar séu af ólík-
um toga. Annars vegar sé það mál
sem snýst um drátt á afhendingu og
hins vegar byggingargalla. „Fyrir-
tækið hefur staðið við skuldbinding-
ar sínar gagnvart sveitarfélaginu.“
Aðspurður segist hann ekki kann-
ast við óánægju íbúa í Vogum nema
þetta eina erindi sem var lagt form-
lega fram. „Annað er meira í formi
orðróms og það get ég ekki staðfest.“
Erla hlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Flæddi úr klósettUm
Sigurður helgi Guðjónsson
formaður Húseigendafélagsins segir
sveitarfélög bera siðferðislega skyldu
gagnvart íbúunum.
Sigurður helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, undrast hversu létt sveitar-
stjórnarmenn taka göllum í húsum í uppbyggingu í sveitarfélagi sínu. Forseti bæjarstjórn-
ar í Vogum segir mál er varða galla á húsnæði vera einkamál kaupanda og seljanda.
„til að bæjarfulltrúar geti metið hversu alvarleg
mál eru þurfum við að hafa einhver gögn í
höndunum. annars getum við ekki tekið
málin til skoðunar.“
nýbyggingar í Vogum á Vatnsleysu-
strönd Húskaupandi í Vogunum líkir
ítökum snorra Hjaltasonar, verktaka í
bæjarfélaginu, við áhrif ítölsku mafíunnar á
byggingarstarfsemi á ítalíu. Hann undrast að
sveitarstjórnarmenn láti eins og þeir viti ekki
af göllum á afhentum íbúðum á svæðinu.
Níu kærðir
Níu aðgerðasinnar voru
handteknir þegar þeir stöðvuðu
umferð og aðgang að Hellis-
heiðarvirkjun í gærmorgun. Þeir
hlekkjuðu sig við bifreið og komu
þannig í veg fyrir umferð að og
frá svæðinu. Lögreglan þurfti að
klippa keðjurnar í sundur. Einn
mótmælandi klifraði upp í krana
þar sem hann festi borða með
slagorðum Saving Iceland.
Með þessum aðgerðum vilja
aðgerðasinnar mótmæla meint-
um óheiðarlegum viðskiptahátt-
um Orkuveitu Reykjavíkur og
tengslum hennar við stríðsrekst-
ur. Aðgerðasinnarnir verða kærð-
ir fyrir athæfið, að sögn lögreglu-
manna á Selfossi.
Kærður fyrir
reykspól
Lögreglan á Suðurnesj-
um þurfti að hafa afskipti af
einstaklingi sem reykspólaði í
hringi. Hann var staddur á bif-
reiðaplani við nýja Njarðvík-
urvöllinn í Móahverfi. Mikill
hávaði barst frá honum ásamt
reyk. Lögreglan kom á svæðið
og greip hann glóðvolgan við
að spæna upp dekkinn hjá
sér sem getur orðið ansi dýrt.
Hann var kærður fyrir athæfið
og þarf að greiða sekt ásamt
því að endurnýja dekkin. Því
er ljóst að um nokkuð dýrt
sport er að ræða.
Göngumaður
á batavegi
Göngumaður sem féll ofan í
Laxárgil, ofan byggða í Hruna-
mannahreppi í Árnessýslu, á
miðvikudagskvöldið er á bata-
vegi.
Maðurinn fór í aðgerð og er
kominn úr öndunarvél. Hann var
stórslasaður þegar hann var færð-
ur undir læknishendur. Hann var
meðvitundarlaus þegar björgunar-
sveitin hífði hann upp úr gljúfrinu
auk þess sem úr honum blæddi.
Maðurinn er 24 ára gamall og var á
ferð með tveimur göngufélögum.
Nokkur þoka var á svæðinu við
björgun en hún gekk vel.