Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 30

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 30
28 Halldór Hansen, yngri UM UNG- OG SMÁBARNAVERND TAKMÖRK OG MARKMIÐ I. 1. Lækka ungbarnadauða. 2. Draga úr sjúkdómatíðni og varanlegum áhrifum sjúkdóma á vöxt og þroska barna. 3. Fækka meðfæddum eða áunnum ágöll- um — bæta hlutskipti og ástand þeirra, sem ekki tekst að forða. II. 1. Styðja foreldra í foreldrahlutverki sínu. 2. Laða fram foreldrahæfileika einstak- linesins. 3. Stuðla að því, að foreldrahæfileikar nýt- ist. III. 1. Hafa áhrif til hóta á allt, sem truflað getur foreldra í uppeldishlutverki sínu eða börn i eðlilegum þroska. ÁRANGUR BYGGIR Á 1. að eftirlit nái til sem flestra og helzt allra barna. 2. að þjónustan sé aðlöguð þörfum barna og foreldra. 3. að þekking og skilningur sé fyrir hendi á helztu vandamálum, sem steðja að heilbrigði og velferð barna. 4. að fylgiast með hreyfincum og breyting- um á fjölskyldu og þjóðháttum og þeim áhrifum, sem brevtingarnar hafa á heil- brigði og velferð barna. 5. Að starfslið hafi áhuea á að vinna að þessum málum auk þekkingar til að leysa verkefnið vel af hendi. HV4R STÖNDUM VIÐ? í þjóðfélagi nútímans eru lífshættulegar farsóttir orðnar harla sjaldgæft fyrirbæri; heilsufar barna almennt er gott og ung- barnadauði með því lævsta sem þekkist. Fáir deyja á barnsaldri úr sjúkdómum, sem til er við lækning og langoftast tekst að uppeötva bætanlega líkamságalla eða frávik tiltölulega snemma. Samt er ekki langt síðan, að þessu var á allt annan veg farið. Stór hluti barna hér- lendis féll í valinn strax í frumbernsku og af stórum systkinahóp náðu oft ekki nema nokkur börn fullorðinsaldri. í grimmúðlegri samkeppni náttúrunnar þurfti bæði harðgerðan líkama og talsverða heppni til að lifa af hættur uppvaxtarár- anna, enda var bernskan viðurkennt hættu- skeið í lífi einstaklingsins. BREYTT OG BREYTILEG VIÐHORF Árangur hefur náðst vegna þess að mann- legt hugvit hefur gripið inn í eðlilega rás náttúrunnar, en sú hætta vofir yfir, að náttúran geti náð yfirtökunum aftur í sam- skiptum við manninn, auk þess sem lausn eins vanda fæðir oft af sér ný og stundum áður óþekkt vandamál. Hugvit mannsins hefur því ekki efni á að gleyma sér í ánægjunni yfir náðum ár- angri, heldur verður það að standa fastan vörð um þann árangur, sem náðst hefur og byggja ofan á þann grundvöll, sem fyrir er. Sé líf barna sjaldnar í hættu og þá af öðrum ástæðum en áður, gerast aðrar hætt- ur áleitnari og þá sérstaklega þær, sem steðia að tilfinningaöryggi, andlegri vel- ferð og jafnvel lífshamingju barna. Hið gullna jafnvægi á milli aðhlynningar líkama og sálar er engan veginn auðfundið. Þau vísindi, sem fást við ,,somatisk“ vanda- mál stangast ekki ósialdan á við þau, sem fást við „psychisk“ eða „félagsleg“ vanda- mál. Þó virðast „psyche“ og „soma“ óað- skiljanlega samtvinnuð fyrirbæri á fyrsta stigi mannlegs þroska og tilurð „psycho- somatiskra11 einkenna til dæmis bundið þessum þessum tengslum. Sá, sem fæst við ung- og smábarnaeftirlit þarf því ekki einungis að vera vel að sér í sjúkdómafræði barna á öllum aldri, held- ur gjörþekkja einnig hegðun og þarfir barna á mismunandi aldursskeiðum til þess að geta grioið í taumana strax og eitthvað fer úrskeiðis, en án þess þó að búa til

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.