Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 24

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 24
22 Guðmundur K. Jónmundsson UM MATARÆÐI UNGBARNA Almennu fæði heilbrigðra barna á fyrstu 6 ævimánuðunum hefur fram til þessa ver- ið alltof lítill gaumur gefinn hérlendis. í hinum iðnvædda heimi, þar sem mæður mega ekki lengur vera að því að sinna börnum sínum og hafa þau á brjósti, hefur myndast mikil verksmiðjuframleiðsla á til- búnum barnamat og fjölmörgum þurr- mjólkurtegundum. Margt nýtilegt og gagn- legt hefur komið í ljós við þessa framleiðslu og þær rannsóknir sem henni er samfara og segja má að þetta séu viðamestu tilraun- ir sem hafa farið fram á mannkyninu, eftir- litslaust. Tilraunir sem þessar geta ekki gengið án áfalla, enda hefur sýnt sig að hlotist hafa af stórslys. Hvað framtíðin ber í skauti sér, veit auðvitað enginn, en margt bendir til þess, að ýmsir hrörnunarsjúk- dómar, sem koma í ljós seinna á ævinni, geti beint eða óbeint átt uppruna sinn í rangri næringu á fyrstu ævimánuðunum. Allir, sem eitthvað hafa haft með nýbura að gjöra, veika eða fríska, eru sammála um, að brjóstamjólk sé þeirra besta og eðlileg- asta næring. Menn eru líka sammála um, að æskilegast sé, að barnið njóti brjóstamjólk- urinnar fyrstu 4—6 mánuði ævinnar a.m.k. Vísindamenn sem vinna við að reikna út næringarþörf ungbarna styðjast að mestu leyti við efnagreiningar á brjóstamjólk og eins er um þurrmjólkurframleiðendur. Þetta er þó ekki eins auðvelt og margir virðast halda. Það er alltof mikil einföldun á hlutunum að líta á eða mæla hvert eitt efni mjólkurinnar fyrir sig og ætla að draga af því einhverjar ályktanir. Mjólkin er mjög flókið biokemiskt kerfi, þar sem hin ýmsu efni verka hvert með öðru (inter- action). T.d. er þrisvar til fjórum sinnum meira kalk í kúamjólk en í brjóstmjólk, en þrátt fyrir það sér maður aldrei hypo- calcemiu hjá brjóstamjólkurbörnum vegna þess, að önnur efni til staðar í mjólkinni auðvelda frásog (absorption) kalksins. Sem annað dæmi má nefna járnið. Kúa- mjólk og brjóstamjólk innihalda mjög svipað járnmagn, en járnskortsblóðleysi, sem er svo algengt hjá pelabörnum þekkist varla hjá brjóstmylkineum. Aðeins 10— 20% af járni frá kúamjólk nýtist börnun- um, en aftur á móti absorberast allt að 50% brjóstamjólkurjárnsins. Fyrir utan þetta eru verulegar einstaklingsbundnar sveiflur á magni og innihaldi brjóstamjólk- ur, auk þess sem hún breytist frá einni viku til annarrar og jafnvel frá degi til dags. Sérstaklega eru breytingarnar áberandi m.t.t. fituinnihalds, sem er meira á morgn- ana en á kvöldin og eftir því sem tæmist úr brjóstinu í hvert mál, þá eykst fituinni- haldið. Við þetta breytist bragðið og að áliti sumra fær barnið þannig merki um að nú sé nóg komið og mál að hætta. Barn sem drekkur úr pela fær nákvæmlega út- reiknað magn í hvert sinn, hvort sem því líkar betur eða verr. Verður þar enginn náttúrulegur ventill að störfum og er ofeldi og offita mun algengari meðal pelabarna. Ef barni er gefið að vild að drekka úr pela brjóstamjólk frá brjóstamjólkurbanka, getur mánaðargamalt barn þannig torgað allt að 800 ml. og 6 mánaða gamalt allt að 1000 ml. á dag, en athuganir hafa sýnt, að 600—700 ml. af brjóstamjólk á dag nægi börnum á þessum aldri til að dafna og þroskast eðlilega. Heilbrieð móðir, sem fær eðlilega næringu og hefur næga miólk, á ekki að þurfa að bæta neinu við næringu barnsins fyrstu 4 og jafnvel ekki fyrstu 6 mánuðina, nema D-vitamíni og ef til vill C- vítamíni og fluor. Vandamálin koma ekki í ljós fyrr en gefa þarf barninu eitthvað annað en brjóstamjólk, hvort sem það er hin hefðbundna kúamiólkurblanda eða ný- tískulesri aðferðin með þurrmjólk. íslendingar hafa lifað tímana tvenna og ekki er langt síðan þeir bjuggu við hungur og vesöld. Næring ungbarna á þeim tímum hefur vafaiaust ekki verið upp á marga fiska hjá þeim sem ekki fengu móðurmjólk. Það er varla einn mannsaldur síðan kúa- mjólk varð þjóðardrykkur hér, bæði til sjávar og sveita og hafa eldri samtíma-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.