Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Page 59
Óttast
svefninn
Leikarinn Matthew Perry þjáist af
gríðarlegu svefnleysi því hann óttast
að sofna. Fyrrum Friends-leikarinn
segist hafa reynt allt sem honum
detti í hug en samt nái hann engan
veginn að slaka á á kvöldin og það
komi alltaf eitthvað upp í huga hans
sem veldur honum áhyggjum og
hræðslu. „Ég hef keypt mjög þægileg
rúmföt, á gott rúm, kveiki á kertum
áður en ég fer að sofa til að skapa
afslappandi andrúmsloft og skelli
róandi tónlist á fóninn meðan ég
bursta tennurnar en ekkert virkar. Ég
get bara ekki losnað við þennan ótta
við að sofna,“ segir þreytti leikarinn.
Fær stjörnu
Matt Damon segist hafa verið yfir sig
ánægður þegar hann fékk stjörnu í
stéttina á Hollywood Boulevard
síðastliðinn
miðvikudag en
óttast hins vegar
að gleðin sé úti
standi hann
einhvern að því
að pissa á
stjörnuna hans.
„Ég trúi ekki að
ég standi á
stjörnu með
nafninu mínu á, ég ætla að sýna
börnunum mínum þetta. Þegar ég og
Ben Affleck vorum yngri bjuggum við
í algjöru hreysi aðeins fimm götum
héðan og hefðum aldrei getað
ímyndað okkur að nafnið okkar
myndi vera áletrað hér einhvern
daginn. Sjarminn mun þó hverfa ef
ég sé einhvern míga á stjörnuna,“
segir leikarinn.
Skýtur til
baka
Leikstjórinn Michael Bay hefur nú
skotið til baka á Bruce Willis eftir að
leikarinn skrifaði á internetblogginu
sínu að hann myndi aldrei vinna
með Bay aftur því öskrandi leikstjóri
sé ekki neitt sem fólk sækist eftir en
tvíeykið starfaði saman við
Armageddon. Bay, sem nýlega
leikstýrði kvikmyndinni Transfor-
mers sem kom í kvikmyndahús á
svipuðum tíma og nýjasta Die Hard-
myndin sem Willis fer með
aðalhlutverkið í, segir að Willis hafi
gert þetta til að draga athyglina frá
Transformers og til sín. „Willis
skrifaði þetta klukkan hálffjögur um
nótt, það er ekkert viturlegt sem
kemur út úr því,“ segir Bay.
föstudagur 27. júlí 2007DV Bíó 59
Leitar til
Ronnie
Ofurmódelið Kate Moss hefur leitað
ráðlegginga varðandi ástarlífið hjá
gamla Rolling Stones-rokkaranum
Ronnie Wood.
Moss hætti
nýlega með
sjúskaða
fíkniefnaneyt-
andanum Pete
Doherty og ganga
þær sögur
fjöllunum hærra
að Pete hafi
haldið framhjá
Moss. Í kjölfarið
leitaði hún til Ronnie og eiginkonu
hans Jo en Ronnie og Moss eru
gamlir vinir. Nú býr Moss meira að
segja heima hjá þeim hjónum og
gera þau allt sem þau geta til að
hjálpa henni að gleyma vandræða-
gemlingnum Pete.
Fyrirfram ákveðið Kryddpían Melanie Brown segir í nýlegu viðtali að hún og Eddie
Murphy hafi planað að hún yrði ólétt en þau eiga nú þriggja mánaða gamla dóttur,
angel Iris. Murphy reyndi þó að þræta fyrir það að hann væri faðirinn en eftir dNa-
rannsókn kom í ljós að hann ætti stúlkuna. „Mig klígjar ennþá við því að hann hafi
reynt að þræta og að hafa þóst vera svona hissa þegar niðurstöðurnar komu í ljós því
við ákváðum í sameiningu að eignast þetta barn, það gerðist kannski hraðar en við
áttum von á en var samt alveg frábært,“ segir kryddið.
Mulroney snillingur dermot Mulroney kemur til með að leika í kvikmyndinni
flash Of genius ásamt greg Kinnear. Mulroney leikur þar gil Privick, besta vin
roberts Kearns, sem leikinn er af greg Kinnear. undirbúningsvinna er þegar hafin
fyrir myndina en hún verður kvikmynduð í toronto. Marc abraham leikstýrir
myndinni en handritið er skrifað af honum sjálfum ásamt þeim Philip railsback og
scott frank.
ANDLITIN Á BAK VIÐ RADDIRNAR
Dan Castellaneta
raddlistamaðurinn dan Castellaneta er
alveg ótrúlegur þegar kemur að því að
tala mismunandi röddum. Ekki nóg með
að dan tali fyrir eina ástsælustu
sjónvarpspersónu allra tíma heldur talar
hann fyrir 20 aðrar persónur í spring-
field. Þar af eru til dæmis Barney,
grampa, Krusty the Clown, Mayor
Quimby og hundurinn santas little
Helper.
dan sem er fæddur 1958 hefur hlotið
Emmy-verðlaun fyrir snilli sína en hann
hefur talað inn á mikið af öðru efni en
simpsons. Hann hefur ljáð rödd sína í
nálægt 150 kvikmyndir og þætti.
Nancy Cartwright
Það kemur þeim
sem vita ekki
betur alltaf
jafnmikið á óvart
að það sé kona
sem talar fyrir
Bart simpson.
Nancy talar þó
fyrir nokkrar lykilpersónur í viðbót og sjö
alls. Hún talar til dæmis fyrir Maggie
simpson, ralph, Nelson og todd
flanders. Nancy sem er fædd 1957 hefur
líkt og dan talað inn á og leikið í
fjölmörgun kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum. Þá hefur Nancy einnig
hlotið Emmy-verðlaun fyrir störf sín.
Harry Shearer
gamalreyndi grínistinn og leikarinn
Harry shearer er lítið síðri en dan í
persónusköpun
sinni. alls talar
Harry fyrir 15
persónur í the
simpsons. Þar
ber helst að
nefna scratchy,
Mr. Burns, rev.
lovejoy, Ned
flanders, lenny, President arnold
schwarzenegger, Kent Brockman,
Principal skinner, dr. Hibbert, smithers
og Otto.
Harry sem er fæddur 1943 hóf ungur að
leika í kvikmyndum og lék í myndinni
the robe árið 1950. Harry hefur leikið í
fjölmörgum myndum og lék meðal
annars í og átti part af handriti
myndarinnar this Is spinal tap.
Hank Azaria
Það kannast margir við leikarann Hank
azira sem hefur meðal annars leikið í
þáttunum friends og kvikmyndum eins
og Mystery Men, godzilla og grosse
Pointe Blank.
Hank talar fyrir
heilar 18
persónur í
myndinni.
Þekktustu
persónurnar eru
frink prófessor,
Comic Book guy,
Moe, Chief Wiggum, lou, Carl, apu,
drederick tatum og dr. Nick.
Julie Kavner
leikkonan julie Kavner talar fyrir hina
góðlegu Marge simpson. Marge er eina
persónan sem
julie talar fyrir en
hún gerir það vel.
julie er þó einnig
þekkt sem
leikkona og hefur
til dæmis leikið í
þó nokkrum
Woody allen-
myndum.
Yeardley Smith
líkt og julie talar Yeardley smith bara
fyrir eina persónu og það er lisa
simpson.
Yeardley hefur
leikið í fjölmörg-
um myndum svo
sem toys ásamt
robin Williams og
City slickers með
Billy Crystal.
The Simpsons Mov-
ie sem beðið hefur
verið eftir í 18 ár er
loksins komin í kvik-
myndahús. Myndin
er frumsýnd í dag í
flestum bíóhúsum
landsins. Ótrúlegt
en satt eru það fjór-
ir leikarar sem tala
fyrir yfir 80 persón-
ur í myndinni. Þar af
talar Dan Castella-
neta sem er rödd
Homers fyrir 20
þeirra.