Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 30
Thierry Henry – sóknarmaður
Henry ætti að vera flestum knatt-
spyrnuunnendum að góðu kunnur.
Mörgum þótti kaupverðið á Henry
ekki hátt. Hann kom til Barcelona
frá Arsenal fyrir tæpa tvo milljarða
króna. Henry verður þrítugur 17.
ágúst. En miðað við hraðann sem
hann býr yfir í dag er ekki ólíklegt að
hann eigi enn nokkur ár eftir á með-
al þeirra bestu. Henry skrifaði undir
fjögurra ára samning við Barcelona.
Henry var sterklega orðaður við
Barcelona fyrir ári. Hann sló á þær
sögusagnir með því að skrifa undir
nýjan fjögurra ára samning við Ars-
enal og lýsti því yfir að það yrði hans
síðasti samningur á knattspyrnuferl-
inum.
Henry sló í gegn hjá franska lið-
inu Mónakó, þar sem hann lék
meðal annars undir stjórn Arsene
Wengers. Hann átti stóran þátt í að
Mónakó komst í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu árið 1998. Hann
skoraði sjö mörk í Meistaradeildinni
það árið, 20 ára gamall. Í janúar 1999
fór Henry til Juventus þar sem hann
náði sér aldrei á strik.
Hálfu ári síðar keypti Arsene
Wenger Henry til Arsenal fyrir 1,3
milljarða króna. Fram til þessa hafði
Henry spilað sem kantmaður, bæði
undir stjórn Wengers hjá Mónakó
og hjá Juventus. Wenger hafði hins
vegar aðrar hugmyndir og lét Henry
spila sem sóknarmaður.
Henry fór illa af stað hjá Arsen-
al og átti erfitt með að finna net-
möskvana í marki andstæðinganna
í fyrstu leikjunum. Henry skoraði
ekki mark í sex fyrstu leikjum sínum
með Arsenal. 18. september skoraði
Henry sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í
leik gegn Southampton og síðan þá
hefur hann ekki hætt að skora.
Henry spilaði átta leiktíðir í bún-
ingi Arsenal, spilaði 364 leiki, skor-
aði 226 mörk og gaf 82 stoðsending-
ar. Hann var markahæsti leikmaður
Arsenal á sjö af þeim átta leiktíðum
sem hann lék þar. Henry er marka-
hæsti leikmaður í sögu Arsenal.
Hann hefur auk þess skorað 39 mörk
í 91 landsleik fyrir Frakkland.
Sóknarmenn Barcelona eru nú
Ronaldinho, Samuel Eto‘o, Lionel
Messi, Eiður Smári Guðjohnsen auk
Henry. Það verður því á brattann að
sækja hjá íslenska landsliðsfyrirlið-
anum að komast í liðið.
Eric Abidal – vinstri bakvörður
Kom til Barcelona frá frönsku
meisturunum í Lyon fyrir 1,2 millj-
arða króna. Ef
Barcelona vinn-
ur Meistaradeild
Evrópu á næstu
fjórum árum, fær
Lyon 40 milljón-
ir aukalega. Abi-
dal skrifaði und-
ir fjögurra ára
samning.
Abidal fæddist í Lyon 11. júlí 1979
og hóf að æfa knattspyrnu með liði í
úthverfi borgarinnar. Hann hóf hins
vegar atvinnumannaferil sinn með
Mónakó og lék sinn fyrsta leik
með liðinu 16. september árið
2000. Þjálfari hans hjá Mónakó
var Claude Puel. Puel fór síðar
til Lille og keypti Abidal árið
2002.
Árið 2004 fluttist Abidal
aftur til heimaborgar sinn-
ar og gekk í raðir Lyon.
Abidal vann þrjá meist-
aratitla með Lyon áður
en hann fór fram á sölu
síðastliðið vor. Abidal
hótaði að mæta ekki á
æfingar hjá Lyon ef félag-
ið yrði ekki að ósk hans.
Svo fór að Barcelona
keypti kappann.
Abidal hefur spilað 24
landsleiki fyrir hönd Frakklands
og vakti athygli fyrir frammistöðu
sína með landsliðinu á HM í fyrra.
Gabriel Milito – miðvörður
Hárprúður
Argentínumaður
sem gekk í rað-
ir Barcelona frá
Real Zaragoza.
Liverpool gekk á
eftir Milito með
grasið í skónum
áður en hann
ákvað að semja
við Börsunga. Kaupverðið var rétt
tæplega 1,7 milljarðar króna og skrif-
aði Milito undir fjögurra ára samn-
ing.
Milito hóf atvinnumannaferil
sinn með argentínska liðinu Inde-
pendiente árið 1997. Með Inde-
pendiente spilaði hann gegn eldri
bróður sínum, Diego Milito, sem þá
lék með Racing Club. Þeir bræður
áttu síðar eftir að vera samherjar hjá
Real Zaragoza.
Real Madrid hugðist kaupa
Gabriel Milito árið 2003. Real sagði
hins vegar að Milito væri ekki búinn
að jafna sig nægilega af hnémeiðsl-
um og hætti við að kaupa hann. Tal-
ið er að ástæðan hafi hins vegar verið
sú að Milito var ekki frægur leikmað-
ur á alþjóðamælikvarða og hafi því
ekki passað inn í stjörnum prýtt lið
Real Madrid.
Real Zaragoza sá sér þá leik á
borði og festi kaup á Milito. Hann
vakti mikla athygli fyrir frammistöðu
sína með Real Zaragoza og hefur
lengi verið orðaður við stærstu lið
Evrópu.
Milito fæddist í Bernal í Arg-
entínu 7. september 1980. Hann er
fastamaður í argentínska landsliðinu
og hefur leikið 27 landsleiki.
Yaya Toure – miðjumaður
Yaya Toure fæddist í borginni Sok-
oura Bouake á Fílabeinsströndinni
13. maí 1983 og
yngri bróðir Kolo
Toure, leikmanns
Arsenal. Þeir eiga
einn yngri bróður
sem heitir Ibra-
him Toure og
leikur með Nice í
Frakklandi.
Þrátt fyrir að
vera aðeins 24 ára gamall hefur Yaya
Toure víða komið við á knattspyrnu-
ferli sínum. Hann hefur spilað með
sex félögum í jafnmörgum löndum.
Hann hefur leikið með ASEC Abidj-
an á Fílabeinsströndinni, Beveren í
Belgíu, Metalurh Donetsk í Úkraínu,
Olympiakos í Grikklandi, Mónakó í
Frakklandi og nú Barcelona á Spáni.
Mikið hefur gengið á hjá Yaya
Toure síðustu ár. Hann fór til Olympi-
akos árið 2005 og vakti athygli liða
eins og Manchester United, Lyon,
Chelsea, Barcelona og AC Milan fyr-
ir spilamennsku sína með gríska lið-
inu.
Mónakó klófesti kappann árið
2006 eftir að hann neitaði að mæta á
æfingar hjá Olympiakos. Toure sak-
aði Olympiakos um að standa ekki
við launagreiðslur. Félagið sagði aft-
ur á móti að Toure væri að ljúga til að
vera settur á sölulista.
Eftir eitt tímabil með Mónakó
samþykkti franska liðið að selja
Toure til Barcelona fyrir 817 milljón-
ir króna. Hann skrifaði undir fjögurra
ára samning við spænska stórveldið.
Yaya Toure er stór og sterkur
miðjumaður sem minnir um margt á
Patrick Vieira, leikmann Juventus og
fyrrverandi leikmann Arsenal. Kolo
bróðir hans gaf honum gælunafnið
Hinn nýi Patrick Vieira.
Aðrir leikmenn:
Maxi Lopez - var í láni hjá Real Mall-
orca á síðustu leiktíð
Giovanni Dos Santos - Mexíkómað-
ur sem fær spænskt ríkisfang síðar í
sumar
Farnir:
Giovanni van Bronckhorst – til
Feyenoord
Javier Saviola – til Real Madrid
Ludovic Giuly – til Roma
föstudagur 27. júlí 200730 Sport DV
BARCA OG REAL FARA MIKINN Á MARKAÐNUM
Barcelona
Barcelona og Real Madrid hafa farið mikinn á leik-
mannamarkaðnum í sumar og ljóst er að allt verður
lagt í sölurnar á komandi leiktíð á Spáni. Þrátt fyrir
að hafa leitt Real Madrid til sigurs í spænsku deild-
inni á síðustu leiktíð var Fabio Capello látinn taka
pokann sinn og Þjóðverjinn Bernd Schuster ráðinn í
hans stað. Frank Rijkaard er enn við stjórnvölinn hjá
Barcelona og verður að skila stórum titli í hús á
næstu leiktíð ef hann ætlar að halda sínu starfi. Kraf-
an hjá þessum liðum er ávallt sú að vinna eigi
spænska meistaratitilinn og það er ekkert til sparað í
leikmannakaupum til að ná því fram.