Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Qupperneq 62
föstudagur 27. júlí 200762 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Það eru ekki margir sem
ganga undir nafninu Megas líkt
og tónlistarmaðurinn Magn-
ús Þór Jónsson. En Megas á
sér þó nafna og er sá japanskt
vélmenni.
Hinn jap-
anski Megas
er teikni-
myndafígura
sem ferðast
aftur í tím-
ann ásamt
rauðhærðu
hörkukvendi
og reynir að breyta örlögum
jarðarinnar eftir að illar geim-
verur hafa tekið þar öll völd.
Eins og sjá má á myndinni er
Megas með lítinn bíl í stað höf-
uðs og hlýtur það að koma sér
sérlega vel í baráttunni við ill-
menni.
n Á blaðamannafundi sem
fram fór á Kjarvalsstöðum í
gær minntist útvarpsmaður-
inn Ólafur Páll Gunnarsson á
einn ástsælasta tónlistarmann
þjóðarinar síðastliðin þrjátíu
ár, Magnús Eiríksson, en hann
kemur fram á stórtónleikum á
Menningarnótt ásamt hljóm-
sveit sinni Mannakornum. Ólaf-
ur Páll talaði þá um það að í öllu
sínu starfi í
sambandi
við tónlist á
Íslandi væri
Maggi Eiríks
eini mað-
urinn sem
hann hefði
ekki heyrt
neinn segja
eitthvað ljótt um og að hann
væri væntanlega sá eini sem
íslenska þjóðin sé bara sam-
mála um að sé dásamlegur og
það væri eins og íslenska þjóðin
hreinlega elskaði Magga Eiríks.
n Á laugardaginn fer fram
strandhandboltamótið 2007.
Að venju verður leikið í Naut-
hólsvík og spilað frá morgni til
kvölds á sér gerðum strand-
handboltavelli. Þetta er fjórða
árið í röð sem mótið er haldið
og hafa vinsældir meðal kepp-
enda sem og áhorfenda ekki
staðið á sér. 10 karlalið og 6
kvennalið hafa skráð þátttöku
í ár og sagan segir að von sé á
að einn og einn atvinnumaður
muni láta sjá sig.
Hver er maðurinn?
„Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB og alþingismaður.“
Hvað drífur þig áfram?
„Mér er áhugi á umhverfi mínu í
blóð borinn og hef ég reynt að beina
honum í skipulegan farveg á vett-
vangi verkalýðshreyfingar og stjórn-
mála.“
Er mikilvægt að hafa skoðanir og
þora að segja þær?
„Það er grundvallaratriði enda
koðnar samfélagið ella niður í geð-
leysi þar sem formleg völd og pen-
ingar ráða öllu.“
Hvernig er íslensk pólitík í dag?
„Ráðandi öfl í þjóðfélaginu eru
í einni sæng með peningavaldinu.
Það hefði þurft að fá inn í Stjórnar-
ráðið aðila sem hefðu sett því valdi
skorður.“
Ertu alltaf á móti?
„Nei, ég er alltaf með góðum mál-
stað.“
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki
að vinna?
„Markalína á milli vinnu og tóm-
stunda er ekki mjög skýr. Ég nefni
lestur, ferðlaög, útreiðar endrum og
eins en best líður mér heima í garði
með fjölskyldu og vinum.“
Hvað skiptir þig máli?
„Fjölskyldan og samfélagið. Að
þar sé heilsufar gott og allir ham-
ingjusamir.“
Ef þú mættir velja, hvaða
ráðuneyti myndirðu vilja stýra?
„Fjármálaráðuneyti.“
Eitthvað að lokum?
„Ég óska öllum gleðilegs sum-
ars og minni á að við eigum að njóta
hverrrar einustu mínutu.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+11
1
xx
xx
+11
7
xx
xxxx
xx
xx
xx
xx
xx
+9
1
xx
+9
7
+10
4
xx
xx
xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
+104
xx
xx
+12
4
+8
4
xxxx
+12
4
xx
+9
4
+9
1
xx
+12
1
xx
xx
+12
1
xx
xx
xx
+12 1
xx
xx
+114
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
AlltAf með
góðum málstAð
Ögmundur Jónasson
þingmaður Vinstri grænna,
hefur um árabil látið til sín
taka í íslenskum stjórnmálum.
Hann hleður nú batteríin fyrir
komandi kjörtímabil.
Breytingar í vændum
„Á sunnudag er því spáð að úrkomuskil komi
að landinu úr vestri og þá fari að rigna nærri
miðjum degi vestan til á landinu. um leið og
vindáttin verður suðlæg er von á því að hlýr
þeyrinn leiki um íbúa og ferðalanga á
Norður- og austurlandi,“ segir Einar
sveinbjörnsson veðurfræðingur. „í kjölfarið
eða upp úr helginni er síðan að vænta fyrstu
lægðarinnur úr suðvestri hér við við land allt
frá 10. júní ! fram að þessum breytingum á
sunnudag er reiknað með norðlægri vindátt
og að fremur svalt verði á landinu. úrkoma
norðan- og norðaustantil á föstudag og
eitthvað fram á laugardaginn. syðra verður
öllu bjartara veður, en þar munu staðbundn-
ar síðdegisdemburnar hrella suma en kæta
aðra. Á föstudag verða skúrirnar líklegastar
á suður- og suðvesturlandi, en frekar
suðaustanlands á laugardag. Þá má reikna
með björtu veðri víða vestanlands og jafnvel
einnig sums staðar inn til landsins norðan til
og á hálendinu, þó svo að dumbungur og
úrkoma verði út við sjóinn. fremur svalt loft
er yfir landinu þessa
dagana og hitinn því ekki
eins vænlegur og verið
hefur og að sama skapi
má gera ráð fyrir frekar
köldu að næturlagi,
sérstaklega þar sem stillt
verður og lítið um ský.
DaGbÓkin Mín
Emilía í Nylon
Vá, hvað það er skrítið að vera allt í einu hætt að vera fræg. Eða þannig. Ég er náttúrlega ennþá
fræg þótt ég sé hætt í Nylon, en ég
er allavega hætt að reyna að verða
enn frægari og syngja úti um allan
heim og svoleiðis. Og ég vona að
áreitið verði minna núna. Fjöl-
miðlarnir og þetta allt. Blaðamenn,
papparassar og einhverjir kreisí
aðdáendur. Maður er nú einu sinni
manneskja, skiljiði, og á sitt líf. Það
var náttúrlega óóógeðslega gaman
í Nylon, stelpurnar auðvitað frá-
bærar og það allt, en maður vill líka
stundum smáfrið fyrir sjálfan sig.
En ég á bókað eftir að sakna stelpn-
anna. Klöru örugglega mest.
Einsi er náttúrlega frábær líka. Mér
finnst nánast eins og hann sé pabbi
númer tvö. Svo er hann svo geggj-
aður plögger og umbi. Þú veist, að
hita upp fyrir Westlife! Ertu ekki
í gríninu?! Geri aðrir betur. Ókei,
Björk er náttúrlega frægasti íslenski
tónlistarmaðurinn, svo kemur
eiginlega Sigur Rós og síðan við að
mínu mati. Garðar Thor (eða Gassi
eins og ég kalla hann) á kannski eft-
ir að meika það líka ef hann heldur
rétt á spilunum. Og hann er auðvit-
að í góðum höndum hjá Einsa.
Nú ætla ég að einbeita mér að því
að vera góð eiginkona, og vonandi
seinna meir góð mamma. Hann
Pálmi minn, þessi dúlla, verður líka
örugglega ógeðslega góður pabbi.
Ég sé hann alveg fyrir mér. Og mið-
að við myndir af okkur báðum þeg-
ar við vorum lítil eignumst við ör-
ugglega geeeðveikt sætt barn! Ohh
mússí mússí! Ég fæ bara tár í augun
við að hugsa um litlu krúsídúlluna
okkar :-)
Svo get ég örugglega alltaf byrjað
aftur í Nylon ef ég vil. Að minnsta
kosti ef stelpan sem tekur við af
mér er ekkert sérstök Maður á
kannski ekki að segja svona en ég
vona það eiginlega smá ... :-/. Ég
meina, það væri náttúrlega sjúkt
gaman að eiga klikkað kombakk
einhvern tímann í framtíðinni. Eða
á ég kannski bara að verða sólóart-
ist? Robbie Williams meikaði það
allavega alveg eftir Take That.
Kæra dagbók
Tímamót
séð með augum