Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Qupperneq 49
DV Helgarblað 49
Sleikt og Stíft hár
Hártíska er mjög mismunandi og fer í hringi eins og
fatatískan. Það er mjög mismunandi hvernir hár, förðun
og fleira fatahönnuðirnir velja. Að þessu sinni er áber-
andi fyrir sumarið 2007 hjá Versace, Donnu Karan og
Gucci að greiða hárið í tagl eða taka það vel frá andlitinu
en annað er uppi á teningnum hjá öðrum hönnuðum.
Smá heimatrix
Þetta láta þær frægu mixa fyrir sig og skella á andlitið
reglulega. Þú notar hálft avókadó, 1 egg, 1 matskeið
hreint jógúrt, 1 teskeið af matarsóda og 1 matskeið eða
meira eftir þörfum af kókoshnetuolíu. Öllu blandað vel
saman og haft á andlitinu í 5–10 mínútur. Verum sætar
og fínar með heimamölluðum maska.
Persónan
Nike er komið í samstarf við New York
graffitílistamanninn og fatahönnuðinn
CLAW Money. Samstarfið felst í
nokkrum vel skreyttum Blazer-skóm
sem eru komnir í sölu í sérvöldum
búðum úti um allan heim. Skórnir eru til
í nokkrum litum og eru svo sannarlega
hressandi fyrir alla. Þetta samstarf lofar
góðu því hér blandast Nike í „undir-
heimana“ og götulistina, en einnig er
hér verið að ræða um samstarf við konu,
sem eru tíðindi í heimi Nike. Heimasíða
CLAW Money er clawmoney.com og þar má sjá fötin, graffið og margt,
margt fleira.
Nike lokSiNS í
góðu Sam-
ÆviNtýri
líkaSt
Japanski hönnuðurinn Tsumori Chisato vakti þvílíka lukku með nýjustu línunni
sinni. Litirnir, munstrin og sniðin voru ótrúlega falleg með ævintýralegum blæ.
Fötin sögðu ævintýri enda mátti sjá hin ýmsu furðudýr prýða kjóla sem og pils.
Jói kjartans
Nafn? „Jóhannes Kjartansson.“
Aldur? „24 ára.“
Starf? „Grafískur hönnuður hjá auglýsinga-
stofunni Jónsson & Le‘macks. Ljósmyndari
öllum öðrum stundum.“
Stíllinn þinn? „Svolítið kornóttur, hæfilega
litríkur og algjörlega flaumrænn.“
Allir ættu að...? „...henda stafrænu
myndavélunum og dusta rykið af
filmuvélunum.“
Hvað er möst að eiga? „Casio-gullúr. Gull er
hið nýja silfur.“
Hvað keyptir þú þér síðast? „Æskan/ABC
bol í Hjálpræðishernum. 200 kall er ekki
mikið fyrir antík.“
Hverju færð þú ekki nóg af? „Ódýrum
myndavélum og rándýrum strigaskóm.“
Hvert fórstu síðast í ferðalag og af hverju?
„Fór í góðra vina hópi á Sónar-tónlistarhátíð-
ina í Barcelona til að kynna mér stöðu
teknósins í dag.“
Hvað langar þig í akkúrat núna? „Mig
langar í nýtt der. Helst litað og glært
pókerder. Góð vörn gegn gróðurhúsaáhrif-
um.“
Perlur hér heima? „Hrísey er perla
Eyjafjarðar... og Manhattan Akureyrar.“
Hvenær fórstu að sofa í nótt? „Fór að sofa
kl. 2.30 eftir að hafa horft á heimildarmynd
um stríðsljósmyndarann Robert Capa.“
Hvenær hefur þú það best? „Á kafi í
spennandi verkefni með nóg af sterkum
brjóstsykri og filmum í vasanum.“
Afrek vikunnar? „Að hafa selt meira en
helming myndanna á ljósmyndasýningunni
minni sem stendur yfir í Nakta apanum og
að hafa bætt inn fimm nýjum myndaflokk-
um á heimasíðuna mína, joi.is.“
Ótrúlega flott gella.
Klóin fræga.
Föt bæði fyrir stráka og stelpur.
FÖSTuDAGuR 27. JúLí 2007
Trílógía, 6.900 kr.
DV mynd Ásgeir