Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 20
Hvað er að eiginlega að hon-um Ögmundi? Hvað er að því að forsetinn okkar,
sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson,
breyti aðeins til á Bessastöðum og
leyfi okkar bestu
bissnessmönn-
um að gera þar
samninga?
Það er ekki
eins og nýjasti
Bessastaða-
samningurinn
sé eitthvert slor, ó,
nei, ekki aldeilis og
það ætti Ögmundur að viðurkenna.
Mig grunar að á Bessastöðum hafi
verið sungið lagið; ég hef aldrei
áður séð aðra eins frystikistu. Það
skal Ögmundur taka til skoðunar
að Íslendingar hafa tekið við rekstri
rosafrystikistu í Kína. Geri aðrir
betur.
Það er algjör óþarfi af Ög-mundi að láta svona. Það er eitthvað svo svalt við þetta
allt saman. Íslendingar taka yfir
risafrystikistu í Kína og skrifa undir
samninginn á forsetasetrinu. Vel
má vera að hvunndagurinn hjá for-
setanum sé ekki svo viðburðarríkur
að hann hafi ekki tíma aflögu til að
vera viðstaddur jafnmerka undir-
skrift og frystikistusamningurinn
örugglega er. Þó ekki væri nema
þess vegna er vel skiljanlegt að for-
setinn hafi viljað fá gesti til sín og
boðið upp á snittur og með þeim.
Deginum hefur eflaust verið bjargað hjá forsetanum og hann hefur vonandi sofn-
að sáttur með dagsverkið. Þess
vegna áttu allir að vera glaðir,
Kínverjarnir að hafa skrif-
að undir hjá forsetanum,
Íslendingar að hafa tekið
yfir frystikistu í Kína og
forsetinn yfir að hafa feng-
ið gesti. Allt er þetta svo já-
kvætt og gott. Ekki brást þann
dag að sólin skein og Bessastaðir
voru baðaðir í sól og jákvæðni og
framtíðardraumum tveggja þjóða.
Fánar blöktu, fuglar sungu og snitt-
ur gengu niður í maga Kínverja og
Íslendinga og forsetans.
Eitt gleymdist í gleð-inni. Það var Ög-mundur. Hann varð
önugur og gerði allt sem
hann gat til að Kínverj-
um, Íslendingum og for-
setanum yrði bumbult
af snittunum, reyndi að
þagga niður í fuglunum, fá
fánana til að liggja kyrra niður
með stöngunum og jafnvel fá þá
til að ná aðeins í stöngina hálfa og
draga fyrir sólu. Hvað vill Ögmund-
ur? Að frystikistusamningar séu
gerðir í venjuleg-
um húsum og
með venjuleg-
um vitund-
arvottum?
Nei, ágæti
Ögmundur,
ekkert svona.
Svona samninga á
að gera hjá forsetanum okkar. Ekki
endilega samninganna vegna, ekki
endilega vegna Kínverjanna eða
Íslendinganna, nei, Ögmundur,
vegna forsetans. Hann verður að
hafa verðug verkefni.
föstudagur 27. júlí 200720 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúMer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
ÁskriftarsíMi 512 7005, auglýsingar 512 70 40.
Fúllyndi ögmundar
Daggeisli
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar Sérstaða hans var meiri en svo.
Með virðingu
leiðari
Trúlega munu allir blaðamenn á Íslandi sakna Einars Odds Kristjánssonar. Hann var í hópi fárra þingmanna sem sýna fjöl-
miðlum fullan skilning. Einar Oddur
brást undantekningalaust vel við þeg-
ar fjölmiðlar leituðu til hans. Hann var
einstaklega vel að sér um flest mál, en
sérstaklega um efnahagsmál og þjóðar-
hag. Einar Oddur hafði þann hæfileika
að geta orðað hugsanir sínar. Hann var
óhræddur við að segja hug sinn og allt
þetta varð til þess að fjölmiðlar leituðu
oft til hans.
Það er kannski þriðjungur þingmanna sem skilur hlutverk
fjölmiðla, bregst vel við erindi þeirra og ætlast ekki til að frum-
kvæði frétta komi frá stjórnmálamönnunum sjálfum. Þannig
hugsandi þingmenn eru allt of fáir og það er söknuður að þeim
manni sem stóð fremstur þeirra stjórnmálamanna. Einar Oddur
Kristjánsson skilur eftir skarð sem verður vandfyllt. Eftir andlát
hans hafa augnablik leitað á hugann, augnablik sem hann hef-
ur gefið af sér til opinnar og nauðsynlegrar umræðu í samfélag-
inu. Eins leita á hugann staðreyndir um hversu djúp spor hann
setti á samtímann. Þjóðarsáttina ber hæst
og framlag hans til þess samfélags sem
við eigum í dag er verulegt. Áður en Einar
Oddur var kjörinn á þing hafði hann meiri
áhrif á sitt samfélag en flestir þingmenn og
margir ráðherrar. Einar Oddur varð aldrei
ráðherra. Hitt er vitað að áhrif hans voru
meiri en flestra þingmanna. Þekking hans
og hæfileikar urðu til þess að hann var kall-
aður til ráðgjafar frekar en flestir aðrir.
Samskipti Einars Odds Kristjánsson-
ar við fjölmiðla bera honum gott vitni. Þar
fór maður sem nálgaðist alla af virðingu
og gerði ekki mannamun. Nýliðar í blaðamennsku gátu leitað
til hans þótt þekking þeirra væri ekki ótakmörkuð og að loknu
samtali við hann leið þeim oftast vel, fannst skilningur hafa auk-
ist og vegur þeirra vera meiri. Það er ekki öllum gefið að tala
þannig við fólk að því líði sérlega vel á eftir.
Söknuður fjölskyldu Einars Odds Kristjánssonar og vina er ef-
laust mikill. Ritstjórn DV sendir syrgjendum samúðarkveðjur og
drúpir höfði í virðingu við genginn félaga. Einar Oddur lést um
aldur fram og skilur eftir sig skarð sem ekki verður fyllt. Sérstaða
hans var meiri en svo.
Dómstóll götunnar
Á að bora göng til Vestmannaeyja:
„Þetta er mikill peningur fimmtíu
milljarðar. Það er svolítið mikið á haus.
Þetta er of mikill peningur á of fáa
hausa.“
Daníel Hjörtur, 40 ára listamaður
„Mér finnst fínt að setja göng til
Vestmannaeyja. Ég hef aldrei komið
þangað, kannski verður þetta til þess
að maður fari þangað einhvern tímann.
Það þarf bara að skoða alla kosti.“
Guðni Sigurðsson, 24 ára ráðgjafi
„Það er ódýrara að toga Vestmannaeyj-
ar til lands. Ég veit ekki hvort þetta er
mjög skynsamt.“
Halldór Rúnar Magnússon, 48 ára
verslunareigandi
„Ég hef hreinlega enga skoðun á þessu.
Ég hef ekkert kynnt mér málið þannig
ég þori ekki að leggja dóm á það.“
Mörður Ingólfsson, 37 ára
verslunareigandi
sanDkorn
n Fæstir femínistar gerðu sér
grein fyrir að klámframleið-
andinn Scott
Hjorleifsson
hefði komið
í femínistap-
artí þar til
Stöð 2 færði landanum fimm
mánaða gamla frétt. Þrátt fyr-
ir að klámráðstefnunni hafi
verið aflýst mætti Scott með
félögum sínum og litu þeir
við á Barnum á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna, 8. mars.
Á efri hæðinni var árlegt partí
femínistafélagsins Bríetar. Sól-
ey Tómasdóttir gaf sig þar á tal
við klálmkarlana sem sögðust
vera ferðamenn og þeir könn-
uðust ekki við að vera femín-
istar.
n Fylgst verður með baráttu
eigenda rafvélaverkstæðis-
ins Glitnis í Borgarnesi í bar-
áttunni við Glitni banka, en
bankinn kallar sig bara fyrra
nafninu, það er Glitnir. Þetta
segja
rafvirkj-
arnir
að kalli
á tóm
vandræði hjá þeim. Þangað
berst póstur sem á að fara til
bankans og fólk hringir í raf-
virkjana þegar það á erindi við
bankann. Rafvirkjarnir í Borg-
arnesi vilja að bankinn noti
allt sitt nafn, hafin er barátta
Davíðs við Golíat og eflaust
verður fylgst með baráttunni.
n Enn á ný er umræða á vefn-
um um hvað hafi orðið af
Geir Haarde
forsætisráð-
herra, en hann
þykir hafa ein-
stakt lag á að
láta sig hverfa
og vera utan
við alla um-
ræðu í þjóðfélaginu. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem netverj-
ar sakna Geirs, en nú er sagt
undarlegt að hann skuli ekki
taka þátt í umræðunni sem er
vegna aflasamdráttar, sterkrar
krónu, hárra vaxta og annars
sem kallar á að æðsti mað-
ur efnahagsmála þjóðarinnar
skuli taka þátt.
n Sigurjón Þórðarson fyrrum
þingmaður hefur ekki mikla
trú á aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar vegna byggðamála.
Hann segir
þetta um Geir
H. Haarde á
heimasíðu
sinni. „Það er
kaldhæðnislegt
að um leið og
ég sá forsætis-
ráðherrann skarta ljósum bún-
ingi sá ég fiskverkanda sem
hafði starfrækt fiskverkun um
áratugaskeið, en sagan segir
að hann hafi verið knúinn í
gjaldþrot af sjálfri Byggða-
stofnun vegna 4 milljóna kr.
skuldar við stofnunina. Það var
skömmu áður en ríkisstjórn-
in tilkynnti að Byggðastofnun
ætti að gegna meginhlutverki
í að bjarga landsbyggðinni. Ef
maður þekkir stjórnarherrana
rétt er ekki líklegt að mikið kjöt
verði á beinunum í umtöluð-
um mótvægisaðgerðum.“