Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 28
26
litið var standa í beinu sambandi við
neyslu slíkrar þurrmjólkur. Það nægir
þó ekki að kalkinnihald mjólkurinnar sé
hátt, ef fitan í þurrmjólk er aðallega eða
eingöngu smjörfita (kúamjólkurfita),
sem absorberast mun verr frá meltingar-
vegi ungbarna en brjóstamjólkurfitan
og vissar tegundir jurtafitu, getur þetta
einnig stuðlað að hypocalcemiskri tetani.
Kalkið binst fitunni í þarmainnihaldinu
og skilst út sem torleystar kalksápur.
Að lokum mætti minna á, að þegar mað-
urinn fer að framleiða eitthvað sem áður
hefur verið í höndum náttúrunnar sjálfrar,
má búast við ýmsum götum í þeirri fram-
leiðslu eins og reyndar tíminn hefur sýnt.
Má þar nefna þurrmjólkurtegund sem inni-
hélt of lágt B-6 vitamín eða pyridoxin,
þannig að börn fengu krampa við neyslu
þeirrar mjólkur. Vitamín E er nauðsynlegt
til að hindra bjúg og hæmolytiska anaemiu
hjá nýburum, en af einhverjum ástæðum
þarf aukið E-vitamín í þær þurrmjólkur-
tegundir, sem eru sérstaklega járnbættar
og auðugar af ómettuðum fitusýrum. Áður
hefur verið minnst á linolsýruna og
arachidonsýruna og vafalaust eiea eftir að
koma fleiri efni fram á sjónarsviðið svona
smám saman, allt eftir því hvernig þessar
fjöldatilraunir á mannfólkinu ganga.
Ef við höldum áfram að horfa á töfluna,
sjáum við að hitaeiningaþörf er nokkurn
veginn fullnægt með óblandaðri kúamjólk
og flestum þurrmjólkurteeundum, en við
að blanda kúamiólkina til helminea með
vatni og bæta einhverjum sykri út í, fást
kannski rétt yfir 400 hitaeiningar á lítra.
f næstu línu sést hversu miklu meiri
protein eru í kúamiólk en í brjóstamjólk
og gengur þurrmjólkurframleiðendum mis-
jafnlega vel að lækka þetta. Kolvetni
brjóstamjólkur er nær eineöngu lactosa og
er svo einnig í þeim þurrmjólkurteeundum
sem aigengastar eru hér á markaðnum.
Lactosa er verulega læ°ri í kúamiólk og
á e.t.v. sinn þátt í tiltöluleea léleeri kalk-
absorntion frá meltingarvegi. Eins er með
fitu, hún er töluvert lægri í kúamjólk en
brióstamjólk. í sumum teeundum þurr-
miólkur er hún allsendis ónóg og einnig
léleg að gæðum, þ.e.a.s. smiörfita.
í næstu 5 línum sjáum við hinn mikla
mismun á elektrolytum og þar aðra ástæðu
fyrir því, hversvegna þynna þarf kúa-
mjólkina þetta mikið. Þurrmjólkurtegund-
irnar eru mjög mismunandi m.t.t. kalk-
fosfór-hlutfalls, en flestar fullnægja þær
kröfum um natrium, kalium og járn inni-
hald. Hvað viðkemur vitamínum, sjáum
við, að brjóstamjólkin fullnægir næstum
öllum kröfum, nema D-vitamínþörfinni.
Kúamjólkin er aftur á móti lélegur vitamín-
gjafi, svo maður tali ekki um helmings-
blandið. Af flestum þurrmjólkurtegundum
þarf ekki að hafa áhyggjur í þessu tilliti,
nema e.t.v. með E-vitamín. Flestir mæla þó
með því að börnum sé aukalega gefið lýsis-
vitamín og C-vitamín. Að vísu eru menn
ekki á sama máli um það hvenær á að byrja
á þessu og nefna allt frá 5.—10. degi eftir
fæðingu upp í 3—4 vikna aldurinn.
Að þessu framansögðu er sýnt, að kúa-
mjólkurblandið er öldungis ónóg næring
fyrir börn á fyrstu ævivikunum og verðum
við að reyna að breyta út af þessari hefð-
bundnu matarvenju. Ef móðir getur ekki,
af einhverjum ástæðum, gefið barni sínu
af brjósti á fyrstu 2—3 mánuðunum, er
ráðlegra að gefa þurrmjólk í stað kúa-
mjólkurblands. Ef móðirin hefur einhverja
en ekki næga brjóstamjólk og þarf að gefa
aukagjöf, ætti að vera hægt að nota bland-
ið sem ábót. Óbarfi er í flestum tilfellum
að gefa þurrmjólk lengur en fyrstu 3 mán-
uðina. Um það leyti eykst fjölbreytni í
martaræði barnsins, jafnframt því sem
auka má styrkleika mjólkurblandsins og
má þá skipta yfir í kúamjólkurbland. Tafla
II sýnir tillögu um, hvernig haga mætti
fæðuejöf barna á þessum aldri.
Að lokum er á töflu III sýndur saman-
burður í grófum dráttum á innihaldi nokk-
urra helstu næringarefna í 9 þurrmjólkur-
tegundum, sem fáanlegar eru hér á mark-
aðnum, og þetta borið saman við innihald
sömu efna í brjóstamjólk og kúamiólk.
Samkvæmt framansöffðu eru aðeins 2 teg-
undir, sem uppfylla flestar kröfurnar,
(NAN og SMA Gold Cap), en áhersla skal
lögð á, að rannsóknir á nærinearþörf og
hollustuháttum í mataræði ungbarna eru
enn mjög skammt á veg komnar. Margt á
væntanlega eftir að koma í ljós á næstu
árum en mörgum spurningum verður án
efa aldrei svarað afdráttarlgust,