Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 25

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 25
23 tnenn okkar flestir verið nærðir á mjöli eða brauði uppbleyttu í vatni og gefið að sjúga í gegnum tuskuhorn eða svokallaða dúsu. Stefndu þá allir að því að reyna að metta börnin og róa þau, en auðvitað hafði enginn ráð á að hugsa um næringargildið. Þessi hugsunarháttur hefur haldist furðu lengi hér þrátt fyrir almenna velmegun og sæmilegt menntunarástand þjóðarinnar. Eftir að kúamjólkin flaut á allra borðum, hættu menn að hafa af þessu nokkrar áhyggjur. Settar voru upp einfaldar notk- unarreglur: Barn á fyrsta mánuði fær mjólk sem blönduð er 1 á móti 1 með vatni. Á öðrum mánuði 2 á móti 1 og svo framvegis, þannig að 5—6 mánaða gamalt barn fær óblandaða mjólk. Þetta þekkjum við öll. Þessar reglur gilda enn í dag hér á íslandi, reglur sem farið var að leggja á hilluna í nágrannalöndum okkar fyrir 20—30 árum og eru nú ekki lengur við lýði norðan Alpa- fjalla. Ef við höldum áfram að gera samanburð við nágrannaþjóðir okkar, er rétt að taka fram, að við erum mun fyrri til en þær, bæði vestanhafs og austan, að byrja að gefa ungbörnum fasta fæðu og grauta. Stafar þetta vafalaust að verulegu leyti af því, hve mjólkurblandið á fyrstu mán- uðunum hefur lélegt næringargildi og fáar hitaeiningar. Börnunum er því gefið of mikið magn af þessu, þau belgjast upp, verða óvær og hætta að þrífast. Reynt er að metta þau betur með því að byrja á mjöli og grautarejöfum strax á 4—6 vikna aldri og jafnvel fyrr. Hefur þetta vafalaust bjargað mörgum frá vannæringu á þessum fyrstu ævivikum, en á hinn bósinn er ýmis- legt sem bendir til þess, að ekki er heppi- legt að byrja of snemma með fasta fæðu. f fyrsta lagi: Offita seinna á ævinni eetur átt rætur sínar að rekja til ofeldis á fyrsta æviári. Athugið samt sem áður, að ofeldi á öllum uppvaxtartímanum getur haft sömu afleiðinsar. Það hefur nýleffa verið sýnt fram á að hjá manninum, halda fitufrum- urnar áfram að skipta sér allt fram á kvn- þroskaaldurinn, en þetta skeður ekki hjá tilraunadýrum, sem eru notuð í sambandi við næringarfræðilegar athuganir. í öðru lagi: Ofnæmi. Öll önnur næring en brjóstamjólk, gefin snemma eftir fæðingu eykur á möguleikana til að mynda ofnæmi. Brjóstmylkingurinn sem ekki fær neins konar ábót við sína næringu, fær eins lítið af antigenum (mótefnavökum) og mögu- legt er. Meltingarvegur ungbarna hleypir i gegnum slímhúðina tiltölulega stórum, ó- meltum molekúlum. Með því að byrja snemma að gefa fasta fæðu hlýtur því hættan á sensitiseringu og þar af leiðandi ofnæmisvandamálum seinna á ævinni að aukast stórlega. Börn sem fá ekki brjósta- mjólk hafa minna IgA í meltingarveginum og gæti þetta líka leitt til auðveldari absorptionar (frásogs) á fæðu-antigeni. Sérstaklega þarf að hafa í huga börn þeirra foreldra, sem sjálfir hafa ofnæmissjúk- dóma eða eiga eldri börn með ofnæmi. Reyna skal þá allt til þess, að móðirin geti haft börnin á brjósti og geti forðast kúa- mjólk og fasta fæðu fyrir barnið a.m.k. fyrstu 3—4 ævimánuðina. Að einnig kúa- mjólk og þar af leiðandi líka þurrmjólk, skipti máli í þessu sambandi, má sjá af athugunum prof. Soothill í London, sem sýndi fram á að atopiskir sjúkdómar (eczem, asthma, urticaria) eru miklu al- gengari hjá börnum sem hafa nærst á kúa- mjólk fyrstu 3 mánuði ævinnar heldur en hjá beim sem eingöngu fenffu brjóstamióik. Ymsir fleiri annmarkar eru taldir á því að gefa barni snemma fasta fæðu. Flestir eru teoretiskir og illa sannaðir, þannig að ég ætla ekki að telja þá uop hér. Þar sem notkun þurrmjólkur hefur færst í vöxt hér á landi á síðustu árum og á vafa- laust eftir að aukast verulega, er nauðsyn- legt að veita þessari fæðutegund meiri at- hygli en gert hefur verið hingað til. f þessu frjálsa landi virðist hvaða kaupmaður sem er geta flutt inn hvaða þurrmiólk sem er og lítið eftirlit er haft með þessu, Áhugi yfirvalda er svipaður og áhugi kaunmann- anna sjálfra, þ.e.a.s. gróðasjónarmið, og eru því lagðir verulegir tollar á þessa vöru. Fólkið sem kaupir vöruna og hefur ekki aðrar upplýsingar en það sem utan á dós- inni stendur, oftast á erlendum tungumál- um, gefur barninu þetta í þeirri góðu trú að þarna sé holl og æskileg næring. „Next to mothers milk only“ eða eitthvað slíkt auglýsingaslagorð hefur vafalaust einnig getað blindað þá, sem betur eiga að vita. Það er aldrei hægt að ,.humanisera“ kúa- mjólkina nema að vissu marki. Á meðan

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.