Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 22
Menning
föstudagur 27. júlí 200722 Menning DV
Silkiverk
Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson
opnar sýningu á verkum sínum
í DaLí Gallery að Brekkugötu
9 á Akureyri á morgun kl. 17.
Hildur sýnir bæði teikningar
og myndir ofnar úr silki en þar
tekst hún á við landslag á mörk-
um abstrakt og raunsæis sem
skapar aukna spennu í mynd-
um hennar, samkvæmt því sem
segir í tilkynningu. Hildur er
fædd í Reykjavík en býr og starf-
ar í Cleveland, Ohio, í Banda-
ríkjunum. Sýningin stendur
til 12. ágúst en DaLí Gallery er
opið laugardaga og sunnudaga
kl.14-17 á meðan sýningar eru.
Galdrabók
Skinnastaðarkirkja fékk afhenta nokkuð sérstaka gjöf á dögunum:
Galdrabók komin heim
„Bókin er mjög merkileg. Þar eru
allar hugsanlegar rúnir og margt
fleira. Og allt er handskrifað og málað.
Þetta er hreint listaverk,“ segir Kristj-
án Bene-
diktsson
bóndi sem
um síðustu helgi afhenti Skinnastað-
arkirkju í Öxarfirði ljósprentað afrit af
galdrabók Einars Nikulássonar sem
að sögn Kristjáns var galdrameistari
á Skinnastað á seinni hluta 17. aldar.
„Hann er eini maðurinn á Ís-
landi sem var nefndur galdrameist-
ari því sagan segir að hann hafi kennt
galdur. Þessi bók slapp samt við það
að vera dæmd galdrabók, kannski
vegna þess að það er svo mikill fróð-
leikur í henni. Hún er nefnilega dálít-
ið torlesin. Ég er ekki búinn að lesa
hana enda nýbúinn að fá hana. Það
tók nokkur ár,“ segir Kristján.
Frumrit galdrabókarinnar varð
eldi að bráð á sínum tíma en maður
að nafni Pétur Pétursson afritaði um
miðja 19. öld það eintak sem til er og
kallast Hákonarstaðarbók. Hún er
varðveitt hjá Landsbókasafni og eins
og Kristján segir var ekki hlaupið að
því að fá ljósrit af henni. Spurður hvað
hafi orðið til þess að hann fékk loks af-
ritið segir Kristján það vera gott sam-
komulag við starfsmenn bókasafns-
ins. „Já, já, þeir greiddu fyrir þessu svo
ég fékk þessa bók,“ segir Kristján og
viðurkennir að hafa þurft að punga út
nokkrum krónum fyrir vikið. „En það
er aukaatriði. Mér fannst það alveg
þess virði því bókin er upprunnin á
Skinnastöðum og þangað fannst mér
að hún ætti að fara.“ Að sögn Kristjáns
þótti prestinum í Skinnastaðarkirkju,
Jóni Ármanni Gíslasyni, afar vænt
um gjöfina.
kristjanh@dv.is
Síðustu
tónleikarnir
Fimmtu og jafnframt síðustu
tónleikarnir í tónleikaröðinni
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju verða haldnir á sunnu-
daginn. Flytjendur eru Björg
Þórhallsdóttir sópransöngkona
og Elísabet Waage hörpuleikari.
Dagskráin er fjölbreytt, spannar
íslensk og erlend sönglög og
fjölmargar aríur. Einnig munu
þær stöllur flytja skemmtilegar
útsetningar af nokkrum negra-
sálmum. Tónleikarnir, sem
hefjast kl. 17, standa í klukku-
stund án hlés og er aðgangur
ókeypis.
KAL snýr aftur
Serbneska sígaunasveitin
KAL er væntanleg til landsins á
nýjan leik í haust. Sveitin er oft
kölluð „heitasta sígaunahljóm-
sveit heims“ og átti víst stórleik
á tónlistarhátíðinni Vorblót
í fyrra þar sem hún vann sér
fjölda aðdáenda með rokkabill-
ískreyttri útgáfu sinni af sígildri
sígaunatónlist. KAL var stofn-
uð snemma á þessari öld af
bræðrunum Dushan og Dragan
Ristic, að þeirra sögn til þess að
hjálpa þeim að streitast móti
þeim fordómum og hindrun-
um sem Roma-fólk (sígaunar)
mætir hvarvetna.Tónleikar KAL
fara fram á NASA laugardags-
kvöldið 22. september en miða-
sala verður auglýst síðar.
Boogablú á Jómfrúnni
Kvartettinn Boogablú spilar á níundu tónleikum
sumartónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu á morgun. Hljómsveitin spilar boogaloo og
groove-djass af taumlausri gleði. Tónleikarnir hefjast kl.
15 og verður leikið utandyra á Jómfrúartorginu ef veður
leyfir. Aðgangur er ókeypis.
Harry Potter er allur. Sú fullyrð-
ing á alla vega við um bókaflokkinn
sem ber nafn galdrastráksins heims-
fræga, burtséð frá því hvort hún eigi
einnig við um Harry sjálfan. Milljón-
ir manna um víða veröld, háir sem
lágir, hafa keppst við undanfarna
daga að komast að örlögum Harrys í
sjöundu og síðustu bók sagnabálks-
ins, Harry Potter and the Deathly
Hallows, sem kom í búðir fyrir viku.
En hvað sem því líður – og hvort sem
höfundurinn, J.K. Rowling, ákveð-
ur að taka upp þráðinn einhvern
tímann í framtíðinni – þá má lík-
lega segja að mörg þau bókaforlög
sem hafa haft mæðginin Rowling og
Harry á sínum snærum síðastliðinn
áratug standi á ákveðnum tímamót-
um. Hér á landi er það bókaforlagið
Bjartur sem hefur gefið sögurnar út
á íslensku frá því fyrsta bókin kom
út árið 1997. Blaðamaður DV ræddi
við útgáfustjóra Bjarts í vikunni um
Harry, hugsanlegan arftaka og vænt-
anleg verk.
Seld eintök nálgast
150 þúsund
„Þetta er náttúrlega búið að vera
alveg ótrúlegt ævintýri og það er
sjaldgæft að þau verði svona stór
og mikil,“ segir Guðrún Vilmundar-
dóttir, útgáfustjóri Bjarts, um Harry
Potter-ævintýrið síðastliðin ár. „Það
er samt kannski ekki rétt að tala um
Potter eins og hann sé liðin tíð því
síðasta bókin er eftir,“ segir Guðrún
en þýðingin á lokabókinni er vænt-
anleg í nóvember.
Hvað hafið þið selt margar bæk-
ur af Harry Potter í gegnum tíðina?
„Tugir þúsunda. Fyrsta bókin fór
til dæmis í 25 þúsund eintökum og
vinsældirnar hafa alltaf verið gífur-
legar. Og um leið og það kemur út
ný bók eins og núna fara þær eldri
aftur inn á metsölulistana,“ seg-
ir Guðrún. Að því gefnu að þýð-
ing síðustu bókarinnar seljist vel í
haust, eins og gera má fastlega ráð
Bókin afhent
f.v.: gunnar Björnsson sóknarfor-
maður, séra jón Ármann gíslason
og Kristján Benediktsson.
Arftaka
Harry Potter leitað
Bókaforlagið Bjartur hefur haft breskan
galdrastrák að nafni Harry Potter í fóstri
undanfarinn áratug. En nú virðist ævin-
týrið senn á enda því sjöunda og síðasta
bókin er komin út og íslenska þýðingin er
væntanleg í haust.
Guðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri Bjarts
„Það hafa margir verið að leita að arftakanum lengi og forlögin fylgjast svolítið
með manni að nafni Barry Cunningham sem er mjög þekktur í bókabransan-
um. Hann var nefnilega einn af þeim fyrstu til að uppgötva Harry Potter.“
Arftaki Harry Potter?
Bókin tunnels er nýkomin út í
Bretlandi og selst grimmt. Margir
binda vonir við að hún, og þá
væntanlegar framhaldsbækur, verði
kveikjan að nýju „Potter-æði“.
Dvmynd Ásgeir