Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 56

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 56
54 Shands og Steele, rannsökuðu femoral torsio hjá 238 börnum á aldrinum 3 mán- aða upp í 16 ára. Hjá börnum á fyrsta ári eða innan 12 mánaða aldurs var anteversio á lærleggshálsi u.þ.b. 39°, hjá börnum við lok 2. árs 31°. Anteversio fór síðan smá minnkandi, þannig að við lok 10. árs var meðaltalið um 24° og við lok 16 ára aldurs, 16°. Hjá fullorðnum hefur við svipaða rann- sókn fundist að meðaltali anteversio á lær- leggshálsi, er svarar til 15,3°. Shands og Steel álíta 10° frávik frá þessu meðaltali eða frá 15° vera innan eðli- legra marka. Klinisk einkenni Femoral toriso er venjulega til staðar við fæðingu, en fer ekki að vekja athygli fyrr en barnið fer að ganga eða venjulega á 2. ári. Aðalkvörtun foreldra þá er að barnið sé innskeift. Hné vísa áberandi inn á við, útlit fótleggja er óeðlilegt og barnið er klossað í hreyfingum. Við kliniska skoðun hafa sjúklingar þess- Mynd 7. — Unglingur með óeðlilega ante- versio á lærleggshálsum. Standi hann með fætur beint fram, má sjá að hnéskeljar snúa inn á við. Sé hins vegar lærleggjum snúið þannig að hnéskeljar viti fram, er hann áberandi úlskeifur. ir mjög aukna innrotation í mjöðmum, en áberandi minnkaða útrotation. Einkum er þetta áberandi ef rotationshreyfingar eru prófaðar með mjaðmir í extension. Sé rotation hins vegar prófuð með mjaðmir í flexion eru hreyfingar nánast eðlilegar. Það skal þó tekið fram að anteversio eða antetorsio í collum femoris er aðeins einn hluti af mörgum, sem geta valdið breyt- ingum á rotationshæfni í mjaðmarliðum. Meðferð Meðferð hjá ungum börnum er næsta lítil þar sem anteversio hefur eins og áður segir tilhneigingu til að minnka með vax- andi aldri. Margir mæla þó með því að reyna að teygja á mjaðmarliðum til að teygja áhugsanlegum kreppum, en a.ö.l. fylgist maður með barninu fyrstu æviárin. það virðist álit flestra að hafi óeðlileg ante- versio eða antetoriso á lærleggshálsum ekki lagast við 7—8 ára aldur, sé vafasamt að það lagist eftir það. Kemur þá vel til mála eftir þann aldur að gera rotations osteo- tomiur á lærlegg ef antetorsio er mikil. Tachdjian ráðleggur rotations osteotomi- ur á lærlegg ef barnið er orðið 8 ára eða eldra, ef ekki er hægt að útrotera í mjaðmarlið fram yfir neutralstöðu með mjaðmir í extension, ef anteversio mælist röntgenologiskt vfir 40° og ef kliniskt útlit er áberandi til lýta. TIBTAL TORSIO í fósturlífi er til staðar hjá fóstrinu tölu- verð internal tibial torsio. Við fæðingu er staðan orðin 0°, þ.e.a.s. þveröxull í gegnum malleoli er í sama fleti og þveröxull í Pegn- um proximal liðflöt tibia. Hiá fullorðnum er hins vegar normalt til staðar u.b.b. 20° lateral torsio á tibia. Töluvert erfiðara er að mæla tibial torsio en femoral torsio. Þó hafa verið fundnar upp og lýst ýmsum að- ferðum við að mæla þetta, bæði kliniskt og röntgenologiskt. Of langt mál yrði þó að lýsa því hér. Internal tibial torsio er oft til staðar samfara meðfæddum metatarsus varus. Oft er komið með barnið til skoðunar þar sem það er innskeift og hjólbeinótt. Við athug- un á internal tibial torsio er þýðingarmikið að fá vitneskju um hvort þetta ástand sé til staðar hjá fleiri systkinum eða foreldr-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.