Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 31
DV Sport föstudagur 27. júlí 2007 31
BARCA OG REAL FARA MIKINN Á MARKAÐNUM
Pepe – miðvörður
Marga rak í rogastans þegar Real
Madrid ákvað að borga Porto tæpa
2,5 milljarða fyrir Pepe. Pepe fæddist
26. febrúar 1983 borginni Maceio í
Brasilíu. Hann fékk portúgalskt ríkis-
fang í fyrra en hefur engan landsleik
leikið á sínum ferli. Hann heitir réttu
nafni Kepler Laveran Lima Ferreira
og skrifaði undir fimm ára samning
við Real Madrid.
Ljóst er að Pepes bíður erfitt verk-
efni hjá Real Madrid. Varnarleikur
hefur sjaldan verið aðalsmerki liðs-
ins og margir forverar hans í mið-
verðinum hafa hrökklast frá. Nægir
þar að nefna Walter Samuel og Jon-
athan Woodgate, sem báðir voru
keyptir á 1,6 milljarða króna til Real
Madrid, 900 milljónum minna en
Pepe.
Pepe þykir ógnarsterkur, hraður
og mjög góður maður á móti manni.
Kraftinn í fótunum á honum má
rekja til uppeldisins. Faðir hans þótti
harður í horn að taka og þjálfaði Pepe
reglulega á ströndinni í Maceio. Þar
hljóp Pepe í sandinum og æfði sig í
að stökkva úr sjónum og yfir öldur
sem komu að landi til að efla stökk-
kraftinn. Faðir hans átti það til að
gera hlutina erfiðari með því að festa
lóð við fætur hans.
Christoph Metzelder – miðvörður
Metzelder fæddist 5. nóvember
1980 í bænum Haltern í Þýskalandi.
Hann er fasta-
maður í þýska
landsliðinu og
Ramon Calder-
on, forseti Real
Madrid, lýsir hon-
um sem sterk-
um og greindum
varnarmanni.
Metzelder er 1,94
metrar á hæð og er feikilega öflugur
skallamaður.
Ungur að árum fór Mezelder til
Schalke. Þar náði hann ekki að heilla
þjálfara liðsins og ári síðar fór hann
til Preussen Münster. Þar vakti hann
eftirtekt og var valinn í þýska lands-
liðið skipað leikmönnum átján ára
og yngri.
Borussia Dortmund heillaðist af
Metzelder og fékk hann til liðsins
árið 2000. Upphaflega átti Metzelder
að spila með varaliði liðsins en vegna
meiðsla Christian Wörns og Stefan
Reuter fékk Metzelder tækifæri með
aðalliðinu sem hann nýtti vel.
Metzelder lék nítján leiki á sínu
fyrsta tímabili hjá Dortmund. Á
næsta tímabili þar á eftir (2001–2002)
var Metzelder búinn að vinna sér fast
sæti í liðinu og var kallaður í lands-
liðið í fyrsta sinn fyrir æfingaleik
gegn Ungverjum. Hann var í þýska
landsliðinu sem tók þátt í HM 2002.
Tímabilin 2002–2003 og 2003–
2004 voru meiðslum stráð hjá Metz-
elder. Hann meiddist á ökkla og þurfti
að fara í aðgerð í október 2002 sem
hélt honum frá keppni allt tímabilið.
Hann sneri aftur í upphafi tímabils-
ins 2003–2004 og meiðslin tóku sig
upp á nýjan leik. Önnur aðgerð var
nauðsynleg.
Eftir að hafa verið frá vegna
meiðsla í nær tvö ár sneri hann til
baka árið 2004. Síðan þá hefur hann
verið fyrsti valkostur í stöðu mið-
varðar hjá þýska landsliðinu. Hann
lýsti því yfir eftir síðasta tímabil að
hann hygðist ekki endurnýja samn-
ing sinn við Dortmund, sem leiddi
til þess að hann fór til Real Madrid á
frjálsri sölu.
Javier Saviola – sóknarmaður
Til að strá salti í sárin eftir að hafa
unnið Spánarmeistaratitilinn fyr-
ir framan nefið á
Barcelona ákvað
Real Madrid að
bjóða Argentínu-
manninum Javier
Saviola samning,
sem hann þáði.
Samningur hans
við Barcelona var
útrunninn og því
þurfti Real ekkert að borga fyrir leik-
manninn.
Saviola fæddist í úthverfi Buenos
Aires 11. desember 1981. Ólíkt mörg-
um knattspyrnustjörnum sem kom-
ið hafa frá Argentínu ólst Saviola ekki
upp við fátækt. Það þýðir þó ekki að
hann hafi átt auðvelt með að komast
á þann stall sem hann er á í dag.
Saviola lék með unglingaliði River
Plate og hlaut eldskírn sína aðeins
sextán ára með aðalliði félagsins,
nánar tiltekið 18. október 1998 gegn
Gimnasia þar sem hann skoraði síð-
ara mark River Plate í 2–2 jafntefli.
Saviola lék með aðalliði River
Plate í þrjú ár áður en Barcelona festi
kaup á kappanum fyrir einn og hálf-
an milljarð króna árið 2001. Hann fór
vel af stað með Barcelona og skor-
aði sautján mörk í 32 leikjum á sinni
fyrstu leiktíð með félaginu.
Saviola skoraði ellefu mörk á sinni
annarri leiktíð hjá Barca og fjórtán á
þriðju leiktíðinni. Þrátt fyrir reglu-
lega markaskorun féll hann í ónáð
hjá Frank Rijkaard, þjálfara Barce-
lona, og var lánaður til Mónakó árið
2004. Hjá Mónakó skoraði hann að-
eins sjö mörk og fór aftur til Barce-
lona í þeirri von að vinna sér sæti í
liðinu.
Svo var ekki því Barcelona ákvað
að lána Saviola til Sevilla. Þar skor-
aði hann tuttugu mörk í 55 leikjum
og átti stóran þátt í sigri liðsins í Evr-
ópukeppni félagsliða.
Saviola fékk lítið að spreyta sig á
síðustu leiktíð með Barcelona þar
sem hann var á eftir Eiði Smára í
goggunarröðinni. Barcelona bauð
Saviola samning sem hafði í för með
sér töluverða launalækkun. Saviola
neitaði pent og fór til erkifjendanna
í Real Madrid á frjálsri sölu. Hann
skrifaði undir fjögurra ára samning
við Real.
Jerzy Dudek - markvörður
Dudek fæddist í pólsku borginni
Rybnik 23. mars 1973. Hann kom
til Real Madr-
id á frjálsri sölu
frá enska liðinu
Liverpool.
Dudek hóf fer-
ilinn með pólska
liðinu Sokot
Tychy. Árið 1996
flutti hann sig um
set og hóf að leika
með hollenska liðinu Feyenoord, þar
sem hann var varamaður Ed de Goey
á sínu fyrsta ári. De Goey fór til Chel-
sea ári síðar og þá var Dudek fyrsti
kostur í markinu.
Liverpool festi kaup á kappanum
í lok ágúst árið 2001. Dudek fór vel af
stað með Liverpool en átti það til að
gera klaufamistök. Dudek var hetja
Liverpool í úrslitaleik Meistaradeild-
ar Evrópu árið 2005 þegar hann varði
eins og berserkur og fullkomnaði
daginn með því að verja vítaspyrnu
frá Andriy Shevchenko og tryggja
Liverpool sigur.
Þrátt fyrir þetta keypti Liverpool
Jose Reina til félagsins. Þar með
missti Dudek sæti sitt í liðinu og hef-
ur mátt sætta sig við bekkjarsetu síð-
ustu tvö tímabil. Samningur Dudeks
rann út í sumar og þrátt fyrir að þurfa
væntanlega að verma bekkinn
hjá Real Madrid ákvað
hann að fara til fé-
lagsins, sem vara-
markvörður fyrir
Iker Casillas.
Spænsku risarnir Barcelona og Real Madrid undirbúa sig í óðaönn fyrir kom-
andi leiktíð og þar er ekkert til sparað. Real Madrid hirti Spánarmeistaratitilinn
af Barcelona í síðustu umferð síðustu leiktíðar. Þrátt fyrir það létu Madrídingar
þjálfarann fara. Barcelona verður með ógnvænlega sóknarlínu með þá Thierry
Henry, Samuel Eto‘o, Ronaldinho, Lionel Messi og Eið Smára.
Real Madrid
Fokdýr Pepe
kostaði real
Madrid 2,5
milljarða þegar
liðið keypti hann
frá Porto.
Aðrir leikmenn
Julio Baptista – var í láni hjá Ars-
enal á síðustu leiktíð
Roberto Soldado – var í láni hjá
Osasuna á síðustu leiktíð
Javier Balboa – var í láni hjá Rac-
ing Santander á síðustu leiktíð
Christopher Schorch – 18 ára
strákur frá Hertha Berlin
Farnir
Roberto Carlos – Fenerbahce
Diego Lopez – Villarreal
Raul Bravo – Olympiakos
Ivan Helguera – Valencia
Francisco Pavon – Real Zaragoza
David Beckham – L.A. Galaxy
Alvaro Mejia – Real Murcia
Carlos Diogo – Real Zaragoza
Pablo Garcia – lánaður til Real
Murcia
Oscar Minambres – samningslaus