Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 41
Starfsferill
Össur fæddist í Reykjavík 19.6.
1953. Hann lauk landsprófi frá Hlíð-
ardalsskóla í Ölfusi 1968, stúdents-
prófi frá MR 1973, BS-prófi í líffræði
frá HÍ 1979,doktorsprófi í líffræði með
fiskeldi sem sérgrein frá Háskólanum
í East Anglia í Englandi 1983 og var
styrkþegi British Council við fram-
haldsrannsóknir 1983-84.
Össur kenndi við Gagnfræðaskól-
ann á Ísafirði 1974-75, var blaðamað-
ur og síðan ritstjóri við Þjóðviljann
1984-87, lektor við HÍ 1987-88, var
aðstoðarforstjóri Reykvískrar endur-
tryggingar 1989-91, var ritstjóri Al-
þýðublaðsins 1996-97 og ritstjóri DV
1997-98.
Össur var alþm. Reykvíkinga fyr-
ir Alþýðuflokkinn, Jafnaðarmenn og
Samfylkinguna 1991-2003 og er alþm.
Reykjavíkur Norðurkjördæmis fyr-
ir Samfylkinguna frá 2003. Hann var
umhverfisráðherra 1993-95 og var
skipaður iðnaðarráðherra og sam-
starfsráðherra Norðurlanda 24.5. sl.
Össur var forseti Listafélags MR
1972-73, varaformaður Stúdentaráðs
1975-76, og formaður þess 1976-77,
átti sæti í miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins 1985-87, í framkvæmdastjórn
þess 1985-86, var varaborgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík 1986-
90, sat í umhverfismálaráði 1986-88
og atvinnumálanefnd 1986-88, sat í
flokksstjórn Alþýðuflokksins 1991-
93, var formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins 1991-93, formaður þing-
flokks Samfylkingarinnar 2006-2007
og var formaður Samfylkingarinnar
frá stofnun í maí 2000-2005.
Össur sat í allsherjarnefnd Alþing-
is 1991-92, í sjávarútvegsnefnd 1991-
93, var formaður iðnaðarmálnefnd-
ar 1991-93, sat í landbúnaðarnefnd
1992-93, í utanríkismálanefnd 1995-
99 og 2005-2007, og var varaformað-
ur hennar 1998-99, var formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar 1995-99,
sat í umhverfisnefnd 1999-2000, í fjár-
laganefnd 1999-2001, kjörbréfanefnd
1999-2003, og efnahags- og við-
skiptanefnd 2001-2005. Hann sat í Ís-
landsdeild þingmannanefndar EFTA
1991-93 og 1999-2004, í Íslandsdeild
VES-þingsins 1995-99, Íslandsdeild
Evrópuráðsþingsins 2004-2005 og
var formaður Íslandsdeildar NATO-
þingsins 2005-2007. Hann hefur setið
í Þingvallanefnd frá 1995 og í stjórnar-
skrárnefnd frá 2005.
Fjölskylda
Össur kvæntist 26.2. 1975 Árnýju
Erlu Sveinbjörnsdóttur, f. 20.6. 1953,
doktor í jarðfræði og deildarstjóra á
Raunvísindastofnun HÍ. Hún er dótt-
ir Sveinbjörns Einarssonar kennara,
og k.h., Huldu Hjörleifsdóttur hús-
móður.
Dætur Össurar og Árnýjar Erlu
eru Birta Marsilía, f. 18.9. 1994; og
Ingveldur Esperansa, f. 21.10 1998.
Systkini Össurar eru Magnús Hall,
f. 2.7. 1955, skólastjóri og formaður
Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur,
Sigurður Valgeir, f. 7.2. 1958, rafvirki
í Reykjavík; Jófríður Ágústa, f. 18.7.
1959, búsett í Þorlákshöfn; Halldóra,
f .10.6. 1968, líffræðingur við Stokk-
hólmsháskóla.
Foreldrar Össurar voru Skarphéð-
inn Össurarson, f. 30.7. 1916, d. 5.4.
2004, búfræðingur, framkvæmda-
stjóri og kjötiðnaðarmaður, k.h., Val-
gerður Magnúsdóttir, f. 16.8. 1928, d.
21.5. 2005, húsmóðir og deildarfor-
ingi í skátahreyfingunni.
Ætt
Skarphéðinn var sonur Össur-
ar, búfræðings á Hóli í Bolungarvík,
bróður Guðmundar, skipamiðlara
í Reykjavík. Össur var sonur Kristj-
áns, verslunarstjóra á Flateyri Öss-
urarsonar, b. á Sveinseyri í Dýrafirði
Magnússonar, b. á Hóli Ingimund-
arsonar. Móðir Össurar á Sveinseyri
var Ingigerður Össurardóttir. Móð-
ir Kristjáns var Kristín Jónsdóttir, b.
á Hrauni Jónssonar, og Ingibjargar
Jónsdóttur vinnukonu. Móðir Öss-
urar á Hóli var Ragnheiður, systir
Petrínu, móður Péturs, skipstjóra hjá
Eimskip, Þorvarðar hafsögumanns
Björnssonar, og Kristínar, móður
Kristjáns Aðalsteinssonar, skipstjóra
hjá Eimskip. Ragnheiður var dóttir
Péturs, b. á Hofi Ólafssonar, b. á Mýr-
um í Dýrafirði Hákonarsonar. Móðir
Ragnheiðar var Marsibil Ólafsdóttir,
b. í Mosdal Jónssonar.
Móðir Skarphéðins var Jófríður
Ágústa, systir Ólafs húsasmiðs, föð-
ur Gunnars, arkitekts og fyrrv. skipu-
lagsstjóra Reykjavíkur og Andrésar,
fyrrv. prófasts í Hólmavík. Jófríður
var dóttir Gests, b. í Skálmá í Keldu-
dal í Dýrafirði, bróður Skarphéðins,
föður Friðjóns, fyrrv. dómsmála-
ráðherra. Gestur var sonur Jóns, b. í
Stóra-Galtardal Þorgeirssonar. Móð-
ir Gests var Halldóra, systir Hólm-
fríðar, langömmu Ingibjargar, ömmu
Ingibjargar Haraldsdóttur, rithöf-
undar og þýðanda. Bróðir Halldóru
var Þórður, langafi Gests, föður Svav-
ars sendiherra, og langafi Friðjóns
Þórðarsonar, fyrrv. dómsmálaráð-
herra, föður Þórðar, forstöðumanns
Kauphallarinnar. Halldóra var dóttir
Jóns, b. á Breiðabólstað á Fellsströnd
Jónssonar, og Halldóru Þórðardótt-
ur. Móðir Jófríðar var Ingibjörg Ein-
arsdóttir, frá Litlu-Tungu Ólafssonar,
b. á Stóru-Tungu Jónssonar.
Valgerður var dóttir Magnúsar,
bifreiðastjóra í Reykjavík Halldórs-
sonar, trésmiðs í Reykjavík Þorsteins-
sonar. Móðir Magnúsar var Gíslína,
systir Símoníu Kristjönu, ömmu Þrá-
ins Bertelssonar, kvikmyndagerðar-
manns og rithöfundar. Gíslína var
dóttir Péturs, b. á Bala á Kjalarnesi
Kristjánssonar, og Rannveigar Gísla-
dóttur, b. í Þúfukoti Þorsteinssonar,
hálfbróður Guðrúnar, langömmu
Guðlaugs, afa Guðrúnar Helgadótt-
ur rithöfundar. Guðrún var einnig
langamma Jóns, afa Smára Geirs-
sonar bæjarfulltrúa í Fjarðabyggð, og
langalangamma Ragnheiðar, ömmu
Marðar Árnasonar, fyrrv. alþm. Móð-
ir Gísla var Rannveig, systir Álfheið-
ar, langömmu Árna Eiríkssonar,
kaupmanna og leikara, afa Styrm-
is Gunnarssonar ritstjóra. Önnur
systir Rannveigar var Helga, lang-
amma Kristjóns, afa Braga bóksala
og Jóhönnu rithöfundar, móður rit-
höfundanna Illuga, Hrafns og Elísa-
betar. Móðir Rannveigar var Helga
Jónsdóttir, ættföður Fremra-Háls-
ættar Árnasonar.
Móðir Valgerðar var Jóna Krist-
ín Sigurðardóttir, b. í Götuhúsum á
Stokkseyri Sigurðssonar, og Valgerð-
ar Jónsdóttur frá Skúmsstöðum á
Eyrarbakka.
DV Ættfræði föstudagur 27. júlí 2007 41
Merkir Íslendingar:
MaÐUr VikUnnar
Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra
Haraldur Björnsson
f. 27. júlí 1891, d. 9. desember 1967
Haraldur Björnsson leikari var
sonur Björns Jónssonar, hreppstjóra
á Veðramóti í Skagafirði, og k.h. Þor-
bjargar Stefánsdóttur, systur Stefáns
skólameistara, föður Valtýs, ritstjóra
Morgunblaðsins, föður Helgu leik-
konu.
Haraldur lauk gagnfræðaprófi á
Akureyri 1911, kennaraprófi 1914
og síðan verslunarprófi í Danmörku
1915. Hann var kennari á árunum
1914-1917 og síðan sölustjóri hjá KEA
til 1924. Haraldur var einn af stofnend-
um Leikfélags Akureyrar 1917 og var
leikstjóri hjá félaginu um skeið..
Áhugi hans á leiklist varð til þess
að hann sagði lausu góðu starfi á Ak-
ureyri, fór félítill til Kaupmannahafnar
með fjölskyldu sína og hóf þar nám í
leiklist, fyrstur Íslendinga. Hann út-
skrifaðist frá Konunglega leikskólan-
um í Kaupmannahöfn og debuteraði í
Konunglega leikhúsinu þar 1927 sem
Kári í Fjalla-Eyvindi eftir Jóhann Sig-
urjónsson.
Haraldur hefur almennt verið
talinn einn mikilhæfasti leikari síð-
ustu aldar og var óneitanlega mikill
frumkvöðull í íslenskri leiklist. Hann
var fyrsti íslenski atvinnuleikarinn,
ferðaðist um landið með leiksýning-
ar í stærstu kaupstöðum á árunum
1927-1929, stóð fyrir og leikstýrði
sögusýningunni á Alþingishátíðinni
á Þingvöllum 1930, leikstýrði flestum
stærstu leiksýningum í Reykjavík um
árabil, var formaður Leikfélags Ak-
ureyrar um skeið og síðar formaður
Leikfélags Reykjavíkur 1930-1933, sat
í Þjóðleikhúsráði, kenndi framsögn
við Kennaraskólann og Austurbæj-
arskólann, starfrækti einkaleiklistar-
skóla á árunum 1930-1950 og kenndi
við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins frá
1950. Þá skrifaði hann fjölda greina
um íslenska leiklist í íslensk og erlend
blöð og tímarit.
Haraldur var stórbrotin persóna
og listamaður, hispurslaus, hressi-
legur í viðmóti og mikill húmoristi.
Hann lést að nóttu til eftir að hafa far-
ið á kostum á sviði Þjóðleikhússins
sem Jón bóndi í Fjalla-Eyvindi kvöld-
ið áður.
Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra, er ekki alveg á
því að gefa út yfirlýsingar eftir
pöntun, um mögulega afstöðu
sína til hugsanlegs eignarnáms
á jörðum á bökkum Þjórsár
vegna fyrirhugaðrar virkjun-
ar þar. Hann segist þar fylgja
reglu Margrétar Thatcher sem
jafnan neitaði að svara spurn-
ingum í viðtengingarhætti.
Þetta kom fram í þriðjudags-
blaði DV.
Össur hefði líka getað sagt að
fæst orð hefðu minnsta ábyrgð.
En þá væri hann að firra
sig ábyrgð og Össur er ekki
ábyrgðarlaus þótt hann kunni
að slá á létta strengi.