Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 38
Föstudagur 27. júlí 200738 Helgarblað DV
HVERNIG HEFUR ÞÚ
NÝTT GÓÐA VEÐRIÐ?
Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur
Fjöll og firnindi
fyrir mig
„Ég geri mikið af því að ganga á fjöll. Ég var fyrir
vestan um daginn og gekk þar gersamlega út um
allt. Núna er ég staddur í Lóni á Hornafirði, ég er
í sumarbústað þar. Ég er búinn að ganga hér allt
í kring. Mér finnst alltaf langbest að ganga á fjöll
þegar veðrið er svona gott. Sumir fara til útlanda
á sumrin en ég vil það síður. Sumarið er svo stutt
hérna heima og ég vil nýta það sem best. Það er
frekar að maður skelli sér út á vorin eða haustin.“
Linda Ásgeirsdóttir leikkona
Eltist ekki
við sólina
„Ég er búin að fara býsna mikið út á land
í sumar. Ég fór með syni mínum í Töfragarð-
inn á Stokkseyri og svo fór ég austur á firði.
Ég var að skemmta á Húnavöku á Blönduósi
eina helgi þar sem ég nýtti tímann með fjöl-
skyldunni líka. Ég skellti mér líka í Nauthól-
svíkina og sleikti sólina þar í sumar, þannig
að ég er búin að gera margt í góða veðrinu.
Ég reyni eins og ég get að draga fjölskylduna
með mér þangað sem ég er að skemmta. Slá
tvær flugur í einu höggi. Ég er samt ekkert
að eltast við sólina, það er gott ef hún kemur
en það er mér ekkert kappsmál.“
Sóley Tómasdóttir femínisti
Þrumur og elding-
ar í Hollandi
„Ég skellti mér til Hollands í þrjár vikur
og naut þess að vera í þrumum og eldingum
þar. Ég er bara nýkomin heim aftur. Annars
nýt ég þess að sitja í sólinni og góða veðr-
inu á Austurvelli, þar sem ég er núna. Mér
finnst best að vera þar. Ég hef ekki enn ferð-
ast innanlands í sumar en um helgina er ég
að fara í ferðalag um Suðurlandið. Það verð-
ur frábært.“
Þorsteinn J. Vilhjálmsson fréttamaður
Reyni að synda
og veiða
„Ég hef eftir fremsta megni reynt að vinna
til að halda þjóðfélaginu gangandi en vinnu-
dagarnir hafa margir hverjir verið fremur stutt-
ir þannig að afköstin hafa ekki verið mikil. Ég
hef reynt að búa til hæfilega blöndu af sundi og
veiðiferðum í sumar. Rigningarleysi er reynd-
ar ávísun á slæmar minningar úr veiðiferðum,
bæði hjá lax- og silungsveiðimönnum og það
hefur að sumu leyti verið raunin hjá mér í sum-
ar. Á móti kemur að maður getur ekki verið mjög
gramur yfir veðrinu loksins þegar tíðin er góð.
Ég man ófá rigningarsumrin, slagveðrin og ótíð-
ina þannig að ég get illa kvartað, loksins þegar
góða veðrið kemur.“
Toshiki Toma, prestur innflytjenda
Fellibylur og
jarðskjálftar
„Ég hef því miður ekki getað ferðast inn-
anlands í sumar því ég fór til Japans þar sem
ég var í þrjár vikur. Veðrið þar var ekkert sér-
stakt, það rigndi mikið en hitinn var á bilinu
25 til 30 gráður. Sumarið var Japönum ekki
nógu gott því það komu bæði jarðskjálftar
og fellibylur. Ég slapp sjálfur við það engu
að síður. Ég á ekki von á því að ferðast um Ís-
land í sumar því allur minn frítími fór í Jap-
an. Í góðu veðri eins og í dag nota ég tímann
til að spila hafnabolta með dóttur minni.
Það er íþrótt sem fáir Íslendingar þekkja vel
og ég gæti alveg hugsað mér að kenna hana
hér.“
Inga Lind Karlsdóttir sjónvarpskona
Frábær ferð
um Vestfirði
„Ég er búin að ferðast víða um land í sum-
ar. Við fjölskyldan fórum bæði um Norður-
land og Suðurland. Hápunktur sumarsins var
samt ferðin sem við fórum um Vestfirði. Það
var alveg frábær upplifun og við vorum æð-
islega heppin með veður. Ég fór um Vestfirði
þegar ég var barn þannig að þetta var alveg
æðislegt. Við gistum í gömlu kennslustofunni
í Breiðavík, þar sem við fengum frábærar mót-
tökur. Gestgjafarnir voru allir af vilja gerðir til
að gera dvölina sem eftirminnilegasta og þetta
var æðislegt í alla staði. Við skoðuðum líka
Látrabjarg og alla þá stórbrotnu náttúru sem
Vestfirðir hafa upp á að bjóða. Nú erum við
komin heim í bili en ætlum að fara í laxveiði,
fyrst hann er farinn að láta á sér kræla. Þetta er
búið að vera æðislegt frí það sem af er.“