Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 54
Ninja Gaiden Sigma er endurgerð
á alveg eldgömlum Nintendo-leik.
Leikurinn hefur áður verið endur-
gerður sem Ninja Gaiden Black, sem
kom út á Xbox, en þessi er nokkuð
frábrugðinn, grafíkin er betri. Leik-
urinn hefur fengið úrvalsdóma út
um allan heim, sem er algjört beik-
on. Leikmenn fara í hlutverk ninj-
unnar Ryu, sem heldur af stað í erf-
itt ferðalag til að bjarga einhverjum
andskotanum. Ninja Gaiden Sig-
ma skarar fram úr öðrum leikjum
á nokkrum sviðum. Bardagar eru
hraðir og skemmtilegir, grafíkin
flott, stýringar þægilegar og bara
nokkuð flott RPG-kerfi. Hins vegar
finnst mér helsti gallinn vera saga
leiksins sem er bæði óspennandi
og óskiljanleg. Ninjur hættu líka
að heilla mig fyrir löngu, þar sem
þær eru ein mesta blekking og lygi
samtímans. Þessi ninja er líka alveg
einstaklega tussuleg og fer bara oft
í taugarnar á mér. Leikurinn er líka
frekar erfiður á köflum og einstak-
lega „unforgiving“, eins og sagt er.
Ef maður deyr þarf maður að byrja
upp á nýtt á asnalegum stöðum og
svo er ninjan, sem byrjar ferðalag
sitt í einhverju kyrru fjallaþorpi í
Japan, farin að berjast við vélmenni
og aðrar ninjur, með skammbyss-
ur innan tíðar. Sem er náttúrulega
ömurlegt. Tæknileg hlið Ninja Ga-
iden er nokkuð vönduð og fær fyr-
ir það fullt hús stiga. Hins vegar á
tímum þar sem hugmyndaauðgi og
frumleiki í tölvuleikjum er jafnmik-
ill og raun ber vitni er ekki hægt að
verðlauna þessu dellu. Ekki nema
maður sé með alveg sjúkt ninja-fet-
ish. Sem er ógeð.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 27. júlí 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
Brain training - Wii
Mission Impossible - DS
silverfall - PSP
Purr Pals - PSP
Mario Party 8 - Wii
Kíktu á þessa
tölvuleiKir
Vinnur til
Verðlauna
Evrópski armur Sony vann til
aðalverðlaunanna á hátíðinni
Develop industry Excellence Awards.
Sony vann til verðlauna fyrir nýjustu
leikjatölvuna sína PlayStation 3 sem
er sögð hvetja leikjaframleiðendur
hvaðanæva úr heiminum til þess að
þróa framúrskarandi næstu kynslóð-
ar tölvuleiki. Þetta er í fimmta skipti
sem hátíðin er haldin en það eru um
100 sérfræðingar víðsvegar að sem
velja sigurvegarana á hverju ári.
Á toppnum
í Bna
Nintendo heldur
áfram að tróna á
toppnum á öllum
vígstöðvum í
Bandaríkjunum.
Nýjustu sölutölur
fyrir júnímánuð sýna
að Nintendo ds er
mest selda leikjavélin
með 561.900 vélar
seldar. Þá kemur Wii í
öðru sæti með 381.800
tæplega 100.000 fleiri en
PsP sem er í því þriðja. athygli vekur að
meira að segja game Boy advance selst
betur en Ps3 þennan mánuðinn en sú
vél kom út árið 2001. Nintendo á einnig
fjóra söluhæstu leikina í Bandaríkjunum í
júní þar sem Mario Party 8 á Wii tróna á
toppnum..
Leikurinn Beowulf eða Bjólfskviða er
væntanlegur frá tölvuleikjarisanum
Ubisoft. Leikurinn er gerður í kjölfar-
ið á væntanlegri samnefndri teikni-
mynd frá stórleikstjóranum Robert
Zemeckis sem hefur gert myndir á
borð við Back to the Future, Forrest
Gump og What Lies Beneath.
Kvikmyndafyrirtækið Paramount gaf
sig á tal við Ubisoft og bað þá um að
þróa leikinn en hann fjallar líkt og
myndin um Beowulf eða Bjólf. Hann
er ungur hrokarfullur stríðsmað-
ur sem fer frá því að vera blóðugur
stríðsmaður yfir í að verða konung-
ur sinnar þjóðar. Bjólfskviða er æva-
fornt enskt ljóð sem segir þessa sögu.
Fjölmargar kvikmyndir, þættir og
teiknimyndasögur hafa verið gerðar
eftir Bjólfskviðu en nú er komið að
tölvuleiknum.
Leikurinn lítur ótrúlega vel út en
Ubisoft notast við YETI-grafíkvél-
ina sem þeir notuðust við fyrir leik-
ina Tom Clancy’s Ghost og Rec-
on Advanced Warfighter. Í leiknum
bregður maður sér að sjálfsögðu
í hlutverk Bjólfs eða Beowulf sem
er víkingur frá um 5. til 6. öld. Saga
leiksins byggist þannig upp að í
byrjun er Bjólfur hálfgert villidýr og
blóðþyrstur stríðsmaður. Eftir því
sem líður á leikinn þróast spilandinn
í tvær hugsanlegar áttir. Annaðhvort
í áttina að því að verða ennþá meira
villidýr og skrímslabani eða í áttina
að því að verða meiri hetja og að lok-
um konungur fólksins.
Ubisoft segi að þessi tvískipting fari
ekki eftir því hvort maður sé góður
eða illur í raun heldur geti maður
farið báðar leiðir í leiknum þar sem
spilandinn þarf að taka meðvitað-
ar ákvarðanir sem hafa áhrif á fólk-
ið í kringum hann. Því það er jú al-
menningurinn sem gerir konung að
því sem hann er.
asgeir@dv.is
Útgáfu tölvuleikjarins Warhound, sem
átti að koma út seinna á árinu, hefur
verið seinkað um óákveðinn tíma en
áætlað er að hann komi þó út 2008.
Leikurinn er gerður af pólska
leikjafyrirtækinu Techland sem gerði
Call of Juarez. Í leiknum er maður
fyrrverandi sérsveitarmaður sem
gerist málaliði. Í leiknum er hægt að
sérhæfa persónu sína mikið.
Leikmaður getur öðlast gáfur með
góðri frammistöðu og alls kyns
sérhæfða hæfileika. Þá ber spilandinn
einnig ábyrgð á því að halda
hermanninum í formi sem og að halda
uppi orðspori hans og fjárhagsstöðu.
Warhound
frestað
frÁ BlÓðuGum
stríðsmanni til
KonunGdÓms
Beowulf leikurinn er
gerður samfara teiknimynd
eftir robert Zemeckis
leikstjóra forrest gump.
Flott grafík leikurinn kemur
út á Ps3, PC og Xbox 360
Skrímsli eða kóngur í leiknum þarf
spilandinn að taka ákvarðanir sem hafa
áhrif á þróun Bjólfs.
NiNja í ermalausum bol Ninja Gaiden Sigma
Bardaga/
ævintýraleikur
PS3 /Xbox360
tölvuleiKur
H H H H H
Leikurinn Beowulf eða Bjólfskviða er væntanlegur frá Ubis-
oft í haust. Hann er byggður á teiknimynd sem stórleikstjór-
inn Robert Zemeckis er að fara senda frá sér