Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 36
föstudagur 27. júlí 200736 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Chivu til inter?
Kærasta rúmenans Cristians Chivu,
leikmanns roma, segir að leikmað-
urinn muni
ganga í raðir
Inter Milan á
næstu dögum.
„Cristian mun
fara til Inter fyrir
1,2 milljarða
króna. Vilji hans
er eindreginn,
hann samþykkti
meðal annars að
lækka launakröfur sínar. Hann mun
fá 393 milljónir fyrir hvert tímabil í
stað 475 milljóna og hann mun
skrifa undir fimm ára samning í stað
fjögurra,“ segir adelina Elisei,
kærasta Chivus.
Simao til atletiCo madrid
atletico Madrid hefur komist að
samkomulagi við Benfica um
kaupverð á
portúgalska
landsliðsmannin-
um simao
sabrosa.
Kaupverðið er
1,6 milljarðar
króna. auk þess
að borga Benfica
samþykkti
atletico Madrid
að láta Costinha og Ze Castro fara til
Benfica, sem hluta af kaupverðinu.
simao fór til spánar í gær til að
ganga frá samningi við Madrídarlið-
ið. simao er þar með dýrasti
leikmaður atletico frá upphafi.
Koma simao til liðsins þykir renna
stoðum undir það að Martin Petrov
sé á förum til Manchester City.
CaSSano hótar lögSókn
ítalski sóknarmaðurinn antonio
Cassano er allt annað en sáttur við
að hafa ekki
verið tekinn með
í æfingaferð real
Madrid til
austurríkis fyrr í
þessum mánuði.
Hann heldur því
fram að félagið
sé að þvinga
hann til að segja
samningi sínum
upp og hótar að fara með málið fyrir
dómstóla. Cassano er samnings-
bundinn real Madrid til ársins 2012.
Ef real Madrid ætlar sér að kaupa
hann út úr félaginu þyrfti það að
borga rétt rúman milljarð króna.
ljóst er að real Madrid vill losna við
Cassano. Það eru hins vegar fá lið
sem hafa áhuga á að fá hann, enda
þekktur vandræðaseggur á ferð.
ekki mitt SíðaSta félag
sol Campbell, samherji Hermanns
Hreiðarssonar í vörninni hjá
Portsmouth,
hefur gefið í skyn
að hann gæti
yfirgefið
Portsmouth í
sumar. Villarreal
lýsti nýverið yfir
áhuga á að fá
kappann en með
Villarreal leika
meðal annars
Pascal Cygan og robert Pires,
fyrrverandi samherjar Campbells hjá
arsenal. „Ég tel að Portsmouth verði
ekki mitt síðasta félag,“ segir
Campbell og bætir við að þrátt fyrir
að Portsmouth hafi keypt góða
leikmenn í sumar, þyrfti meira til að
koma liðinu á næsta stall. „Mér finnst
við þurfa nokkra menn í ákveðnar
stöður til að bæta okkur og fara í
rétta átt,“ segir Campbell.
SörenSen meiddur
Óvíst er hvort thomas sörensen,
markvörður aston Villa, verði klár í
slaginn þegar
enska úrvals-
deildin fer af
stað eftir tvær
vikur. Hann
tognaði aftan í
læri í æfingaleik
gegn kanadíska
liðinu toronto
fC. aston Villa
vann leikinn 4-2.
„thomas er meiddur aftan á læri. Á
þessari stundu er erfitt að segja
hversu alvarlegt það er,“ segir
Martin O‘Neill, knattspyrnustjóri
aston Villa. aston Villa mætir
liverpool á heimavelli í fyrsta leik
tímabilsins.
MARTRÖÐ
VARNARMANNSINS
Sir alex ferguson segir að stjórnarmenn Liverpool séu tækifærissinnar:
FERGUSON ÓSÁTTUR VIÐ UMBOÐSMANN HEINZE
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, er ósáttur við
umboðsmann argentínska varn-
armannsins Gabriels Heinze, leik-
manns liðsins. Manchester United
hefur neitað Liverpool um að kaupa
Heinze þrátt fyrir að Liverpool hafi
boðið uppgefið verð, 836 milljónir
króna. Liverpool hefur hótað að fara
með málið fyrir dómstóla þar sem
liðið segist hafa bréf undir höndum
þar sem segir að Heinze megi fara
fyrir þá upphæð.
Ferguson segir að umboðsmaður
Heinze eigi upptökin að þessu máli.
„Stjórnendur Liverpool eru tækifær-
issinnar, eins og við allir. Umboðs-
maðurinn hefur augljóslega kynnt
þeim stöðuna og þeir hafa brugð-
ist við. Ef umboðsmaður kæmi til
mín með með bréf þar sem stæði
að Steven Gerrard væri til sölu fyrir
ákveðna upphæð, myndi ég gera það
sama. Ég tel að hlutverk umboðs-
mannsins sé mjög vafasamt. Það er
engin spurning,“ segir Ferguson.
Þrátt fyrir að Liverpool hafi
sýnt Heinze áhuga og sögur um að
Heinze vilji fara, segir Ferguson að
argentínski varnarmaðurinn sé enn
leikmaður Manchester United og að
honum sé velkomið að klára samn-
ing sinn við félagið.
„Hann er okkar leikmaður, það er
það sem skiptir máli. Hann er ekki
leikmaður Liverpool, þrátt fyrir að
félagið láti eins og svo sé. Hann á tvö
ár eftir af samningi sínum. Ef hann
klárar sinn samning og fer svo, er
það allt í lagi okkar vegna. Þá fáum
við að njóta fimm góðra ára hjá hon-
um,“ segir Ferguson.
Liverpool segist vera tilbúið að
fara með málið fyrir dómastóla. Fé-
lagið segir að Manchester United hafi
sent umboðsmanni Heinze bréf þess
efnis að leikmaðurinn mætti fara frá
félaginu ef eitthvað félag væri tilbú-
ið að borga 836 milljónir króna. Eftir
því sem Liverpool kemst næst er ekk-
ert í bréfinu sem segir að ekki megi
selja leikmanninn til Liverpool. Það
verður hins vegar að teljast ólíklegt
að Manchester United verði bannað
að neita tilboði í samningsbundinn
leikmann. dagur@dv.is
óhress sir alex ferguson er ósáttur við umboðsmann gabriels Heinze og segir sig
hafa fullan rétt á að neita tilboði liverpool í leikmanninn, enda sé hann samnings-
bundinn til næstu tveggja ára.
F
ranski sóknarmaðurinn Thierry
Henry tók í vikunni þátt í sinni
fyrstu æfingu með Barcelona
en hann gekk til liðs við félagið
frá Arsenal ekki alls fyrir löngu.
Henry sagðist hafa verið frek-
ar ryðgaður á þessari stjörnum
prýddu æfingu.
Sóknarleikur Barcelona er ekki af ódýrari gerð-
inni og engir aukvisar sem þjálfarinn Frank Rijkaard
getur valið úr. Framtíð Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Börs-
ungum hefur verið mikið til umræðu og skyldi nú engan undra þeg-
ar menn eins og Ronaldinho, Samuel Eto‘o, Thierry Henry og Lionel
Messi berjast við hann um stöðu. Varnarmenn sofa líklega ekki mikið
daginn fyrir leik gegn þessu liði.
Messi er ekki mættur til æfinga hjá Barcelona en hann fékk frí vegna
Suður-Ameríkubikarsins. Það fór sérstaklega vel á með Henry og Ron-
aldinho á þessari æfingu hjá Barcelona í vikunni, eins og myndirnar
sýna glögglega.
ísmaðurinn
Eiður smári á
erfitt verkefni fyrir
höndum að vinna
sér inn sæti í liði
Barcelona.
í boltaleik
ronaldinho og
Henry kasta bolta
á milli sín sem er í
þyngri kantinum.
Stórstjörnur
ronaldinho og
Henry eru
greinilega
perluvinir.
kapphlaup
Það er ekkert
grín að þurfa
að kljást við
þá ronald-
inho og Eto‘o.
Barcelona hefur hafið æfingar fyrir komandi tímabil í spænska fótboltanum.
henry mætti á sína fyrstu æfingu og fór vel á með honum og ronaldinho.