Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 32
föstudagur 27. júlí 200732 Sport DV
Hugmyndasmiður Haukamanna
Aron Kristjánsson
er kominn heim til
Íslands aftur eftir
farsælan feril í Dan-
mörku sem þjálfari
og leikmaður. Hann
hefur ráðið sig sem
þjálfari meistara-
flokks Hauka og
einnig sem fram-
kvæmdastjóri deild-
arinnar. Hann ræddi
við Kára Garðarsson
um ferilinn í Dan-
mörku, starfið hjá
Haukum, stöðu hand-
boltans og væntingar
til næsta vetrar.
a
ron Kristjánsson er
fluttur aftur heim
til Íslands eftir fer-
il í Danmörku bæði
sem leikmaður og
þjálfari. Hann hefur
ráðið sig til Hauka í
Hafnarfirði sem er
hans uppeldisfé-
lag. Þar mun hann
þjálfa meistaraflokk félagsins næstu
þrjú árin auk þess starfar hann sem
framkvæmdastjóri handknattleiks-
deildar Hauka. Aron, sem er 35 ára í
dag, hefur verið gríðarlega sigursæll
sem leikmaður bæði með sínum fé-
lagsliðum og landsliði Íslands. Hann
hefur einnig getið sér gott orð sem
þjálfari hjá einu fremsta handknatt-
leiksliði Danmerkur, Skjern, og þjálf-
að þar marga góða handboltamenn.
Aron byrjaði á því að ræða um
tímann sem hann var í Danmörku.
Hann fór fyrst út árið 1998 og gerð-
ist leikmaður með Skjern. Þaðan
fór hann aftur heim til Íslands og
átti stóran þátt í frábærum árangri
Hauka árin 2001-2003. Þaðan fór
hann aftur út til Danmerkur og lék
stutta stund með Team Tvis Holste-
bro áður en hann flutti sig aftur yfir
til Skjern og gerðist þar þjálfari liðs-
ins. „Árin í Danmörku voru alveg
frábær. Ég fór fyrst út 1998 sem leik-
maður, það er eiginlega á þeim tíma
sem uppgangur handboltans í Dan-
mörku hófst. Þá gerðu forsvarsmenn
dönsku deildarinnar stóran sjón-
varpssamning við TV2. Sjónvarps-
stöðin ákvað þá að hætta með enska
boltann og veðja á handboltann. Við
það jukust möguleikar danskra liða
til að ná stórum auglýsingasamning-
um til muna. Allt í einu var handbolt-
inn orðinn söluvara og var nýtanleg
sem slík. Við þetta komu auknir pen-
ingar inn í félögin og þetta var í raun
upphafið að uppgangi handboltans
í Danmörku. Við bættist að stjórn-
un félaganna breyttist til batnaðar á
þessum tíma en þá ákváðu félögin
að setja peninga í þann þátt. Þannig
að peningarnir fóru ekki bara í að
kaupa leikmenn eins og oft er heldur
fóru þeir líka í skipulagið á klúbbun-
um,“ segir Aron.
Þurfti að taka ákvörðun
Aron talar um að eftir þrjú ár í
Skjern hafi hann ákveðið að koma
með fjölskylduna sína heim. „Þeg-
ar ég kom til Skjern náðum við þeim
ótrúlega árangri að komast upp úr
annarri deildinni og verða meistar-
ar árið á eftir. Tímabilið sem fylgdi í
kjölfarið urðum við svo bikarmeist-
arar og síðan þetta var um aldamót-
in hefur liðið verið í toppbaráttunni
í dönsku deildinni. Ég var í Skjern í
þrjú ár sem leikmaður á þessum tíma
og kom svo heim í tvö ár. Við ákváð-
um að koma heim á þessum tíma
vegna þess að við vorum nýbúin að
eignast barn auk þess sem ég glímdi
við erfið hnémeiðsli. Þess vegna
ákvað ég að koma heim og ganga til
liðs við Hauka sem voru með mjög
gott lið á þessum tíma. Ég var heima
í tvö ár en fann samt alltaf að ég vildi
fara út aftur. Það var bara allt of mik-
ið að kenna í rúmlega fullri stöðu,
þjálfa tvo flokka, æfa með meistara-
flokki og spila með landsliðinu. Ég
var aldrei heima hjá mér.
Ég fékk svo tilboð að utan eftir
að hafa leikið með landsliðinu á EM
2002 og ákvað að skella mér út aft-
ur ári seinna og gekk þá til liðs við
Team Tvis Holstebro i Danmörku.
Ég ákvað að fara aftur til Danmerk-
ur vegna reynslunnar sem ég hafði
af landinu, ég taldi þetta gott fyr-
ir mig sem leikmann og einnig fyrir
fjölskyldu mína. Hjá Holstebro var
meiningin að ég menntaði mig sem
þjálfari og tæki við meistaraflokks-
liði félagsins í kjölfarið. Ég lék ein-
ungis einn og hálfan leik með lið-
inu og lenti svo í hnémeiðslum sem
bundu enda á feril minn. Strax í kjöl-
far þessa hringdi formaður Skjern í
mig og bauð mér þjálfarastöðuna hjá
félaginu. Þá varð ég í raun að velja
hvort ég vildi fara í endurhæfinguna
og taka sénsinn hvort ég gæti kom-
ið til baka sem leikmaður eða hvort
ég vidi hella mér út í þjálfun strax.
Ég ákvað að taka þjálfarastöðuna hjá
Skjern og sé alls ekki eftir því.“
Hjá danska félaginu fann Aron
fyrir Danann Anders Dahl-Nielsen
sem var gamalreyndur handbolta-
kappi á árum áður. Hann hóf þjálf-
araferil sinn hér á Íslandi og þjálf-
aði KR árið 1982. Anders Dahl hafði