Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 20

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 20
18 kjör er folinsýruskortur sjaldgæfur. Ég minnist einkis tilfellis hér á landi. Helst mætti búast við að finna slíkt tilfelli meðal flogaveikra barna, sem taka diphenhydan- toin, (dilantin), primidone (Mysoline) og phenobarbital. Þessi lyf virðast trufla frá- sog folinsýru í þörmum. Anæmia perniciosa í börnum er afar sjaldgæf. Þar er um að ræða venjulegu fullorðinsgerðina eða meðfætt afbrigði, en skortur á B12 vegna ófullnægjandi fæðu heyrir til undantekninga. Anæmia aplastica, af óþekktum uppruna eða vegna lyfja hefur sést og jafnvel 1 til- felli af Fanconi’s blóðleysi hefur verið greint. Þá má að síðustu nefna hverskonar ill- kynja sjúkdóma, því að fyrr eða síðar leiða þeir í sumum tilfellum til blóðleysis líkt og langvinnir bólgusjúkdómar. Guðmundur M. Jóhannesson JÁRNSKORTSANÆMÍA í BÖRNUM Járnskortur er algengasta tegund nær- ingarskorts í heiminum og er einkum al- gengur í ungbörnum. Það er athyglisvert, að þrátt fyrir miklar framfærir í næringu ungbarna, sem hafa svo til útrýmt sjúk- dómum eins og beinkröm og skyrbjúg, hef- ur ekki tekist að fyrirbyggja járnskort í börnum og hina hypókróm míkrocytisku anæmíu, sem af honum leiðir. Hlutverk járns 1. Mestur hluti járnsins í líkamanum er í hæmoglobini rauðu blóðkornanna. Járn- skortur veldur um síðir minnkaðri hæmoglobin framleiðslu og þar af leið- andi anæmiu. Anæmia kemur þó ekki fram fyrr en á síðari stigum járnskorts þ.e.a.s. eftir að vara-járnbirgðir líkam- ans eru þrotnar. 2. Ca. 3,5% af járnforða líkamans eru í myoglobini. Myoglobin geymir súrefni fyrir þverrákótta vöðva, en lítið er vitað um áhrif járnskorts á magn myoglobins í líkamanum. 3. Ca. 2% af járni líkamans finnst í ýmsum enzymum, m.a. í meira en helmingnum af enzymum Krebbs hringsins. Járn er þannig til staðar í öllum frumum. Áður var álitið að járnskortur ylli ekki minnkun á enzym-járni fyrr en á loka- stigi járnskortsanæmiunnar, en rann- sóknir á síðustu 10—15 árum hafa leitt í ljós, að enzym-járn getur minnkað snemma í járnskorti, e.t.v. stundum áður en sjúklingurinn fær anæmiu. Þessu til staðfestingar má benda á að þreyta og lystarleysi hverfa stundum innan 2ja-3ja sólarhringa eftir að járn- meðferð er hafin þ.e.a.s. áður en hæmatologisk svörun sést. Þetta þykir benda til þess að endurnýjun á enzym- starfseminni komi á undan leiðréttingu anæmiunnar. 4. Undir eðlilegum kringumstæðum leitast líkaminn við að eiga alltaf varajárn- birgðir, sem hægt er að ganga á, ef þörf krefur. Járn er geymt í beinmerg og reticuloendothelial-vef líkamans, eink- um lifur og milta, bæði sem ferritin og hæmosiderin. Ferritin er vatnsuppleys- anlegt og er í stöðugu jafnvægi við se- járn, og ætíð til reiðu, ef líkaminn þarfn- ast þess. Hæmosiderin, sem er sennilega denaturerað ferritin, er óuppleysanlegt í vatni og ekki alveg eins aðgegnilegt fyrir þurfandi líkama. 5. Transport-járn (se-járn) gegnir mikil- vægu hlutverki, þótt það sé minna en 0,1% af heildarjárnbirgðum líkamans. í serum er járn bundið transferrini, og getur hvert transferrin-mólekúl bundið 2 járn-atóm, en við eðlilegar aðstæður er aðeins % af bindisætum transferrins í notkun. Transferrin flytur járn m.a. frá reticuloendothelialvefjum, þar sem niðurbrot r. blk. fer fram, til beinmergs- ins, þar sem járnið nýtist aftur í hæmo- globinmyndun nýrra rauðra blóðkorna.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.