Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Qupperneq 28

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Qupperneq 28
26 litið var standa í beinu sambandi við neyslu slíkrar þurrmjólkur. Það nægir þó ekki að kalkinnihald mjólkurinnar sé hátt, ef fitan í þurrmjólk er aðallega eða eingöngu smjörfita (kúamjólkurfita), sem absorberast mun verr frá meltingar- vegi ungbarna en brjóstamjólkurfitan og vissar tegundir jurtafitu, getur þetta einnig stuðlað að hypocalcemiskri tetani. Kalkið binst fitunni í þarmainnihaldinu og skilst út sem torleystar kalksápur. Að lokum mætti minna á, að þegar mað- urinn fer að framleiða eitthvað sem áður hefur verið í höndum náttúrunnar sjálfrar, má búast við ýmsum götum í þeirri fram- leiðslu eins og reyndar tíminn hefur sýnt. Má þar nefna þurrmjólkurtegund sem inni- hélt of lágt B-6 vitamín eða pyridoxin, þannig að börn fengu krampa við neyslu þeirrar mjólkur. Vitamín E er nauðsynlegt til að hindra bjúg og hæmolytiska anaemiu hjá nýburum, en af einhverjum ástæðum þarf aukið E-vitamín í þær þurrmjólkur- tegundir, sem eru sérstaklega járnbættar og auðugar af ómettuðum fitusýrum. Áður hefur verið minnst á linolsýruna og arachidonsýruna og vafalaust eiea eftir að koma fleiri efni fram á sjónarsviðið svona smám saman, allt eftir því hvernig þessar fjöldatilraunir á mannfólkinu ganga. Ef við höldum áfram að horfa á töfluna, sjáum við að hitaeiningaþörf er nokkurn veginn fullnægt með óblandaðri kúamjólk og flestum þurrmjólkurteeundum, en við að blanda kúamiólkina til helminea með vatni og bæta einhverjum sykri út í, fást kannski rétt yfir 400 hitaeiningar á lítra. f næstu línu sést hversu miklu meiri protein eru í kúamiólk en í brjóstamjólk og gengur þurrmjólkurframleiðendum mis- jafnlega vel að lækka þetta. Kolvetni brjóstamjólkur er nær eineöngu lactosa og er svo einnig í þeim þurrmjólkurteeundum sem aigengastar eru hér á markaðnum. Lactosa er verulega læ°ri í kúamiólk og á e.t.v. sinn þátt í tiltöluleea léleeri kalk- absorntion frá meltingarvegi. Eins er með fitu, hún er töluvert lægri í kúamjólk en brióstamjólk. í sumum teeundum þurr- miólkur er hún allsendis ónóg og einnig léleg að gæðum, þ.e.a.s. smiörfita. í næstu 5 línum sjáum við hinn mikla mismun á elektrolytum og þar aðra ástæðu fyrir því, hversvegna þynna þarf kúa- mjólkina þetta mikið. Þurrmjólkurtegund- irnar eru mjög mismunandi m.t.t. kalk- fosfór-hlutfalls, en flestar fullnægja þær kröfum um natrium, kalium og járn inni- hald. Hvað viðkemur vitamínum, sjáum við, að brjóstamjólkin fullnægir næstum öllum kröfum, nema D-vitamínþörfinni. Kúamjólkin er aftur á móti lélegur vitamín- gjafi, svo maður tali ekki um helmings- blandið. Af flestum þurrmjólkurtegundum þarf ekki að hafa áhyggjur í þessu tilliti, nema e.t.v. með E-vitamín. Flestir mæla þó með því að börnum sé aukalega gefið lýsis- vitamín og C-vitamín. Að vísu eru menn ekki á sama máli um það hvenær á að byrja á þessu og nefna allt frá 5.—10. degi eftir fæðingu upp í 3—4 vikna aldurinn. Að þessu framansögðu er sýnt, að kúa- mjólkurblandið er öldungis ónóg næring fyrir börn á fyrstu ævivikunum og verðum við að reyna að breyta út af þessari hefð- bundnu matarvenju. Ef móðir getur ekki, af einhverjum ástæðum, gefið barni sínu af brjósti á fyrstu 2—3 mánuðunum, er ráðlegra að gefa þurrmjólk í stað kúa- mjólkurblands. Ef móðirin hefur einhverja en ekki næga brjóstamjólk og þarf að gefa aukagjöf, ætti að vera hægt að nota bland- ið sem ábót. Óbarfi er í flestum tilfellum að gefa þurrmjólk lengur en fyrstu 3 mán- uðina. Um það leyti eykst fjölbreytni í martaræði barnsins, jafnframt því sem auka má styrkleika mjólkurblandsins og má þá skipta yfir í kúamjólkurbland. Tafla II sýnir tillögu um, hvernig haga mætti fæðuejöf barna á þessum aldri. Að lokum er á töflu III sýndur saman- burður í grófum dráttum á innihaldi nokk- urra helstu næringarefna í 9 þurrmjólkur- tegundum, sem fáanlegar eru hér á mark- aðnum, og þetta borið saman við innihald sömu efna í brjóstamjólk og kúamiólk. Samkvæmt framansöffðu eru aðeins 2 teg- undir, sem uppfylla flestar kröfurnar, (NAN og SMA Gold Cap), en áhersla skal lögð á, að rannsóknir á nærinearþörf og hollustuháttum í mataræði ungbarna eru enn mjög skammt á veg komnar. Margt á væntanlega eftir að koma í ljós á næstu árum en mörgum spurningum verður án efa aldrei svarað afdráttarlgust,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.