Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Page 45
DV Ferðalög föstudagur 27. júlí 2007 45
U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s
á ferðinni ÞJÓÐSAGA AF SNERPA.IS gömul saga segir frá smiðum sem urðu þess varir drykkjumaður kom að þeim svo illa drukkinn að hann valt sofandi af hestbaki og ofan í hlaðbleytuna. smiðirnir tóku hann upp og lögðu á viðarkolabing þar sem hann svaf til myrkurs. Þegar drykkjurúturinn rumskaði og fann kolin undir sér hélt hann að hann væri staddur í helvíti. Hann reis upp við olnboga og hlustaði
um stund en heyrði ekkert. Þá leiddist karli og kallaði hátt: „getur nú enginn af öllum
þeim djöflum sem hér eru saman komnir gefið mér í staupinu?“
Gönguferðir eru vanmetin afþreying en und-
anfarin ár hefur grettistaki verið lyft í merkingum
á göngustígum um land allt. Samhliða því hafa
fjölmörg ferðafélög sprottið upp þar sem boðið
er upp á alls kyns gönguferðir. Allir eiga að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi, vanir göngumenn
sem og fólk sem komið er af léttasta skeiði. Á laug-
ardaginn (28.júlí) stendur Ferðaþjónustan í Hofi
í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili.
Þar eru margir fossar, hver öðrum fallegri. Má þar
nefna fossa eins og Skínandi, Kerafoss, Skessufoss
og Dalsfoss. Gangan tekur nokkra klukkutíma en
hæðarmunur er ekki mikill en gengið verður eft-
ir fjárgötum á gilbarminum. Að göngu lokinni
verður grillað á Hofi og þar verður hægt að skella
sér í heitan pott og hafa það huggulegt. Nánari
upplýsingar má finna á vefsvæðinu ganga.is en
þar má einnig finna ítarleg göngukort af Íslandi,
upplýsingar um þær göngur sem framundan eru,
skoða myndir úr fyrri ferðum auk þess sem finna
má hagnýta tengla og upplýsingar um ferðalög
innanlands.
Á vefnum ganga.is má finna upplýsingar um fjölmargar gönguferðir:
GENGIÐ mEÐ VAtNSdAlSáRGIlI
Ferð um Þjórsárver
dagana 11. og 12. ágúst mun
ferðafélag íslands standa fyrir
dagsferðum um Þjórsárver í samvinnu
við landvernd. tilgangur ferðarinnar
er að kynna fólki Þjórsárver án þess að
leggja upp í margra daga erfiða ferð
yfir jökulvötn. Á laugardeginum
verður boðið upp á fræðslufund þar
sem sérfræðingar munu fjalla um
náttúrufar, lífríki og menningu í
Þjórsárverum í máli og myndum en á
sunnudeginum verða skoðaðar tóftir
af kofa Eyvindar og Höllu og farið inn í
Þúfuver. Nánari upplýsingar um þessa
ferð og aðrar á vegum ferðafélags
íslands má finn á vefnum fi.is.
Þeir Gylfi Ólafsson og Magni Hreinn Jónsson hafa síðan í mennta-skóla haft þann háttinn á að fara árlega saman í stutta dagsferð þar sem þeir borða páskaegg-
in sín. Á hátindi ferðarinnar er egg-
ið brotið með snöggu hnefahöggi
og nýmjólk úr flösku drukkin með.
Að sögn Gylfa þarf áfangastaðurinn
að vera afvikinn og/eða ferðamát-
inn mismunandi frá ári til árs. Þá er
áskilið að ferðirnar séu farnar upp úr
páskum, kannski snemma vors.
„Fyrsta árið átum við til að mynda
páskaeggið okkar í snjóhúsi. Þá hafði
hlánað nokkuð frá páskum, og eini
snjóskaflinn sem var nálægur var
í gili í Eyrarfjalli fyrir ofan Ísafjörð.
Þegar við höfðum nýbrotið eggið inni
í djúpum göngunum, fór lækjarnið-
ur undir okkur að gerast æ ágengari
og komumst við við illan leik úr hús-
inu,“ segir Gylfi en ferðirnar hafa yfir-
leitt gengið stóráfallalaust fyrir sig.
Útrunnin páskaegg
„Árið eftir átum við páskaeggið á
kajak í Skutulsfirði, eitt sinn fórum
við í Kirkjubólshvilft í Skutulsfirði
og einu sinni hjóluðum við úr Ön-
undarfirði yfir í Skutulsfjörð. Einu
sinni reyndum við að ganga á fjall-
ið Sjónfríð í Dýrafirði. Þá var nokk-
uð áliðið sumars og aðeins farið að
slakna á metnaði okkar fyrir því að
fara í ferðina strax að vori. Við drif-
um nú ekki alla leið upp á topp, en
settumst makindalega undir stein
í miðjum hlíðum, brutum eggið og
nutum söngs heiðlóunnar. Í seinni
tíð höfum við haft lúmskt gaman af
því að hafa löngu útrunnið páska-
egg með í för. Við höfum líka passað
okkur á að sveigja algerlega fram hjá
Nóa-fasismanum sem heltekið hef-
ur mörg páskabörn, og höfum ver-
ið óhræddir við að prófa Góu, Mónu
og meira að segja Opal-egg, en það
síðastnefnda var nú kærkomið rar-
ítet sem fékkst í gegnum bullandi
klíku,“ segir Gylfi í léttum tón, en
páskaeggjaferðir þeirra félaga höfðu
fram til ársins 2006 einskorðast við
Vestfirði.
Hindrun á Esjunni
„Árið 2006 kvað við nýjan tón.
Hvorugur okkar hafði farið á Esjuna,
og þar sem við vorum þá báðir búsett-
ir í Reykjavík ákváðum við að skella
okkur. Ekki tókst okkur að finna tíma
fyrr en í október. Ferðin var ánægju-
leg en tíðindalítil að mestu, nema
fyrir þær sakir að á Þverfellshorni
mættum við ókunnugum manni
sem spjallaði mikið og lengi við okk-
ur um allt og ekkert og aldrei virtist
hann ætla að hætta. Þá vorum við á
niðurleið og farið að kólna nokkuð
hressilega og blása á svitablaut fötin.
Það var ekki fyrr en eftir langa mæðu
sem við fengum að halda áfram nið-
urferðinni, lausir úr klóm mannsins
sem blessunarlega átti sjálfur eftir að
fara upp á topp,“ segir Gylfi. Þeir fé-
lagarnir voru frelsinu fegnir en á nið-
urleið varð þessi staka til:
Þrettánda október fórum á fjall,
föstudag tíðindalítinn.
Á horni Þverfells hittum við kall.
Hann var dálítið skrýtinn.
SléttuGANGA
Hótel Norðurljós á raufarhöfn mun
11. ágúst standa fyrir gönguferð yfir
hina ægifögru Melrakkasléttu. annars
vegar er boðið upp á 30 kílómetra
göngu frá raufarhöfn til Kópaskers
þar sem gengið verður um Hólstíg.
Hins vegar verður hægt að ganga
svipaða vegalengd frá raufarhöfn, um
Blikalón og að grjótnesi, sem er nyrst
á sléttunni. lagt verður af stað frá
Hótel Norðurljósum klukkan 9 um
morguninn en boðið verður upp á
hressingu á leiðinni og léttan
kvöldverð að göngu lokinni. leiðsögu-
maður verður með í för en þátttöku-
gjaldið er 3 þúsund krónur. Nálgast
má nánari upplýsingar á www.
nordurthing.is.
GARÐtRé oG RuNNAR
Yfirliti yfir 50 valdar tegundir trjáa og
runna hefur verið komið fyrir í anddyri
garðskálans í grasagarðinum, en félag
garðplöntuframleiðenda hefur í
samvinnu við grasagarðinn unnið að
þessu verkefni. Plönturnar 50 hafa
einnig verið merktar sérstaklega í
garðinum. í tilefni þessa mun
guðmundur Vernharðsson, garð-
plöntuframleiðandi í Mörk, leiða
fræðslugöngu um garðinn fimmtu-
daginn 2. ágúst kl. 20. Eftir gönguna
verður boðið upp á piparmintute úr
laufum sem ræktuð eru í grasagarðin-
um. gangan er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Gylfi Ólafsson er 24 framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar Vesturferða. Hann er búsettur á
Ísafirði og segir hér frá skemmtilegri hefð sem
þeir Magni Hreinn Jónsson hafa komið á.
Fossaparadís Kerafoss er einn þeirra fossa
sem sjá má í göngu með Vatnsdalsárgili.
SKRÝTINN KARL Á
ÞVERFELLSHORNI
Á Þverfellshorni
Þá gylfa og
Magna óraði ekki
fyrir hvað átti eftir
að henda þá á
niðurleiðinni.